Fréttablaðið - 23.10.2019, Síða 8

Fréttablaðið - 23.10.2019, Síða 8
Frá degi til dags Halldór ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Jóhanna Helga Viðarsdóttir RITSTJÓRAR: Davíð Stefánsson david@frettabladid.is, Jón Þórisson jon@frettabladid.is, MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ.IS: Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Fjölmiðla- nefnd hefur frá stofnun átt sér afar lítinn tilveru- grundvöll, enda er fullkomlega óeðlilegt að opinber nefnd hafi það hlutverk að leggja stein í götu fjölmiðla. Eigum við að vera hráefnis- náma fyrir auðuga aðila eða á vinnsla vörunnar að fara fram hér landi? Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is Útflutningur á óunnum fiski fer vaxandi. Einn-ig fer það í vöxt að stórar útgerðir yfirbjóði á fiskmörkuðum fisk sem fluttur er óunninn til vinnslu í öðrum löndum með þeim afleiðingum að fisk- vinnslur hér á landi sem treysta á að geta keypt hráefni á fiskmörkuðum, verða undir. Um allt land eru fiskvinnslur í þessari stöðu og eru í rekstrarvanda vegna hráefnisskorts og yfir- boða þeirra stærri og stöndugri. Margar þeirra hafa sagt upp fólki undanfarið, hafa þurft að draga saman seglin og munu hætta rekstri ef svo heldur fram sem horfir. Hagkvæmni stærðar útgerðarfyrirtækja sem kaupa og selja óunninn fisk úr landi í stórum stíl og þjóðar- hagur fara hér ekki saman. Og því er það þyngra en tárum taki að ráðherrar taki málið ekki alvarlega – ekki ráðherra byggðamála, formaður Framsóknar- flokksins, Sigurður Ingi Jóhannsson, ekki ráðherra vinnumarkaðsmála, Framsóknarmaðurinn Ásmund- ur Einar Daðason, ekki fjármálaráðherra, formaður Sjálfstæðisflokksins, Bjarni Benediktsson, né sjávar- útvegsráðherra, Sjálfstæðismaðurinn Kristján Þór Júlíusson. Þetta er óheillaþróun sem veldur atvinnu- leysi, fólksflótta frá landsbyggð og færir ríkissjóði og sveitarfélögum lægri tekjur. Eigi fiskvinnslur sem treysta á fiskmarkaði að lifa af þarf strax að finna lausn. Eða er stjórnvöldum alveg sama um þessa þróun? Skiptir gróði og arðgreiðslur stórútgerðarinnar ríkisstjórnina meiru en atvinna og kjör íslenskra samfélaga víða um land? Hverjir vinna allan þennan óunna fisk? Hverjir eru það sem eiga svo gott skjól hjá ríkisstjórninni? Hvað væri hægt að gera? Við getum t.d. sett í lög að umtalsvert stærri hluti afla fari á markað. Þá væri erfiðara að sprengja upp verð og gera fáum stórum aðilum kleift að ryksuga upp afla á markaði og flytja úr landi. Við gætum líka lögleitt hvata til að vinna aflann hér á landi. Eigum við að vera hráefnisnáma fyrir auðuga aðila eða á vinnsla vörunnar að fara fram hér landi? Ýmis úrræði eru í boði til að snúa við þess- ari óheillaþróun – standi manni ekki á sama um hana. Í þjóðarhag – eða sægreifa Oddný G. Harðardóttir þingmaður Sam- fylkingarinnar EKKERT BRUDL Pampers Bleiur 6 tegundir kr./pk.1.595 Stór pakkning á góðu verði í B ónus Nr.3 - 6- 10 kg - 90 stk. Nr.4 - 9-14 kg - 78 stk. Nr.4+ - 10-15 kg - 76 stk. Nr.5 - 11-16 kg - 72 stk. Nr.6 - 13-18 kg - 62 stk. Nr.7 - 15+ kg - 58 stk. Það voru vonbrigði að lesa yfirlýsingu menntamálaráðherra í vikunni þar sem tilkynnt var um að skipað hefði verið í nýja fjölmiðlanefnd til næstu fjögurra ára. Fyrri nefnd varð óstarfhæf eftir að Blaðamannafélag Íslands dró full- trúa sinn úr nefndinni sökum vanhæfis hennar og bundnar voru miklar vonir við að ráðherra myndi loks láta verða af því að leggja nefndina niður. Fjölmiðlanefnd hefur frá stofnun átt sér afar lítinn tilvistargrundvöll, enda er fullkomlega óeðlilegt að opinber nefnd hafi það hlutverk að leggja stein í götu fjölmiðla og þannig þrengja að ritstjórnar- legu mati þeirra. Í stað þess að reyna að berjast fyrir tilvist sinni hefur nefndin farið í vitagagnslausar og furðulegar vegferðir til þess að sekta fjölmiðla, sem þegar