Fréttablaðið - 23.10.2019, Side 34

Fréttablaðið - 23.10.2019, Side 34
Skotsilfur Mótmælendur í Síle fara ránshendi um verslanir Síleskur hermaður stendur vörð í matvöruverslun í höfuðborginni Santiago sem mótmælendur fóru ránshendi um. Eftir að Sebastian Piñera forseti frestaði 3,5 prósenta hækkun á lestarmiðum og lýsti yfir neyðarástandi mögnuðust mótmælin í Síle. Mótmælendur hafa rænt og kveikt í verslunum. Á meðal þess sem þeir krefjast eru úrbætur í heilbrigðismálum, lífeyriskerfinu og samgöngumálum. NORDICPHOTOS/GETTY Mikið væri það nú þægi-legt ef hægt væri að verð-leggja vöru og þjónustu, nákvæmlega eins og framleiðand- anum hentaði. Ef ekkert væri til sem héti samband verðs og gæða, verðteygni eftirspurnar og hvað þá samkeppni við aðra framleið- endur. Draumland framleiðenda en kannski martröð neytenda? Það mætti stundum halda af máli fólks og framgöngu að Ísland sem ferðamannaland sé í nákvæm- lega þessari draumastöðu. Það skipti hreinlega engu máli hvernig rekstrar umhverfi ferðaþjónustu sé, það sé bara hægt að hækka verð endalaust. Það sé jafnvel æskilegt, því þá komi bara efnaðir gestir til Íslands, en ekki einhver bakpoka- lýður sem skilur ekkert eftir sig. Þeim sé hvort sem er alveg sama hvað hlutirnir kosta. Ísland er svo einstakt og frábært. Fátt er hins vegar jafn fjarri lagi og varasamt að ganga út frá því að neytendur, í þessu tilfelli erlendir ferðamenn, séu fífl. Staðreyndin er nefnilega sú, að þó svo að Ísland sé vissulega frábær áfangastaður, þá á hann í samkeppni við fjölda ann- arra frábærra áfangastaða um hylli ferðamanna. Samkeppnishæfni áfangastaða ferðamanna er samsett af mörgum þáttum, sem eru vegnir og metnir innbyrðis. Í glænýrri skýrslu Alþjóðaefnahagsráðsins um samkeppnishæfni áfangastaða, sem nær til 140 landa, og þar sem stuðst er við samkeppnisvísitölu The Travel & Tourism Competitive- ness, lendir Ísland í 30. sæti af 140 þjóðum. Ísland hefur lækkað um 12 sæti á þessum lista frá árinu 2015 og er mun neðar en helstu keppinaut- ar. Þegar litið er til einstakra þátta, þá er Ísland reyndar að skora mjög hátt í mörgum ráðandi þáttum, svo sem friði, öryggi, vatnsgæðum, jarð- varma og mannauði. Á hinn bóginn er samkeppnisstaðan af leit þegar kemur að verðlagi. Á þann mæli- kvarða er Ísland í 138. sæti af 140 þjóðum. Í topp þremur, yfir dýrustu ferðamannalönd í heimi. Hvað er það sem gerir samkeppn- isumhverfi íslenskrar ferðaþjón- ustu eins slæmt og raun ber vitni? Getum við breytt stöðunni? n Hár launakostnaður: Launa- kostnaður á Íslandi er með því hæsta sem þekkist í heiminum og tugum prósenta hærri í er- lendri mynt, en í flestum okkar samkeppnislöndum. n Launatengd gjöld: Þessi kostnaðarþáttur gleymist oft í umræðunni, en er töluvert hærri hér en víðast hvar annars staðar. Hér skal sérstaklega nefnt tryggingargjaldið, sem er öllum atvinnurekendum þyrnir í augum. n Grænir skattar: Fara hækkandi og þykir ekki við hæfi að gagn- rýna það – en það hlýtur að vera sjálfsögð krafa að stjórnvöld birti bókhald yfir ráðstöfun þeirra. Almenn skattbyrði er hlutfalls- lega há á Íslandi. Í því samhengi vil ég sérstaklega nefna há fasteigna- gjöld, sem hafa hækkað um 35% frá árinu 2012, án þess að aukin þjónusta við fyrirtæki hafi komið á móti. Svört og ólögleg starfsemi er enn allt of útbreidd og skekkir inn- byrðis samkeppnisstöðuna veru- lega. Fíllinn í stofunni er samt gengi íslensku krónunnar. Það er sorg- legt en því miður satt að tiltölulega litlar sveif lur í gengi krónu gagn- vart helstu viðskiptamyntum, geta skilið á milli feigs og ófeigs í rekstri ferðaþjónustufyrirtækja. Því miður er það svo að krónan er enn of sterk til að ferðaþjónustan geti dafnað á sjálf bæran hátt, miðað við það erfiða rekstrarumhverfi sem hún hrærist í. Það er beint samhengi á milli gengisvísitölu og eftirspurnar eftir íslenskri ferðaþjónustu og það eru bein tengsl á milli gengisvísi- tölu og afkomu íslenskra ferðaþjón- ustufyrirtækja. OECD telur í nýlegri úttekt að samdráttur í ferðaþjónustu sé stærsta ógnin í þjóðarbúskapnum um þessar mundir. Því hlýtur það nú að vera