Fréttablaðið - 23.10.2019, Blaðsíða 10
RANGE ROVER SPORT
P400e HSE
Nýskr. 5/2019, ekinn 8 þús. km,
bensín, rafmagn, sjálfskiptur.
Verð 13.690.000 kr.
Rnr. 420243.
RANGE ROVER EVOQUE SE
Nýskr. 6/2018, ekinn 10 þús. km,
dísil, sjálfskiptur.
Verð 6.990.000 kr.
Rnr. 146153 .
PORSCHE CAYENNE S
e-hybrid
Nýskr. 1/2017, ekinn 24 þús. km,
bensín/rafmagn, sjálfskiptur.
Verð 9.490.000 kr.
Rnr. 392121.
JAGUAR - LAND ROVER
Hesthálsi 6-8 / 110 Reykjavík
525 6500 / jaguarlandrover.is
Allir bílar sem merktir eru APPROVED hafa farið í gegnum
gæðaferli notaðra Jaguar og Land Rover bíla.
Sjón er sögu ríkari – komdu í reynsluakstur strax í dag.
NOTAÐIR LÚXUSBÍLAR
SÝNINGARSALUR - HESTHÁLSI 6
JAGUAR XJ R-sport
Nýskr. 9/2018, ekinn 10 þús. km,
dísil, sjálfskiptur.
Verð 10.590.000. kr.
Rnr. 420230.
JAGUAR F-PACE
R-sport 3.0 V6
Nýskr. 12/2017, ekinn 32 þús. km,
dísil, sjálfskiptur.
Verð 9.490.000 kr.
Rnr. 420242.
JAGUAR F-PACE Prestige
Nýskr. 7/2017, ekinn 33 þús. km,
dísil, sjálfskiptur.
Verð 7.490.000 kr.
Rnr. 420228.
AUDI SQ5 TDI
Nýskr. 5/2015, ekinn 54 þús. km,
dísil, sjálfskiptur.
Verð 6.890.000 kr.
Rnr. 420171.
JAGUAR I-PACE S EV400 AWD
Nýskr. 9/2019, ekinn 1 þús. km,
rafmagn, sjálfskiptur.
Verð 9.490.000 kr.
Rnr. 420244.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
9
6
4
1
2
J
a
g
u
a
r
n
o
ta
ð
ir
5
x
2
0
2
3
o
k
t
2 3 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R10 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT
FÓTBOLTI Knattspyrnustjóri Shef-
field United, Chris Wilder, er ein-
hver stórkostlegasti karakter enska
boltans. Hann er fæddur í borginni,
ólst þar upp og hefur haldið með
liðinu alla sína hunds- og kattartíð.
Hann gekk í gegnum unglingaaka-
demíu liðsins, var boltastrákur á
vellinum og spilaði tvisvar á ferl-
inum fyrir félagið sem hann elskar.
Hann hefur stýrt uppgangi félags-
ins og farið upp um tvær deildir á
þremur árum. Síðan 2016 tímabilið
rúllaði af stað hefur hann unnið
fleiri leiki en Jurgen Klopp. Reyndar
er það þannig að aðeins Pep Guardi-
ola hefur unnið fleiri leiki. Auðmýkt
hans kemur frá rótunum og leiðinni
sem hann hefur fetað. Frá því að
vera fínasti hægri bakvörður í neðri
deildunum í að stýra Alfreton Town
í neðstu deild og seinna Sheffield
United upp í úrvalsdeildina.
Wilder notar strætó og er ekki að
stressa sig um of á glamúrlífi enska
boltans. Hann tekur strætóleið 51
í Sheffield til að fara á barinn að
hitta aðra stuðningsmenn liðsins,
hann fór í viðtal við The Telegraph
á barnum og er vinsæll meðal fjöl-
miðla. Fyrir utan allt sem hann gerir
utan vallar er hann líka stórsnjall
knattspyrnustjóri. Það er alveg
ástæða fyrir að hann var valinn
knattspyrnustjóri ársins eftir síð-
asta tímabil af enska knattspyrnu-
stjórasambandinu og hafði betur en
Pep Guardiola og Jurgen Klopp, sem
flestir eru sammála um að séu þeir
tveir bestu.
