Fréttablaðið - 15.10.2019, Síða 16
Sigra fagnar!
Þórunn Gísladóttir Roth sjúkraþjálfari BSc
hefur hafið störf hjá Sigra
í Læknavaktinni Austurveri,
og sinnir allri sjúkraþjálfun.
Tímabókanir í síma 556 1300. Stuttur biðlisti.
thorunn.roth@sjukrathjalfari.is
sjukrathjalfari.is
Næringarráðgjafinn
Jayne Leonard birti
lista yfir 15 hollustu
grænmetistegund-
irnar á læknafrétta-
síðunni Medical
News Today. Þar
tekur hún fram
að það að borða
grænmeti sé ein
einfaldasta leiðin til
að bæta heilsu og
almenna vellíðan.
Spínat
Spínat er ríkt að vítamínum, stein-
efnum og andoxunarefnum. Vegna
þess hve það er kalk- og járnríkt
hentar það mjög vel fyrir fólk sem
borðar ekki kjöt eða mjólkur-
vörur. Einn bolli af spínati inni-
heldur dagskammt fullorðinnar
manneskju af K-vítamíni og mikið
magn A-vítamíns, C-vítamíns,
magnesíums og fólínsýru.
K-vítamín er sérlega gott til að við-
halda sterkum beinum auk þess
sem það hjálpar líkamanum að
nýta kalk úr fæðunni. Járn gefur
líkamanum orku og er gott fyrir
blóðrásina. Rannsóknir hafa sýnt
að spínat getur lækkað blóðþrýst-
ing og bætt starfsemi hjartans.
Grænkál
Grænkál líkt og spínat er ríkt að
A-, C- og K-vítamínum. Grænkál
er talið gott fyrir fólk með hátt
kólesteról. Rannsókn sem gerð
var á karlmönnum með hátt
kólesteról sýndi að eftir að þeir
höfðu drukkið 150 millilítra af
grænkálssafa daglega í tólf vikur
lækkaði slæma kólesterólið, LDL
um 10% en góða kólestersólið HDL
hækkaði um 27%. Rannsóknir hafa
líka sýnt að neysla grænkálssafa
lækkar blóðþrýsting og blóðsykur.
Brokkólí
Brokkólí er af krossblómaætt, líkt
og grænkál, blómkál og hvítkál.
Neysla á grænmeti af kross-
blómaætt er talin geta minnkað
líkur á krabbameini. Grænmeti af
krossblómaætt inniheldur efnið
sulforaphane, en rannsóknir á
dýrum hafa sýnt að efnið dregur
úr stærð og fjölda brjóstakrabba-
Hollasta grænmetið
Grænmeti er hægt að matreiða á ýmsan hátt. Það er stútfullt af ýmsum vítamínum og steinefnum. NORDICPHOTOS/GETTY
meinsfrumna og hindrar vöxt á
krabbameinsæxlum. Einn bolli
af brokkólíi inniheldur ráðlagðan
dagskammt af K-vítamíni og tvö-
faldan dagskammt af C-vítamíni.
Grænar baunir
Grænar baunir eru orkuríkar.
Þær innihalda mikið af trefjum
og prótínum. Auk þess eru þær
ríkar að A-, C- og K-vítamínum
og sumum tegundum B-víta-
mína. Vegna hás trefjainnihalds
eru grænar baunir góðar fyrir
meltinguna. Þær eru prótínríkar
og eru þess vegna góður kostur
fyrir grænmetisætur og grænkera.
Sætar kartöflur
Sætar kartöflur eru taldar góðar
fyrir fólk með sykursýki vegna
þess að þær hafa lágan sykur-
stuðul og eru trefjaríkar. Þær eru
því taldar geta komið jafnvægi á
blóðsykurinn.
Meðalstór sæt kartaf la inni-
heldur vel ríf lega ráðlagðan dag-
skammt fullorðinna af A-víta-
mínum. Einnig inniheldur hún
fjórðung ráðlagðs dagskammts
af C- og B6-vítamínum og 12%
af ráðlögðum dagskammti af
kalíumi.
Rauðrófur
Rauðrófur eru ríkar að kalíumi og
fólinsýru. Rauðrófur og rauðrófu-
safi eru mjög holl fyrir hjartað.
