Fréttablaðið - 26.10.2019, Page 6
Notkun: 2 hylki tvisvar á dag við vægum gigtarverkjum. Notist ekki ef ofnæmi fyrir jarðhnetum eða soja, eða sár
í maga eða þörmum er þekkt. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til
læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um
lyfið á www.florealis.is og www.serlyfjaskra.is.
Haltu þínu striki!
Harpatinum er eina viðurkennda jurtalyfið
á Íslandi til að draga úr gigtarverkjum
Fæst án lyfseðils í næsta apóteki www.florealis.is
Enski boltinn
frá Síminn Sport
á Nova TV
2.500 kr./mán.
með ótakmörkuðum Ljósleiðara hjá Nova.
Verð áður 4.500 kr./mán.
DÓMSMÁL Kæra Skúla Gunnars
Sigfússonar, sem kenndur er við
Subway, og viðskiptafélaga hans
á hendur Sveini Andra Sveinssyni
hæstaréttarlögmanni hefur verið
felld niður af héraðssaksóknara.
Var Sveinn Andri kærður í nóvem-
ber 2017 fyrir meintar ólögmætar
þvinganir og rangar sakargiftir í
tengslum við störf sín sem skipta-
stjóri félagsins EK1923 ehf.
„Þetta var algjörlega viðbúið.
Það var ekki einu sinni talið tilefni
til að taka af mér skýrslu þetta var
svo mikið bull. Þannig að ég hafði
aldrei áhyggjur af því að þetta yrði
ekki fellt niður,“ segir Sveinn Andri.
„Svona getur oft tekið tíma, það er
eins og gengur, en það lá alltaf fyrir
hvernig þetta færi.“
Þessi kæra er aðeins einn angi
málsins. Á borði héraðssaksókn-
ara liggur enn kæra Sveins Andra
á hendur Skúla Gunnari og Guð-
mundi Hjaltasyni, framkvæmda-
stjóra Sjöstjörnunnar ehf. Snýr sú
kæra að meintum skilasvikum og
fjárdrætti. – ab
Kæra á hendur Sveini Andra felld niður
Sveinn Andri Sveinsson lögmaður.
FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
LÖGREGLUMÁL Ellefu lögreglumenn
hafa verið ákærðir fyrir brot í starfi
frá því embætti héraðssaksóknara
var stofnað árið 2016 en það fæst
meðal annars við rannsóknir mála
gegn lögreglu og fer með ákæruvald
í málum gegn lögreglumönnum.
Fréttablaðið óskaði þessara upplýs-
inga frá embætti héraðssaksóknara.
Málin skiptast jafnt milli áranna
þannig að þrír hafa verið ákærðir á
hverju þessara ára en á yfirstand-
andi ári hafa tveir verið ákærðir.
Sakfellt hefur verið í ellefu málum
og sýknað í einu. Tveimur málum
er ólokið.
Samkvæmt ársskýrslu Ríkis-
saksóknara fyrir 2018, voru sam-
tals 102 kærur lagðar fram gegn
lögreglumönnum á árunum 2016,
2017 og 2018. Aðeins var ákært í
níu málum fyrir brot í starfi. Lang-
flestum kærum var vísað frá, málið
fellt niður eða fallið frá kæru.
Málin eru misalvarleg. Í nokkrum
tilvikum er bæði ákært fyrir brot í
starfi og fyrir líkamsmeiðingar af
gáleysi. Í þeim tilvikum er gjarnan
tekist á um fyrir dómi hvort réttum
aðferðum hafi verið beitt við hand-
töku. Fyrr á árinu var lögreglumað-
ur sakfelldur fyrir líkamsmeiðingar
af gáleysi er maður fótbrotnaði í
handtöku við það að bílhurð lög-
reglubíls var ítrekað skellt á fætur
hans. Lög reglumaður inn var
Þrír ákærðir fyrir brot
í starfi árlega frá 2016
Ellefu lögreglumenn hafa verið ákærðir fyrir brot í starfi á fjórum árum.
