Fréttablaðið - 26.10.2019, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 26.10.2019, Blaðsíða 16
VR óskar eftir orlofshúsum VR óskar eftir að leigja vönduð sumar hús eða orlofsíbúðir til framleigu fyrir félagsmenn sína. Leitað er eftir húsnæði á landsbyggðinni fyrir næsta sumar. Áhugasamir sendi upplýsingar á vr@vr.is fyrir 15. nóvember 2019. Eftirfarandi upplýsingar þurfa að fylgja: VR • Kringlunni 7 • 103 Reykjavík • Sími 510 1700 • vr@vr.is • vr.is • Lýsing á eign og því sem henni fylgir • Ástand íbúðar og staðsetning • Stærð, fjöldi svefnplássa og byggingarár • Lýsing á möguleikum til útivistar og afþreyingar í næsta nágrenni Öllum tilboðum verður svarað. FÓTBOLTI Erling Braut Håland skoraði í vikunni bæði mörk austurríska liðsins Salzburg þegar liðið laut í lægra haldi fyrir Napoli í riðlakeppni Meistaradeildar Evr­ ópu í knattspyrnu karla. Þessi 19 ára gamli leikmaður hefur þar af leiðandi skoraði sex mörk í riðla­ keppninni og er markahæsti leik­ maður keppninnar, með einu marki meira en Robert Lewandowski. Stóru liðin í Evrópu eru farin að renna hýru auga til þessa stóra og stæðilega framherja en Ole Gunnar Solskjær, knattspyrnustjóri Man­ chester United, hefur ákveðið for­ skot í þeim efnum þar sem hann þjálfaði hann hjá norska liðinu Molde á sínum tíma. Lét til sín taka 15 ára gamall Håland ólst upp hjá Bryne þar sem hann spilaði sinn fyrsta aðalliðsleik í norsku B­deildinni einungis 15 ára. Þá hafði hann þar áður skorað 18 mörk í 14 leikjum fyrir varalið félagsins. Molde festi svo kaup á kauða í febrúarbyrjun árið 2017 en þá var hann 16 ára. Það er skap í þessum hæfileika­ ríka leikmanni en í fyrsta deildar­ leiknum sem hann spilaði var hann áminntur með gulu spjaldi rúmri mínútu eftir að hann kom inn á. Fyrsta markið í norsku efstu deildinni kom svo þegar hann tryggði Molde sigur á Tromsö og skömmu síðar sá Håland til þess að Molde færi með þrjú stig úr leik gegn Viking Stavanger. Eftir þann leik siðaði Björn Berg­ mann Sigurðarson, sem lék með Håland á þeim tíma og skoraði einnig í leiknum, samherja sinn Norðmenn að eignast rísandi stjörnu Nafn norska sóknarmannsins stóra og stæðilega Erlings Braut Håland er á allra vörum þessa stundina. Håland, sem hefur komið eins og stormsveipur inn í evrópska knattspyrnuheiminn í haust, raðar inn mörkum fyrir austurrísku meistarana í Red Bull Salzburg. Håland fagnar marki gegn Napoli í vikunni. NORDICPHOTOS/GETTY til. Birni Bergmann fannst Håland sýna stuðningsmönnum Viking Stavanger vanvirðingu með því að fagna markinu af of miklum ákafa fyrir framan þá. Strax ljóst í hvað stefndi Tímabilið þar á eftir gerði svo hinn ungi og efnilegi leikmaður sem hafði brotist fram á sjónarsviðið sig enn meira gildandi og skoraði 12 mörk í 25 leikjum fyrir Molde sem varð í öðru sæti norsku efstu deildarinnar annað árið í röð. Hann skoraði meðal annars öll fjögur mörk Molde í 4­0 sigri á Brann sem þá var taplaust á toppi deildarinnar. Eftir þann leik sagði Solskjær, sem þá var þjálfari Molde, að félög í Evrópu væru farin að bera víurnar í hann og seinna spurðist út að útsendari Manchester United hefði verið á leiknum. Håland skoraði 16 mörk í 30 leikj­ Gæti orðið sá besti „Håland er stjarnan í Austur- ríki þessa stundina. Þrátt fyrir ungan aldur gæti hann orðið einn besti leikmaður sem hefur spilað í Austurríki. Hann er stór, sterkur, fljótur og frábær í að klára færi. Ég hef aldrei séð jafn heilsteyptan framherja á þessum aldri, hvorki í Austurríki né á alþjóðlegu sviði og ef hann spilar rétt úr spilunum gæti hann orðið sá besti í heiminum. Það veltur á því hversu langt Salzburg fer í Evrópu hversu lengi þeir ná að halda honum, Håland og fjölskylda hans eru mjög varkár um að taka rétt skref,“ sagði David Eder, lýsandi hjá Sky Sports í Austurríki, sem hefur fylgst vandlega með Hå- land. „Hugmyndafræði Salzburg hentar honum vel, hraður sóknarleikur. Leikaðferð mun að ég held skipta miklu máli þegar hann velur sér næsta lið, það hentar honum ekki jafn vel að spila í varnarsinnuðu liði. Það spilaði stórt hlutverk hjá Erling að fara í réttar aðstæður fyrir næsta skref og Salzburg reynd- ist heillaskref. Það var ljóst strax að hann væri framtíðarstjarna,“ sagði David um Håland sem er orðaður við öll stærstu lið heims um þessar mundir. „Viðskiptahugmynd Salzburg gengur út á að fá unga leik- menn, móta þá og selja í stærstu deildirnar eins og Sadio Mane og Naby Keita.