Fréttablaðið - 23.10.2019, Side 20
fyrir uppgangi hrekkjavökunnar
sé einfaldlega sú að Íslendingar
hafi gaman af því að lyfta sér upp,
sérstaklega í skammdeginu.
„Okkur Íslendingum finnst
gaman að halda partí og skreyta
og skammdegið er oft erfitt,
þannig að það er mikil áhersla
á veislu- og hátíðarhöld. Okkur
finnst þetta bara gaman. Hrekkja-
vakan er líka ólík öskudegi af því
að þetta er fyrir alla, en ekki bara
börnin,“ segir hún. „Unga fólkið
er með partí, foreldrar eru að taka
á móti krökkum og allir elska að
fara í búning. Það er engin ástæða
til að hafa ekki bara gaman af
þessu. Á öskudag þurfa börnin
líka að vinna fyrir namminu með
því að syngja, en á hrekkjavöku er
bara nóg að vera í búningi. Þetta
er komið til að vera hjá okkur
og við höldum að minnsta kosti
áfram á meðan börnin eru ung.
Regína segir að það sem henni
finnist skemmtilegast sé undir-
búningurinn og svo hvað börn-
unum finnst þetta skemmtilegt.
„Maður verður enn þá meira
jólabarn þegar maður verður
foreldri og þetta virkar eins. Það
er svo gaman að halda upp á
þetta með börnunum og maður
er að búa til minningar, sem er
ótrúlega mikilvægt. Þegar maður
verður fullorðinn þá eru það
svona stundir sem maður man
eftir, samveran,“ segir Regína
Ósk. „Svo verður maður líka bara
að hafa eitthvað skemmtilegt
fram undan, það kemur ekki af
sjálfu sér, maður þarf að gera lífið
skemmtilegt.“
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@
frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s.
550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Jóhanna Helga
Viðarsdóttir
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656,
Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103,
Sífellt f leiri Íslendingar halda upp á hrekkjavökuhátíðina, sem fer fram á fimmtudag í
næstu viku, 31. október. Hátíðin
hefur notið síaukinna vinsælda
á Íslandi á undanförnum árum
og söngkonan Regína Ósk er ein
þeirra sem hafa tekið henni með
opnum örmum. Í fyrra hélt hún
upp á hrekkjavöku af krafti í fyrsta
sinn og í ár ætlar hún að leggja enn
meira í hátíðarhöldin.
„Ég hélt fyrst upp á hrekkja-
vökuhátíðina fyrir tveimur árum,
en það var smá aðdragandi að því.
Elsta dóttir mín á afmæli í október
og þegar hún var 13 ára hélt hún
hrekkjavökuafmæli, sem varð
kveikjan að því að ég keypti fyrstu
skreytingarnar,“ segir Regína Ósk.
„Við f luttum svo í einbýlishús
fyrir tveimur árum og það er alveg
svona ekta hús til að skreyta fyrir
jól eða hrekkjavöku, þannig að í
fyrra tókum við þetta alla leið í
fyrsta skipti og það var ótrúlega
skemmtilegt. Það myndaðist mikil
stemning og krakkarnir í hverfinu
voru duglegir að koma til okkar og
fá nammi og svona. Þetta var bara
geggjað!“
Öskur og draugagangur
„Við vorum búin að finna upp-
tökur af öskrum og alls konar
óhljóðum á netinu og spiluðum
þau í hátalara þannig að þau
heyrðust innan úr íbúðinni þegar
maður opnaði hurðina,“ segir Reg-
ína Ósk. „Við vorum líka með reyk
úr brúsa og alls konar lituð ljós
sem við notuðum til að lýsa bæði
úti og inni og baða heimilið í
alls konar óhugnanlegri birtu.
Við bílskúrinn settum við líka
upp fyllta hettupeysu þannig
að það leit út eins og einhvern
hefði lent undir bíl-
skúrshurðinni!
Í ár ætlum
við að halda
þessu svolítið
drungalegu.
Við verðum
með
útskorið
grasker og
appelsínu-
guli
liturinn fær
að njóta sín.
