Fréttablaðið - 15.10.2019, Page 30

Fréttablaðið - 15.10.2019, Page 30
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Svava O’Brien svava@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is EFTIR HVÍLDINA FRÁ VÍÓLUNNI FINNST MÉR ÉG HAFA FUNDIÐ GLEÐINA Í ÞVÍ AÐ SPILA Á HANA Á NÝ. PLATAN ER SMÁ MYRK EN SAMT LÍKA SVO HLÝ. ÞETTA VAR SVOLÍTIÐ MÍN LEIÐ TIL AÐ FINNA HLÝJUNA Í MYRKRINU. ÉG MYNDI EKKI ALVEG GANGA SVO LANGT AÐ SEGJA AÐ ÉG HAFI VERIÐ KOMIN MEÐ ÓGEÐ Á HONUM, EN JÚ ÆTLI ÞAÐ SAMT EKKI. ÞARNA VAR ÉG BÚIN AÐ VERA Í ÞESSU Í TUTTUGU ÁR OG ÞESSUM HEIMI FYLGIR MIKIÐ ÁLAG Ásta Kristín var lítið fyrir textagerð sem barn en gjörsamlega féll fyrir henni á fullorðinsárum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Næstkomandi föstu-d a g k e mu r ú t platan Sykurbað eftir Ástu Krist-ínu Pjetursdóttir. Plötuna samdi hún í vetrarmyrkri á Vestfjörðum, þar sem veðuröf lin fengu hana til að leita inn á við og í listina. Ásta er klassískt menntaður víóluleikari og lauk prófi í víóluleik frá Konung- lega danska konservatoríinu í Kaup- mannahöfn á síðasta ári. Í klassíkinni í tuttugu ár „Ég byrjaði að spila á víólu þegar ég var þriggja ára gömul. Þannig að ég hef lifað og hrærst í klassíska tón- listarbransanum lengi. Ég myndi ekki alveg ganga svo langt að segja að ég hafi verið komin með ógeð á honum, en jú, ætli það samt ekki. Þarna var ég búin að vera í þessu í tuttugu ár og þessum heimi fylgir mikið álag,“ segir Ásta. Hún segist hafi fundið fyrir löng- un til að prófa eitthvað annað, svo úr varð að hún greip í gítarinn og byrjaði að semja texta. „Mig langaði að gera eitthvað öðruvísi en ég hafði verið að gera. Þannig að ég ákvað að f lytja heim og fara í Lýðháskólann á Flateyri. Ég tók með mér gítar, en ég var byrjuð að yrkja ljóð síðustu önnina mína í skólanum úti. Eftir að ég var komin heim sá ég að ég gat breytt ljóð- unum í lagatexta. Svo var ég með gítarinn og velti fyrir mér hvort ég gæti kannski sungið, eitthvað sem ég hafði ekki verið að gera áður. Svo fattaði ég að ég gæti alveg sungið,“ segir Ásta hlæjandi. Ásta segir að vetrarkuldinn og myrkrið hafi stundum tekið á, þótt hún hafi undirbúið sig undir það eftir bestu getu. „Sykurbað stendur fyrir snjóinn. Það litar mjög plötuna að hafa verið samin fyrir vestan, á þessum litla, dimma, en ótrúlega fallega stað. Það er oft vont veður og mikil einangrun. Ég var búin að undir- búa mig fyrir myrkrið, en ég hafði ekki áttað mig á að það væri svona mikið. Maður sér ekki sólina í fjóra mánuði nánast. Það læddist aðeins aftan að manni.“ Fann hlýjuna í myrkrinu Þetta er því mikil vetrarplata að sögn Ástu. „Hún er smá myrk en samt líka svo hlý. Þetta var svolítið mín leið til að finna hlýjuna í myrkrinu.“ Í dag kemur út lagið Dómhildur dýjaveisa. „Þetta er byggt á karakter sem ég bjó til. Ég vil kannski ekki vera að segja allt of mikið um þessa Dóm- hildi,“ segir Ásta, og viðurkennir að mögulega sé karakterinn einhvers kona hliðarsjálf hennar sjálfrar. ,,Ég vil ekki endilega segja of mikið um hvað lögin eru heldur setja það frekar í hendur hlustenda að túlka þau.“ Elskar íslenska textagerð Aðspurð hvort klassíska tónlistar- menntunin hafi hjálpað mikið við gerð plötunnar segir hún svo vera. „Ég lærði líka á píanó í mörg ár. Ég hugsa að ég gæti pikkað upp á ýmis hljóðfæri, þetta hjálpar allt til. Þetta er vissulega ekki allt það sama, en ég gæti alveg spilað á ýmis hljóðfæri.“ Ásta er þó engan veginn búin að snúa baki við klassísku tónlistinni. „Ég spila með hinum og þessum, ýmsum hljómsveitum og sinfóní- unni. Það er alltaf eitthvað. Eftir hvíldina frá víólunni finnst mér ég hafa fundið gleðina í því að spila á hana á ný.“ Ertu oft spurð hver munurinn á víólu og fiðlu sé? „Nánast á hverjum degi,“ svarar Ásta hlæjandi. ,,Víólan er stærri, en maður heldur á henni eins og fiðlu. Svo er hún fimmund neðar, aðeins dýpri tónn.“ Ásta segist ekki hafa verið mikið fyrir textagerð sem krakki, hvorki ljóða- né sögugerð. „Ég plataði alltaf pabba minn til að hjálpa mér með það. Nú sem ég alla textana sjálf og mér finnst það ótrú- lega gaman, að yrkja og semja. Ég tel sjálf að þessi plata sé f lott viðbót við íslenska textagerð. Mér þykir vænt um að þetta sé framlag mitt til hennar.“ Sykurbað kemur á allar helstu streymisveitur föstu- daginn 18. október og síðar kemur hún einnig út á geisla- disk. Dómhildi dýjaveisu er hægt að nálgast frá og með deginum í dag, en svo er hægt að berja Ástu augum á Air- waves-hátíðinni í ár. steingerdur@frettabladid.is Samin í vetrarmyrkri á Vestfjörðum Ásta Kristín er klassískur víóluleikari en langaði að prófa að gera öðruvísi tónlist. Útkoman er platan Sykurbað en hana samdi Ásta mestmegnis á meðan hún stundaði nám við Lýðháskólann á Flateyri. Í dag kemur lagið Dómhildur dýjaveisa á allar helstu streymisveitur. Næsta föstudag fylgir svo öll plata Ástu Kristínar, Sykur- bað. 1 5 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 Þ R I Ð J U D A G U R22 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 1 5 -1 0 -2 0 1 9 0 5 :3 6 F B 0 3 2 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 4 0 4 -2 3 D 4 2 4 0 4 -2 2 9 8 2 4 0 4 -2 1 5 C 2 4 0 4 -2 0 2 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 3 2 s _ 1 4 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.