Fyrsti sýknudómurinn féll í síðustu viku. Átta hafa verið sakfelldir. Lang-
flestum málum var vísað frá. Þyngsti dómurinn er 15 mánaða fangelsi.
Lögreglumenn fjölmenntu í héraðsdóm til að vera við dómsuppsögu í máli vinnufélaga síns. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
dæmdur til greiðslu 200 þúsund
króna sektar auk greiðslu bóta til
brotaþolans. Hann var sýknaður af
ákæru um brot í starfi.
Algeng refsing fyrir brot lögreglu-
manns í starfi er 30 daga fangelsi. Í
fyrra var refsing lögreglumanns
milduð úr 60 daga fangelsi niður
í 30 daga en hann játaði að hafa
farið offari og ekki gætt lög mætra
aðferða þegar hann hugðist f lytja
brotaþola úr fanga geymslu og fyr ir
dóm ara.
Þyngsti dómur yfir lögreglu-
manni sem kveðinn hefur verið
upp á undanförnum árum er 15
mánaða fangelsi sem Jens Gunnars-
son, lögreglumaður hjá lögreglunni
á höfuðborgarsvæðinu, fékk fyrir að
hafa veitt brotamanni upplýsingar
sem þagnarskylda ríkti um og fyrir
að hafa, í tengslum við framkvæmd
starfa sinna, heimtað af honum fé í
SMS-skilaboðum.
Sýknudómur í máli Bjarna Ólafs
Magnússonar fyrr í vikunni er fyrsti
sýknudómur í máli um brot lög-
reglumanns í starfi sem kveðinn
er upp frá því ákæruvald í mála-
f lokknum f luttist til héraðssak-
sóknara árið 2016.
Eins og fjallað var um í Frétta-
blaðinu í vikunni telur héraðssak-
sóknari hins vegar ýmsa vankanta
vera á fyrirkomulagi bæði rann-
sókna og saksóknar fyrir refsiverð
brot lögreglumanna. Þetta kemur
fram í umsögn héraðssaksóknara til
allsherjar- og menntamálanefndar
um tillögu Pírata um sjálfstætt eftir-
lit með starfsemi og starfsháttum
lögreglu. Þeir þættir sem nefndir
eru í umsögninni lúta að megin-
reglunni um hlutleysi og sjálfstæði
ákæruvaldsins. Það hendi oft að
sama atvik leiði bæði til rannsóknar
á broti gegn valdstjórninni og broti
lögreglumanns. Við það bætist að
helstu vitni ákæruvaldsins koma
gjarnan úr hópi lögreglumanna
sem eru þá eftir atvikum vinnufé-
lagar hins ákærða.
Við svipaðan tón k veður í
umsögn nefndar um eftirlit með
lögreglu, um sama þingmál og telur
nefndin að þörf sé fyrir öf lugra
eftirlit með lögreglu og ríkari og
víðtækari rannsóknarheimildir en
nefndin hefur nú.
adalheidur@frettabladid.is
Ákærur Sakfelling Sýkna Ólokið
‘16 3 3
‘17 3 2 1
‘18 3 3
‘19 2 1 1
✿ Kærur á hendur
lögreglumönnum
*Aflað hjá héraðssaksóknara 24.10.’19
2 6 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
HVAÐ ER AÐ
FRÉTTA?
Frettabladid.is færir þér nýjustu
fréttir dagsins og ítarlega umöllun
um málefni líðandi stundar.
Ekki missa af neinu, fylgdu
Fréttablaðinu á Facebook
2
6
-1
0
-2
0
1
9
0
4
:4
1
F
B
0
8
8
s
_
P
0
8
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
7
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
1
6
-B
9
1
C
2
4
1
6
-B
7
E
0
2
4
1
6
-B
6
A
4
2
4
1
6
-B
5
6
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
8
8
s
_
2
5
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K