“ um fyrir Molde í öllum keppnum og nokkuð ljóst var að Molde myndi ekki njóta krafta hans á næsta keppnistímabili. Sumarið 2018 var hann svo seldur til austurríska orkudrykkjaliðsins Red Bull Salz­ burg en hann gekk í raðir í félagsins í ársbyrjun 2019. Gullkynslóð Noregs Það hefur ekki tekið langan tíma fyrir Håland að aðlagast austur­ rísku deildinni eða Meistaradeild Evrópu. Hann skoraði 11 mörk í fyrstu sjö deildarleikjum og þrenna hans í sigri gegn Genk í riðlakeppni Meistaradeildarinnar var sú fjórða fyrir Red Bull Salzburg. Lars Lagerbäck, þjálfari norska landsliðsins, heillaðist af frammi­ stöðu hans með Red Bull Salzb­ urg og valdi hann í A­landsliðið fyrir leiki gegn Möltu og Svíþjóð í undankeppni EM 2020 í byrjun september. Þá hafði hann einnig raðað inn mörkum fyrir U­20 ára landslið Noregs en á HM U­20 ára liða í sumar skoraði hann níu mörk í 12­0 sigri á Hondúras sem tryggði honum gullskóinn á mótinu. Þetta er enn fremur það mesta sem nokk­ ur leikmaður hefur skorað í einum leik á þessu móti. Håland spilaði sinn f y rsta A­ landsleik á móti Möltu en nokk­ uð ljóst er að landsleikirnir verða f leiri í framtíðinni. Eftir mögur ár hjá Noregi eru bjartir tímar fram undan hjá liðinu þar sem Håland, Kristoffer Ajer, Sander Berge, Mart­ in Ødegaard og Mathias Normann munu taka við kef linu sem lykil­ leikmenn liðsins. hjorvaro@frettabladid.is HANDBOLTI Íslenska karlalands­ liðið í handbolta vann Svía 27­26 í fyrri æfingaleik liðanna í gær en liðin mætast á ný á morgun. Þetta var fimmta viðureign Íslands og Sví­ þjóðar eftir að Kristján Andrésson tók við sænska liðinu og fjórði sigur Strákanna okkar. Sóknarleikur Íslands var erfiður á upphafsmínútum leiksins og þegar Ísland fann leiðina fram hjá vörn Svíanna varði markvörður Svía vel á fyrstu mínútum leiksins. Það var því skiljanlegt að Guðmundur Þ. Guðmundsson skyldi taka leikhlé þegar tíu mínútur voru búnar af leiknum og Ísland ekki enn búið að skora. Öf lug íslensk vörn hélt spennu í leiknum og munaði aðeins þremur mörkum þrátt fyrir að Ísland ætti eftir að brjóta ísinn á fyrstu tíu mínútum leiksins. Þegar líða tók á fyrri hálf leik­ inn komst betra f læði í sóknarleik Íslands og voru Strákarnir okkar fljótir að koma sér inn í leikinn á ný. Munurinn var tvö mörk í hálfleik en þegar líða tók á seinni hálfleik­ inn náði Ísland frumkvæðinu og komst yfir í fyrsta sinn í leiknum. Liðin skiptust á forskotinu allan seinni hálf leikinn þrátt fyrir að íslenska liðið væri í villuvand­ ræðum með sex brottvísanir gegn fjórum hjá sænska landsliðinu. Tíu mínútum fyrir leikslok komst Svíþjóð tveimur mörkum yfir og voru Íslendingar manni færri en Strákunum okkar tókst að snúa leiknum sér í hag á síðustu tíu mínútum leiksins. Með öf lugum varnarleik var Ísland fljótt að jafna metin og með 6­3 kafla á seinustu tíu mínútunum náði Ísland að sigla fram úr. Sigvaldi Björn Guðjónsson var atkvæðamestur í íslenska liðinu með fimm mörk, næstir komu Kári Kristján Kristjánsson og Ólafur Andrés Guðmundsson með fjögur á heimavelli Ólafs í Kristianstad. Ólafur virtist njóta sín á heimavelli sínum og var duglegur að taka af skarið þegar með þurfti í sóknar­ leik Íslands. Í markinu varði Viktor Gísli átta bolta og Ágúst Elí tvo. Í fjarveru nokkurra lykilleik­ manna og þegar Aron Pálmarsson fékk snemma tvær brottvísanir í gær fengu óreyndari leikmenn tækifæri til að láta ljós sitt skína og stóðust þeir prófið vel . – kpt  Jákvæð teikn á lofti í íslenskum sigri í gær Viggó Kristjánsson fékk eldskírn sína í gær og varð um leið fyrsti Seltirningur- inn í A-landsliðinu fyrir utan Guðjón Val í tuttugu ár. 2 6 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R16 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SPORT 2 6 -1 0 -2 0 1 9 0 4 :4 1 F B 0 8 8 s _ P 0 8 8 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 7 3 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 1 6 -8 C A C 2 4 1 6 -8 B 7 0 2 4 1 6 -8 A 3 4 2 4 1 6 -8 8 F 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 8 8 s _ 2 5 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.