Við verðum
líka með stóra
gervikönguló
og köngulóar-
vefi út um allt,“ segir
Regína Ósk. „Ég keypti líka
límmiða með blóðugum
handaförum sem verða á
bílskúrnum og það verður
líka settur upp lögreglu-
borði eins og er notaður til að girða
af. Þetta tínist smám saman til.
Við verðum líka með mynd-
varpa og ætlum að varpa ein-
hverju draugalegu í gluggana.
Maðurinn minn er æstur í þetta
og hann sér um tæknilegu hliðina,
en ég sé um nammið og skrautið,
það er svaka metnaður í þessu hjá
okkur,“ segir Regína Ósk og hlær.
„Ég er komin með ágætis kassa
af hrekkjavökuskrauti sem ég
passa upp á eins og jólaskrautið.
Það eina sem er leiðinlegt við að
skreyta fyrir hrekkjavökuna er
hvað þetta er í stuttan tíma, bara
einn dag,“ segir Regína Ósk. „En
við ætlum að reyna að halda þessu
uppi í viku. Kransinn er kominn
upp, en svo bætist hægt og rólega
í þangað til þetta nær hápunkti á
hrekkjavökukvöldinu sjálfu.“
Auðvelt að fá skraut í dag
Regína segist fá hrekkjavöku-
skraut mjög víða. „Það er miklu
meira af hrekkjavökudóti til í
búðunum núna en þegar ég hélt
hrekkjavökuafmælið fyrir dóttur
mína fyrir fjórum árum. Núna er
allt til, en fyrst þurfti ég að búa
til skraut sjálf,“ segir Regína Ósk.
„Það er mikið í Costco, Partý-
búðinni, Tiger og í rauninni bara
úti um allt, en það er kannski mest
af stóru skrauti í Costco. Þetta
smálega, eins og hauskúpur og
beinagrindur og alls konar fæst
á f lestum stöðum núna, það vilja
allir vera með.
Hrekkjavaka er á uppleið á
Íslandi og maður fylgir bara með,“
segir Regína Ósk. „Skólarnir eru
til dæmis farnir að halda bekkjar-
kvöld þar sem fólk hittist og sker
út grasker og þá er líka boðið upp
á veitingar í hrekkjavökustíl, eins
og pylsur með tómatsósu sem líta
út eins og blóðugir puttar.
Við verðum með grasker
fyrir utan eins og ég sagði, en
í hverfinu okkar er reglan sú
að ef fólk er með grasker með
ljósi fyrir utan hjá sér
þýðir það að fólk sé
tilbúið að taka á
móti börnum,“
segir Regína
Ósk. „Milli
fimm og sjö
31. október
má svo
sníkja
nammi. Í
fyrra keypti
ég fullt af
nammi en
þurfti samt
að fara og
kaupa meira,
því það komu svo
margir. Þannig að við
keyptum meira núna.“
Þarf að gera lífið
skemmtilegt
Regína telur að ástæðan
Óhugnanlegur hrekkjavökukransinn er þegar kominn upp og svo ætlar
Regína Ósk að bæta við skrauti hægt og rólega. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Blóðug handaförin á bílskúrunum
eru vísbending um einhvern óséðan
hrylling. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Að sjálfsögðu
skipar útskorna
graskerið
heiðurssess.
Í fyrra leit út eins og einhver hefði
lent undir bílskúrshurðinni.
Oddur Freyr
Þorsteinsson
oddurfreyr@frettabladid.is
Regína Ósk hélt fyrst upp á hrekkjavöku af alvöru í fyrra en setur meiri kraft í hátíðarhöldin í ár.FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Maðurinn minn er
æstur í þetta og
hann sér um tæknilegu
hliðina, en ég sé um
nammið og skrautið, það
er svaka metnaður í
þessu hjá okkur.
Framhald af forsíðu ➛
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 3 . O K TÓ B E R 2 0 1 9 M I ÐV I KU DAG U R
2
3
-1
0
-2
0
1
9
0
5
:2
0
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
1
0
-4
1
D
0
2
4
1
0
-4
0
9
4
2
4
1
0
-3
F
5
8
2
4
1
0
-3
E
1
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
4
8
s
_
2
2
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K