Fréttablaðið - 28.10.2019, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 28.10.2019, Blaðsíða 14
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@ frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf Ábyrgðarmaður: Jóhanna Helga Viðarsdóttir Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@ frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103, Eydís segir að þau hjónin séu með það á dagskrá að taka alla íbúðina í gegn, taka niður veggi og gera nýja, stækka eldhús og sameina það stofu og borðstofu og skipta um öll gólfefni. „Við byrjum á þeim framkvæmdum eftir áramót,“ segir Eydís. Baðherbergið, forstofan og loftin hafa nú þegar verið tekin í gegn og eins og sést á myndunum er bað- herbergið mikið breytt. „Baðher- bergið var upprunalegt og okkur fannst það mjög ljótt,“ segir Eydís. Þau hjónin skiptu baðkarinu út fyrir stóra og rúmgóða sturtu. Sturtubotninn er steinn frá Inn- réttingum og tækjum. Stærðin á botninum er 160x90cm en Eydís telur mikinn kost að hafa gott pláss í sturtunni. Innréttingarnar keyptu þau í Ikea en hái skápurinn er hugsaður sem eldhússkápur. „Ég valdi hann vegna þess að hann er rúmbetri en háu baðskáp- arnir. Höldurnar fann ég í Brynju á Laugavegi því ég fílaði ekki þær sem fylgdu innréttingunni,“ segir Eydís. Þau Eydís og Viðar hönnuðu baðherbergið sjálf. Eydís segir mikilvægt að hafa það í huga þegar gerðar eru breytingar að hanna alla þætti svo fólk rekist síður á veggi. „Við til dæmis lentum í vandræðum með loft- ræstingu þar sem baðherbergið er gluggalaust. Við vildum ekki að það myndaðist móða þó við færum í langa sturtu, en við leystum það á endanum.“ Þau hjónin unnu líka alla vinnuna við breytingarnar sjálf. „Viðar færði lagnir til þess að þær væru þar sem við þurftum að hafa þær, hann getur allt þessi maður,“ segir Eydís. Fiboplöturnar á veggjunum heita Cracked Cement en einn og hálfur veggur er málaður. „Flís- arnar fengum við í Múrbúðinni og handklæðaofninn er frá Bauhaus.“ Eydís segir það ekki hafa verið neinn vanda fyrir þau hjónin að koma sér saman um breytingarn- ar. „Við vorum ótrúlega sammála, við vorum til dæmis ekki nema korter að velja f lísarnar og litinn á fiboplötunum.“ Svona leit bað- herbergið út fyrir breytingar. Eftir breytingar. Fiboplöturnar heita Cracked Cement. Handklæðaofninn er frá Bauhaus. Sturtubotninn er steinn frá Innréttingum og tækjum. Baðherbergið er stílhreint og litirnir tóna vel saman. Klósettið er frá Ísleifi Jónssyni. Hringspegillinn er frá Ikea. Eydís og Viðar keyptu innréttinguna í Ikea. Stóri skápurinn var hugsaður sem eldhússkápur. Hann var valin vegna þess hversu rúmgóður hann er. Sandra Guðrún Guðmundsdóttir sandragudrun@frettabladid.is Framhald af forsíðu ➛ Við vorum ótrú- lega sammála, við vorum til dæmis ekki nema korter að velja flísarnar og litinn á fiboplötunum Eydís Eiríksdóttir 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 8 . O K TÓ B E R 2 0 1 9 M Á N U DAG U R 2 8 -1 0 -2 0 1 9 0 5 :1 5 F B 0 4 8 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 1 7 -B 4 E C 2 4 1 7 -B 3 B 0 2 4 1 7 -B 2 7 4 2 4 1 7 -B 1 3 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 4 8 s _ 2 7 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.