Á mánudag sýndu Wilder og lið
hans af hverju þeir eru í efri hlut-
anum þegar liðið vann Arsenal
1-0. Sheffield United og Arsenal
eru ekki miklir vinir eftir bikarleik
þar sem sigurmark Arsenal kom
eftir óíþróttamannslega hegðun
frá Nwankwo Kanu. Wilder sat
svo í stúkunni með öðrum stuðn-
ingsmönnum þegar David Seaman
sýndi einhverja stórkostlegustu
markvörslu síðari ára og kom Ars-
enal í bikarúrslitin árið 2003. Leikir
liðsins hafa lengi verið eftirminni-
legir og það er lítil vinátta á milli
félaganna.
Wilder breytti rútínu liðsins
í aðdraganda leiksins. Hann gaf
leikmönnum fjögurra daga frí áður
en þeir sneru aftur til að æfa í tvo
daga undir miklu álagi. Gaf þeim
svo helgarfrí. Annar frídagur kom
svo á fimmtudag. Eftir þann dag
má nánast segja að Wilder hafi læst
leikmenn sína inni á Shirecliffe
æfingasvæðinu.
Hann einbeitti sér að varnarleik
Arsenal í föstum leikatriðum. Eðli-
lega, enda aðeins Watford og Ever-
ton sem hafa fengið á sig fleiri mörk
úr slíkum atriðum. Og það virkaði.
Markið sem Sheffield skoraði kom
eftir hornspyrnu. Liðið leyfði Ars-
enal að vera með boltann en varðist
af stakri snilld. Pepe, sem kostaði
Arsenal formúu, klikkaði á besta
færi Arsenal. Aðdáendur íslenska
landsliðsins hafa elskað að horfa á
hvernig liðið varðist.
Sheffield United hélt hreinu og
situr nú í níunda sæti deildarinnar
með bestu vörn deildarinnar ásamt
Liverpool. Bæði lið hafa fengið á sig
sjö mörk. Þetta var í 25. skipti sem
félagið heldur hreinu síðan 2018-
2019 tímabilið hófst.
Í grein Athletic um Wilder segir
að hann hafi hlaupið heiman frá sér
og að Bramall Lane rennandi blaut-
ur í morgunte með Kevin McCabe,
fyrrverandi eiganda félagsins. Sá
ber honum vel söguna. Segir að
hann sé ekki vitlaus. „Hann hleypur
oft hingað enda er þetta allt niður í
móti frá húsinu hans. Hann fær þó
far með konunni sinni til baka eða
tekur strætó,“ segir McCabe.
Flestir spáðu Sheffield falli
Sheffield United var 12 ár utan
ensku úrvalsdeildarinnar. Upp-
gangur félagsins hefur verið hraður
undanfarin ár síðan Wilder tók við.
Sheffield vann C-deildina fyrir
tveimur árum með 100 stigum
og endaði svo í tíunda sæti í
Champion ship-deildinni. Sheffield
náði öðru sæti í fyrra, á kostnað
Leeds, og fylgdi þar með Norwich
upp í úrvalsdeildina. Fáir spáðu
liðinu góðu gengi. Enginn íslenskur
leikmaður hefur spilað með Shef-
field en bakvörðurinn George Bal-
dock var á mála hjá ÍBV árið 2012
undir stjórn Magnúsar Gylfasonar.
benediktboas@frettabladid.is
Strætósnillingurinn frá Sheffield
Chris Wilder, knattspyrnustjóri Sheffield United, er enginn venjulegur knattspyrnustjóri. Hann hefur verið stuðningsmaður liðsins
allt sitt líf, tekur strætó á barinn, er í einstökum tengslum við stuðningsmenn og spilar skemmtilegan og árangursríkan fótbolta.
Kóngurinn Chris Wilder labbar af velli á mánudag sáttur á svip með þumal
á lofti eftir að hafa lagt lið Arsenal að velli. NORDICPHOTOS/GETTY
2
3
-1
0
-2
0
1
9
0
5
:2
0
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
1
0
-2
4
3
0
2
4
1
0
-2
2
F
4
2
4
1
0
-2
1
B
8
2
4
1
0
-2
0
7
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
8
s
_
2
2
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K