Fréttablaðið - 23.10.2019, Side 46

Fréttablaðið - 23.10.2019, Side 46
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Svava O’Brien svava@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is Val um svart eða hvítt PU leður eða grátt áklæði á Classic botni. NATURE’S REST heilsurúm með Classic botni 30% AFSLÁTTUR af Rest dýnu og 20% afsláttur af botni Afmælis • Svæðaskipt pokagormakerfi • Burstaðir stálfætur • Sterkur botn • 320 gormar á m2 • Góðar kantstyrkingar Stærð í cm Fullt verð Afmælistilboð 80x200 55.900 kr. 41.930 kr. 90x200 59.900 kr. 44.930 kr. 120x200 69.900 kr. 52.530 kr. 140x200 79.900 kr. 59.930 kr. 160x200 89.900 kr. 67.430 kr. 180x200 99.900 kr. 74.930 kr. DORMA LUX heit dúnsæng Dásamleg, heit dúnsæng frá Quilts of Denmark. Stærð: 140×200 cm. 800 g. 90% hreinn andadúnn. 10% smáfiður. Má þvo á 60°c en það er hitastig sem rykmaurar þola ekki – því er gott að nota sæng sem þolir þennan þvottahita ef um rykofnæmi er að ræða. Fullt verð: 27.900 kr. 30% AFSLÁTTUR Afmælis Aðeins 19.530 kr. Við eigum afmæli og nú er veisla www.dorma.is V E F V E R S LU N ALLTAF OPIN Afgreiðslutími Rvk Mán. til fös. kl. 11–18.30 Laugardaga kl. 11–17 Sunnudaga kl. 13–17 (Smáratorgi) www.dorma.is Holtagörðum, Reykjavík Smáratorgi, Kópavogi Dalsbraut 1, Akureyri Skeiði 1, Ísafirði FYRIR AÐSTOÐ INNANLANDS gjofsemgefur.is 9O7 2OO2 Þetta verkefni spratt upp úr gjörningi sem ég gerði fyrst fyrir tveimur árum. Hann heitir Wiki-How to start a punk band og fólst í því að ég fylgdi leiðbeiningum af WikiHow. com um hvernig stofna ætti pönk- hljómveit, en það hafði verið lang- þráður draumur hjá mér að vera í slíkri,“ segir Gígja Jónsdóttir. Skapa hliðarsjálf Gígja Jónsdóttir er menntaður dans- ari og myndlistarkona. Hún blandar báðum þekkingarheimum saman í gjörningum sínum. Hún segir hug- myndina að gjörningnum hafa sprottið upp úr vangaveltum um hve Internetið sé orðið samofið lífi okkar í dag og fólk leiti þangað til að þjálfa upp hæfni eða læra nýja hluti. „Þetta var smá gagnrýni en líka tilraun til að upphefja þessa menn- ingu, það að fólk haldi að það geti lært að gera nánast hvað sem er á Internetinu. Í gjörningnum voru áhorfendur meðlimir hljómsveitar- innar. Ég skapaði aðferðir í kringum öll skrefin og í samvinnu við gesti sýningarinnar varð hljómsveitin til.“ Nú hafa orðið til nokkrar sveitir út frá gjörningnum en Gígja hefur líka verið með námskeið byggt á hugmyndafræði hans. „Ég vildi breyta þessu í námskeið. Fyrsta námskeiðið var með ungu fólki. Þá voru engir áhorfendur en ég fór ítarlegar í hvert skref. Nám- skeiðið er 5-8 dagar í staðinn fyrir tvær klukkustundir. Þannig verður vinnan dýpri. Á námskeiðunum sköpum við líka hliðarsjálf þótt allir séu í raun þeir sjálfir í ferlinu, það er meira til að auka á listræna frelsið. Þá gefur fólk sér meira rými til að prufa hluti sem það hefur ekki leyft sér áður.“ Dans ekki bara fyrir ungt fólk Gjörningurinn var sýndir á ein- leikjahátíðinni Act Alone á Suður- eyri í ár og fékk góðar viðtökur. Fyrir mánuði stóð Gígja svo fyrir námskeiði með Forward Youth Dance Company, sem er ungdans- flokkur. „Þátttakendurnir í því námskeiði stofnuðu hljómsveitina The Boob Sweat Gang, sem er enn starfandi og mun koma fram í Iðnó í næstu viku. Þannig að námskeiðið varð til þess að úr varð alvöru pönkhljómsveit.“ Næst á dagskrá hjá Gígju er að halda sams konar námskeið fyrir eldri borgara og lýsir því Gígja eftir fólki yfir 65 ára sem langar að stofna pönkhljómsveit. „Þetta námskeið verður haldið í samvinnu við Reykjavík Dance Festival. Hátíðin í ár er samfélags- miðuð og er verkunum ætlað að skoða jaðar- og minnihlutahópa í samfélaginu, ásamt því að reyna að gera dansinn sem aðgengilegastan fyrir alla. Það er svo fastur stimpill á dansinum að hann sé bara fyrir ungt fólk, eins og maður sé bara brunninn út sem dansari þegar maður er 35 ára. Þannig að mig langar að leika með þessi ímynduðu aldurstakmörk.“ Pönkið er drifkraftur Hún segir pönkið hafa líka meira verið tengt við yngra fólk í gegnum árin. „Mér finnst ótrúlega spennandi og áhugavert að sjá hvernig þroskað pönk kemur út. Svo held ég að það sé líka hollt og gaman fyrir eldra fólk að fá einhvers konar pláss til að skapa á þennan hátt. Margir gefa sjálfum sér minna frelsi í tilrauna- starfsemi og flipp þegar þeir eldast. Mig langar að eiga samtal við þessa kynslóð og draga hana inn í dans- inn. Ég nota pönkið sem drifkraft. Þetta er form sem við erum að leika okkur með sem er frelsandi og gefur fólki rými til að finna sína rödd.“ Því óskar Gígja eftir að heyra frá eldri og heldri borgurum sem hafa áhuga á pönki, dansi eða bara langar að prófa eitthvað nýtt. Hægt er að senda inn spurningar og umsókn á tölvupóstfangið gigjajons@gmail. com. steingerdur@frettabladid.is Pönkhljómsveit fyrir eldri borgara Gígja Jónsdóttir leitar að eldri borgurum sem langar að taka þátt í námskeiði sem spratt upp úr gjörningi. Á námskeiðinu verða þátt- takendum lagðar línurnar um hvernig skuli stofna pönkhljómsveit. MARGIR GEFA SJÁLF- UM SÉR MINNA FRELSI Í TILRAUNASTARFSEMI OG FLIPP ÞEGAR ÞEIR ELDAST. MIG LANGAR AÐ EIGA SAMTAL VIÐ ÞESSA KYNSLÓÐ OG DRAGA HANA INN Í DANSINN. Gígja vonast til að heyra frá sem flestum eldri borgurum sem hafa áhuga á að taka þátt í námskeiðinu. 2 3 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R22 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 2 3 -1 0 -2 0 1 9 0 5 :2 0 F B 0 4 8 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 4 1 0 -2 4 3 0 2 4 1 0 -2 2 F 4 2 4 1 0 -2 1 B 8 2 4 1 0 -2 0 7 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 4 8 s _ 2 2 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.