Fréttablaðið - 23.10.2019, Side 46
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Svava O’Brien svava@frettabladid.is,
Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann
Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir
elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is
ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is
Val um svart eða hvítt PU leður
eða grátt áklæði á Classic botni.
NATURE’S REST
heilsurúm með
Classic botni
30%
AFSLÁTTUR
af Rest dýnu og 20%
afsláttur af botni
Afmælis
• Svæðaskipt
pokagormakerfi
• Burstaðir stálfætur
• Sterkur botn
• 320 gormar á m2
• Góðar kantstyrkingar
Stærð í cm Fullt verð Afmælistilboð
80x200 55.900 kr. 41.930 kr.
90x200 59.900 kr. 44.930 kr.
120x200 69.900 kr. 52.530 kr.
140x200 79.900 kr. 59.930 kr.
160x200 89.900 kr. 67.430 kr.
180x200 99.900 kr. 74.930 kr.
DORMA LUX
heit dúnsæng
Dásamleg, heit dúnsæng frá Quilts of Denmark.
Stærð: 140×200 cm. 800 g. 90% hreinn andadúnn.
10% smáfiður. Má þvo á 60°c en það er hitastig
sem rykmaurar þola ekki –
því er gott að nota sæng
sem þolir þennan
þvottahita ef um
rykofnæmi er
að ræða.
Fullt verð: 27.900 kr.
30%
AFSLÁTTUR
Afmælis
Aðeins 19.530 kr.
Við eigum
afmæli og nú
er veisla
www.dorma.is
V E F V E R S LU N
ALLTAF
OPIN
Afgreiðslutími Rvk
Mán. til fös. kl. 11–18.30
Laugardaga kl. 11–17
Sunnudaga kl. 13–17 (Smáratorgi)
www.dorma.is
Holtagörðum, Reykjavík
Smáratorgi, Kópavogi
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafirði
FYRIR
AÐSTOÐ
INNANLANDS
gjofsemgefur.is
9O7 2OO2
Þetta verkefni spratt upp úr gjörningi sem ég gerði fyrst fyrir tveimur árum. Hann heitir Wiki-How to start a punk band og fólst í því að ég
fylgdi leiðbeiningum af WikiHow.
com um hvernig stofna ætti pönk-
hljómveit, en það hafði verið lang-
þráður draumur hjá mér að vera í
slíkri,“ segir Gígja Jónsdóttir.
Skapa hliðarsjálf
Gígja Jónsdóttir er menntaður dans-
ari og myndlistarkona. Hún blandar
báðum þekkingarheimum saman í
gjörningum sínum. Hún segir hug-
myndina að gjörningnum hafa
sprottið upp úr vangaveltum um
hve Internetið sé orðið samofið lífi
okkar í dag og fólk leiti þangað til að
þjálfa upp hæfni eða læra nýja hluti.
„Þetta var smá gagnrýni en líka
tilraun til að upphefja þessa menn-
ingu, það að fólk haldi að það geti
lært að gera nánast hvað sem er á
Internetinu. Í gjörningnum voru
áhorfendur meðlimir hljómsveitar-
innar. Ég skapaði aðferðir í kringum
öll skrefin og í samvinnu við gesti
sýningarinnar varð hljómsveitin
til.“
Nú hafa orðið til nokkrar sveitir
út frá gjörningnum en Gígja hefur
líka verið með námskeið byggt á
hugmyndafræði hans.
„Ég vildi breyta þessu í námskeið.
Fyrsta námskeiðið var með ungu
fólki. Þá voru engir áhorfendur en
ég fór ítarlegar í hvert skref. Nám-
skeiðið er 5-8 dagar í staðinn fyrir
tvær klukkustundir. Þannig verður
vinnan dýpri. Á námskeiðunum
sköpum við líka hliðarsjálf þótt
allir séu í raun þeir sjálfir í ferlinu,
það er meira til að auka á listræna
frelsið. Þá gefur fólk sér meira rými
til að prufa hluti sem það hefur ekki
leyft sér áður.“
Dans ekki bara fyrir ungt fólk
Gjörningurinn var sýndir á ein-
leikjahátíðinni Act Alone á Suður-
eyri í ár og fékk góðar viðtökur.
Fyrir mánuði stóð Gígja svo fyrir
námskeiði með Forward Youth
Dance Company, sem er ungdans-
flokkur.
„Þátttakendurnir í því námskeiði
stofnuðu hljómsveitina The Boob
Sweat Gang, sem er enn starfandi og
mun koma fram í Iðnó í næstu viku.
Þannig að námskeiðið varð til þess
að úr varð alvöru pönkhljómsveit.“
Næst á dagskrá hjá Gígju er að
halda sams konar námskeið fyrir
eldri borgara og lýsir því Gígja eftir
fólki yfir 65 ára sem langar að stofna
pönkhljómsveit.
„Þetta námskeið verður haldið
í samvinnu við Reykjavík Dance
Festival. Hátíðin í ár er samfélags-
miðuð og er verkunum ætlað að
skoða jaðar- og minnihlutahópa í
samfélaginu, ásamt því að reyna að
gera dansinn sem aðgengilegastan
fyrir alla. Það er svo fastur stimpill á
dansinum að hann sé bara fyrir ungt
fólk, eins og maður sé bara brunninn
út sem dansari þegar maður er 35 ára.
Þannig að mig langar að leika með
þessi ímynduðu aldurstakmörk.“
Pönkið er drifkraftur
Hún segir pönkið hafa líka meira
verið tengt við yngra fólk í gegnum
árin.
„Mér finnst ótrúlega spennandi
og áhugavert að sjá hvernig þroskað
pönk kemur út. Svo held ég að það
sé líka hollt og gaman fyrir eldra
fólk að fá einhvers konar pláss til
að skapa á þennan hátt. Margir gefa
sjálfum sér minna frelsi í tilrauna-
starfsemi og flipp þegar þeir eldast.
Mig langar að eiga samtal við þessa
kynslóð og draga hana inn í dans-
inn. Ég nota pönkið sem drifkraft.
Þetta er form sem við erum að leika
okkur með sem er frelsandi og gefur
fólki rými til að finna sína rödd.“
Því óskar Gígja eftir að heyra frá
eldri og heldri borgurum sem hafa
áhuga á pönki, dansi eða bara langar
að prófa eitthvað nýtt. Hægt er að
senda inn spurningar og umsókn á
tölvupóstfangið gigjajons@gmail.
com. steingerdur@frettabladid.is
Pönkhljómsveit
fyrir eldri borgara
Gígja Jónsdóttir leitar að eldri borgurum sem langar að taka þátt í
námskeiði sem spratt upp úr gjörningi. Á námskeiðinu verða þátt-
takendum lagðar línurnar um hvernig skuli stofna pönkhljómsveit.
MARGIR GEFA SJÁLF-
UM SÉR MINNA FRELSI
Í TILRAUNASTARFSEMI OG
FLIPP ÞEGAR ÞEIR ELDAST. MIG
LANGAR AÐ EIGA SAMTAL VIÐ
ÞESSA KYNSLÓÐ OG DRAGA
HANA INN Í DANSINN.
Gígja vonast til að heyra frá sem flestum eldri borgurum sem hafa áhuga á að taka þátt í námskeiðinu.
2 3 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R22 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
3
-1
0
-2
0
1
9
0
5
:2
0
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
4
1
0
-2
4
3
0
2
4
1
0
-2
2
F
4
2
4
1
0
-2
1
B
8
2
4
1
0
-2
0
7
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
8
s
_
2
2
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K