mikilvægasta verkefni stjórnvalda að stuðla að bættu samkeppnisumhverfi greinarinnar. Það er hægt með því að draga úr skattbyrði og stuðla að því að hag- stjórnin og stjórn efnahagsmála í landinu taki meira mið af hags- munum stærstu útflutningsgreinar landsins. Og þar með möguleikum hennar til að skapa enn meiri verð- mæti fyrir samfélagið allt. Stærsta ógnin  Bjarnheiður Hallsdóttir formaður Sam- taka ferðaþjón- ustunnar Kolefnisfótspor Íslendinga hefur stækkað mikið síð-ustu áratugi og sífellt f leiri virðast reiðubúnir að leggjast á árarnar til að snúa þeirri þróun við. Stundum hefur verið talað fyrir því að lausnin sé að draga úr hagvexti. Miðað við sögulega þróun er það þó ekki endilega að sjá. Undanfarinn áratug hefur losun koltvísýrings (CO2) í hlutfalli við efnahagsumsvif (landsframleiðslu) lækkað um 9% á grundvelli fram- leiðslu en 36% ef horft er á hvar endanleg neysla á sér stað, eða kolefnisfótsporið. Frá 1970 nemur lækkun hvors tveggja meira en 50%. Lækkunin hefur að mestu orðið án þess að að því hafi verið sérstaklega stefnt, heldur einfald- lega með betri tækni og nýtingu framleiðsluþátta Það má því rétt ímynda sér hversu mikið er hægt að draga úr losun þegar stjórnvöld, atvinnu- lífið og landsmenn allir róa saman Meira fyrir minna Konráð Guðjónsson RÁÐDEILDIN 3 2,5 1,5 1 0,5 1970 2017 2 ✿ Losun CO2 í hlutfalli við landsframleiðslu CO2 í grömmum á hverja krónu í landsframleiðsu á verðlagi 2017* að því markmiði á sama tíma og stuðlað er að sköpun starfa og tækniframförum, sem einnig er kallað hagvöxtur. n Á grundvelli neyslu (kolefnisfótspor) n Á grundvelli framleiðslu Það skipti hreinlega engu máli hvernig rekstarumhverfi ferðaþjón- ustu sé, það sé bara hægt að hækka verð endalaust. Það sé jafnvel æskilegt, því þá komi bara efnaðir gestir til Íslands, en ekki einhver bak- pokalýður sem skilur ekkert eftir sig. 36% nemur minnkun á losun koltvísýrings sem hlutfall af landsframleiðslu á síðasta áratug. Óháður Gylfi Magnús- son, dósent og formaður bankaráðs Seðlabankans, fór mikinn á Facebook eftir að hafa frétt af nýju frum- varpi um samkeppnislög og taldi annarlega hvatir liggja að baki. Framkvæmdastjóri SA sagði að Gylfi þyrfti að gæta orða sinna í ljósi stöðu sinnar hjá bankanum en Gylfi lét ekki segjast. Sagðist hann hafa látið orðin falla í krafti þess að hafa á árum áður verið formaður stjórnar Samkeppniseftirlitsins og skrifað um samkeppnismál sem háskólakennari. Gylfi gleymdi hins vegar að geta þess að hann hefur veitt Samkeppniseftirlitinu ráðgjöf um hagfræðileg málefni frá 2013. Verður hann seint talinn óháður fræðimaður í þessum efnum. Stórt tækifæri Bretarnir vilja selja sig út úr Dom- ino’s á Ísland og þá hugsar Birgir Örn Guðmunds- son forstjóri sér eflaust gott til glóðarinnar enda er hann í kjörstöðu. Birgir er nýbúinn að selja hlut sinn í keðjunni með góðum hagnaði og þekkir félagið manna best eftir farsæla uppbygg- ingu. Áhugasamir fjárfestar vilja vafalaust fá hann í lið með sér. Í samtali við RÚV á dögunum virtist glitta í áform Birgis. Hann sagði að það væri tækifæri til staðar en að hann ætlaði „aðeins að leyfa þessu að spilast út“. Með og á móti Fram undan er risavaxin ákvörðun um eignarhald ríkisins á tveimur bönkum og því kjörið tækifæri fyrir stjórn- málamenn að skora ódýr stig hjá kjósendum. Það tekst misvel. Oddný Harðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, sagði sporin hræða. Sala á hlut í bönkum yrði ekki til þess að losa ríkið undan áhættu af bönkum þar sem ríkið myndi hvort eð er koma kerfislega mikilvægum bönkum til bjargar. Fjármálaráðherra benti réttilega á að Oddný hefði 2012 mælt fyrir frumvarpi um sölu á eignarhlut ríkisins í bönkunum. Þá var hún sjálf fjármálaráðherra. 2 3 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R10 MARKAÐURINN 2 3 -1 0 -2 0 1 9 0 5 :2 0 F B 0 4 8 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 4 1 0 -2 E 1 0 2 4 1 0 -2 C D 4 2 4 1 0 -2 B 9 8 2 4 1 0 -2 A 5 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 4 8 s _ 2 2 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.