Fréttablaðið - 28.10.2019, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 28.10.2019, Blaðsíða 46
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Svava O’Brien svava@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is www.husgagnahollin.is Sími: 558 1100 * Taxfree tilboðið gildir af öllum vörum nema vörum frá IITTALA og SKOVBY og jafngildir 19,35% afslætti. Að sjálfsögðu fær ríkissjóður virðisaukaskatt af söluverði. Afslátturinn er alfarið á kostnað Húsgagnahallarinnar. Allar vörur á taxfree tilboði* TAX FREE LÝKUR Í DAG M ÁNUDAG 28. OKT. www.husgagnahollin.is V E F V E R S L U N A LLTAF OP IN Sjálfur lýsir Þórarinn Leifs-son, Tóti Leifs, sér sem pönkara, götu- og skilta-má la ra, my nd sk rey t i, vefsmið, rithöfundi og fyrirlesara sem varð loks leiðsögumaður um hálendi Íslands fyrir örfáum misserum eftir að hann flutti heim frá Berlín, fráskilinn og skítblankur. „Mig hafði lengi langað til að prófa að „gæda“ og tækifærið kom þegar ég skildi fyrir tveim árum og brotlenti á Íslandi,“ segir Tóti en hann og rit- höfundurinn Auður Jónsdóttir höfðu búið í Berlín með syninum Leifi Ottó í nokkur ár þegar þau slitu samvist- um eftir tæp tuttugu ár. Blankur alla öldina R it höf u ndar fer il l Tót a hófst með bar nabók inni Ley ndar- málið hans pabba sem kom út haustið 2007 og hann mynd- skreytti sjálfur. Hann segir það hins vegar gera lítið fyrir efnahag- inn að vera vinsæll rithöfundur. „Ég hef bara ekki átt bót fyrir bor- una á mér mest alla þessa öld. Ég hef vissulega fengið góða dóma og alls- konar fín boð til útlanda en það skil- ar sér sjaldnast í bankann,“ segir Tóti sem hefur gengið ágætlega að safna gulli á hringnum rómaða í kringum Geysi og Gullfoss. „Tekjurnar skipta miklu máli og ég er búinn að hreinsa upp einhverjar milljónir í gamlar listamannaskuldir á síðustu tveimur árum,“ segir Tóti um leiðsögumannsstarfið sem sé auðvitað ekki fyrir hvern sem er. „Ég fór í einhverja 170 túra á tólf mán- aða tímabili þegar ég var að koma mér almennilega inn í bransann. Það er stór plús að vera einhleypur og eiga sveigjanlega barnsmóður. Ég hef getað stokkið í alls konar túra með stuttum fyrirvara.“ Tíðindamikið á ferðaþjónustu- vígstöðvunum Rithöfundurinn í Tóta hrökk í gang á endalausu hringferðalaginu og fann innblástur í bekk við Gullfoss þann- ig að úr varð bókin Bekkurinn – dag- bók í Gullhring en hann er byrjaður að safna á Karolina Fund fyrir útgáf- unni sem er fyrirhuguð í nóvember. „Ég var að taka mynd af bekknum í hverjum Gullhring og einhvern tímann datt mér í hug að tengja myndirnar við búta úr dagbók og gefa hverjum túr einkunn að hætti TripAdvisor,“ segir Tóti um tilurð bókarinnar. „Og úr þessu varð bók með myndum úr 76 gullhringjum á einu ári þannig að segja má að þetta sé bók með myndum frá víg- velli ferðaþjónustunnar árin 2018 til 2019.“ Bekkurinn – dagbók í Gullhring veiti þannig innsýn í tólf mánaða tímabil. „Þegar ferðamannabólan náði hámarki á Íslandi. Myndirnar sýna síbreytilega veðráttu um leið og textinn greinir frá fjölbreyttri mann- lífsflóru og eintóna hversdagsleika miðaldra manns á krossgötum. Á vertíð sem virðist aldrei taka enda.“ Leitin að gleðinni Tóti hefur áður verið miðpunktur eigin verks með góðum árangri í skáldævisögunni Götumálarinn frá 2011 þar sem hann sagði frá þvælingi sínum sem ungur maður um Vestur- Evrópu upp úr miðjum níunda ára- tug síðustu aldar. „Bekkurinn er sjálfsævisaga eins og Götumálarinn,“ segir Tóti sem telur enga hættu á að með þessum bókum segi hann skilið við barna- bækurnar. „Ég sé ekki neina stefnu- breytingu fyrir utan að tekjumódelið hefur gjörbreyst. Ég er enn þá að fá hugmyndir að bókum fyrir börn og fullorðna og koma þeim í verk.“ Þá stefnir hann heldur ekki á að verða einyrki á bókamarkaði þótt hann hafi kosið að gefa nýju bókina út sjálfur með hópfjármögnun. „Ég er ekkert endilega leiður á útgefendum, kannski frekar á bókmenntaheim- inum sem slíkum. Við rithöfundar erum oft eins og hræddar mýs ein- hvers staðar úti í horni að sífra um bág kjör meðan útgefendur marséra um eins og foringjar útrýmingar- búða,“ segir Tóti og bætir við að hann hafi fundið þörf fyrir „smá pásu frá þessari stemningu. Ég þurfti að senda frá mér bók á eigin forsendum og finna aftur gleðina við að gefa út. Það er hins vegar mjög mikið af góðu fólki að vinna hjá Forlaginu sem gladdi mig mikið með því að verða fyrst til að styrkja útgáfuna á Kar- olina Fund. Svo er ég með handrit að „gæda“-krimma sem ég vil helst klára með Forlaginu, því þar eru frábærir ritstjórar sem geta stundum kveikt í manni.“ toti@frettabladid.is Skítblankur á túristavertíð Fyrir tveimur árum brotlenti rithöfundurinn Þórarinn Leifsson á Íslandi, fráskilinn og svo blankur að hann fór á ferðaþjónustuvertíð. Við Gullfoss rumskaði svo rithöfundurinn og í nýrri bók gerir hann upp heilt ár af Gullhringjum. Tóti segir Þjóðverjana ýmist hundleiðinlega eða langskemmtilegustu ferðaskjólstæðingana. MYND/MIKKEL HØRLYCK VIÐ RITHÖFUNDAR ERUM OFT EINS OG HRÆDDAR MÝS EINHVERS STAÐAR ÚTI Í HORNI AÐ SÍFRA UM BÁG KJÖR MEÐAN ÚTGEF- ENDUR MARSÉRA UM EINS OG FORINGJAR ÚTRÝMINGARBÚÐA. 2 8 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 M Á N U D A G U R22 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 2 8 -1 0 -2 0 1 9 0 5 :1 5 F B 0 4 8 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 4 1 7 -B 9 D C 2 4 1 7 -B 8 A 0 2 4 1 7 -B 7 6 4 2 4 1 7 -B 6 2 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 4 8 s _ 2 7 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.