berjast í bökkum. Í nýrri nefnd sitja þrír lögfræðingar og heimspek- ingur. Fæstir hafa reynslu af fjölmiðlum. Það verður að teljast í hæsta máta óeðlilegt að fá reynslulaust fólk til þess að skipa öðrum fyrir verkum, líkt og lögfræðingarnir, heimspekingurinn eða blaðamenn yrðu aldrei fengnir til þess að hafa afskipti af starfi pípara eða annarra sérhæfðra stétta. Blaðamannafélag Íslands hefur ítrekað bent á þessa staðreynd, og félagið raunar líkt afskiptum stjórn- valda við stefnu pólska flokksins Lög og réttur, sem hyggst setja „sérstakar reglur um blaðamenn“ og mun þannig hafa áhrif á fjölmiðlaumfjöllun í landinu. Fyrrnefndur ráðherra fjölmiðlamála lofaði bót og betrun eftir gagnrýni félagsins, en umbæturnar urðu þó ekki meiri en svo að ráðherra hélt óþörfu starfi nefndarinnar til streitu og skipaði fjóra fjöl- miðlanefndarmenn í stað fimm, þar sem engin til- nefning barst frá Blaðamannafélagi Íslands. Ráðherra þarf að átta sig á því að nefnd sem hefur engan skilning á eðli fjölmiðla getur ekki sinnt ráð- gefandi hlutverki sínu. Dæmi um vanhæfi nefndar- innar var þegar Ríkisútvarpið ákvað að greiða millj- ónir í bætur í stað þess að draga fréttir, sem sagðar voru rangar, til baka eða biðjast afsökunar á þeim. Það hefði verið kjörið tækifæri til þess að bregðast við en í stað þess úrskurðar nefndin í gríð og erg um fréttir sem skrifaðar eru upp úr færslum á Facebook. Það er þess vegna vandséð hvort tilgangur nefndarinnar, sem á að vera efling fjölmiðlalæsis og fjölbreytni, hafi skilað árangri, eða hvort hún hafi aðeins vegið að ritstjórnarfrelsi í landinu. Ráðherra þarf að átta sig á því að ríkið hefur ekki og má ekki hafa húsbóndavald yfir blaðamönnum. Þeir sem telja á sér brotið geta leitað til siðanefndar BÍ eða dómstóla og það fyrirkomulag hefur gengið prýðilega undanfarna áratugi. Ráðherra þarf að standa við yfirlýsingar sínar um endurskoðun fjölmiðlalaga og á sama tíma treysta því að blaða- mennska sé unnin af heilum hug. Gott fyrsta skref væri að leggja nefndina niður og þannig spara skatt- greiðendum aurinn. Útgönguleiðin gæti verið sú að nefndin uppfyllir ekki lög um fjölmiðla sem kveða á um fimm nefndarmenn. Húsbóndavaldið Að tapa með reisn Í gær lauk 11 mánaða stríði blaðamanns Fréttablaðsins, Ara Brynjólfssonar, um að fá umdeildan námssamning afhentan frá Seðlabanka Íslands. Ari lagði bankann í héraðsdómi og er skeyti með gögnunum frá bankanum barst loks þá hófst hann þegar handa við frétta- skrifin. Stofnun með einhverja sómakennd hefði þá beðið þess sem verða vildi. Fréttar Frétta- blaðsins um samninginn. En það var til of mikils mælst. Á sama augnabliki tók Seðlabankinn þá ákvörðun að birta samninginn í heild sinni á heimasíðu bankans undir fyrirsögninni: „Upplýsingar um námsstyrk, leyfi og einkamálefni starfsmanns.“ Frekar einkenni- legt enda var það beinlínis niður- staða héraðsdóms að samn- ingurinn væri ekki einkamálefni Ingibjargar heldur ætti erindi við almenning. Það er mikilvægt að kunna að tapa með reisn. Dramatík á Stundinni Forsíðufrétt blaðsins í gær var talin marka tímamót í fjölmiðla- sögu Íslands að mati ritstjóra Stundarinnar. Í stuttu máli vegna þess að blaðið væri aug- ljóslega orðið verkfæri Evrópu- sinnaðra auðmanna. Raunveruleikinn er þó sá að stuttu fyrir prent vantaði skyndilega forsíðufrétt og blaða- maður á vakt er mikill áhuga- maður um svæsin rifrildi valda- manna. bjornth@frettabladid.is 2 3 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R8 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SKOÐUN 2 3 -1 0 -2 0 1 9 0 5 :2 0 F B 0 4 8 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 1 0 -3 7 F 0 2 4 1 0 -3 6 B 4 2 4 1 0 -3 5 7 8 2 4 1 0 -3 4 3 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 4 8 s _ 2 2 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.