Rannsóknir sýna að rauðrófu-
safi getur lækkað blóðþrýsting
verulega. Neysla á rauðrófum er
mjög góð fyrir fólk með sykursýki.
Rauðrófur inniheldur alfa lipóín
sýru sem er talin geta haft jákvæð
áhrif á taugavandamál tengd
sykursýki.
Gulrætur
Gulrætur innihalda fjórfaldan
dagskammt fullorðinna af A-víta-
mínum. A-vítamín eru mjög góð
fyrir sjónina. Til eru rannsóknir
sem benda til að gulrótarsafi geti
drepið, eða hindrað vöxt hvít-
blæðisfrumna.
Sýrt grænmeti
Sýrt grænmeti
inniheldur sömu
næringarefni og
ósýrt grænmeti en
inniheldur auk þess
þó nokkuð af góð-
gerlum. Góðgerlar
eru taldir stuðla að
heilbrigðri þarma flóru.
Það grænmeti sem gott
er að sýra er til dæmis hvítkál,
gúrkur, gulrætur og blómkál.
Tómatar
Tómatar innihalda mikið af
kalíumi og C-vítamíni. Tómatar
innihalda einnig lýkópen sem er
öflugt andoxundarefni. Rann-
sóknir hafa sýnt að lýkópen getur
minnkað líkurnar á krabbameini
í skjaldkirtli. Einnig hafa rann-
sóknir sýnt að neysla á tómötum
getur minnkað líkurnar á kölkun í
augnbotnum.
Hvítlaukur
Hvítlaukur eru náttúrulegt sýkla-
lyf. Nokkurra ára gömul rannsókn
hefur sýnt að ákveðið efnasam-
band í hvítlauk virkar betur gegn
kampýlóbakter bakteríu en tvö
vinsæl sýklalyf.
Laukur
Laukur er ríkur að C-vítamíni,
B6-vítamíni og mangani. Laukur
inniheldur súlfúr-sambönd sem
talið er að geti veitt
vörn gegn krabbameini. Rann-
sóknir hafa einnig sýnt að karl-
menn sem borða mikið af lauk, eða
skyldu grænmeti eins og til dæmis
hvítlauk, eru í minni hættu á að fá
blöðruhálskirtilskrabbamein.
Alfalfa spírur
Í alfalfa spírum er mikið af jurta-
efnum sem talin eru hafa góð áhrif
á heilsuna. Auk þess eru alfalfa
spírur ríkar að K-vítamíni. Rann-
sóknir á dýrum hafa sýnt að alfalfa
spírur geta mögulega minnkað
bólgur og haft andoxunaráhrif.
Paprikur
Paprikur innihalda mikið af
C-vítamíni, fólínsýru og beta-
karótíni sem líkaminn breytir í A-
vítamín. Paprikur eru einnig ríkar
að andoxunarefnum, meðal ann-
ars lúteini sem verndar sjónina.
Blómkál
Blómkál er trefjaríkt og inni-
heldur mikið af C- og K-víta-
míni. Blómkál inniheldur, líkt og
brokk ólí, efnið sulforaphane sem
er talið geta hindrað vöxt krabba-
meinsfrumna.
Þari
Þari er ein fárra fæðutegunda
úr plönturíkinu sem innihalda
ómega-3, docosahexaenoic og
eicasopentaenioc fitusýrur. Þessar
fitusýrur eru mjög mikilvægar
fyrir heilsu fólks og finnast aðal-
lega í kjöti og mjólkurvörum. Það
er misjafnt eftir þarategundum
hvaða vítamín og steinefni þær
geyma en flestar eru ríkar af joði
sem er mikilvægt fyrir starfsemi
skjaldkirtilsins.
Sandra Guðrún
Guðmundsdóttir
sandragudrun@frettabladid.is
Sætar kartöflur koma jafnvægi á blóðsykur og gulrætur eru góðar fyrir sjónina.
Tómatar inni-
halda mikið
af kalíumi og
C-vítamíni.
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 5 . O K TÓ B E R 2 0 1 9 Þ R I ÐJ U DAG U R
1
5
-1
0
-2
0
1
9
0
5
:3
6
F
B
0
3
2
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
0
4
-1
9
F
4
2
4
0
4
-1
8
B
8
2
4
0
4
-1
7
7
C
2
4
0
4
-1
6
4
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
3
2
s
_
1
4
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K