Fréttablaðið - 26.10.2019, Side 22
Það er auðveldara en áður að villast af leið, glans-myndirnar gera það að verkum að mínu mati,“ seg ir Björg v in Páll Gústavsson handbolta-
maður sem ætlar að f lytja heim til
Íslands frá Danmörku næsta sumar.
Hann tilkynnti forsvarsmönnum
Skjern ákvörðun sína fyrir nokkru.
Björgvin hefur verið í atvinnu-
mennsku ytra í ellefu ár og segir
ákvörðun sína og fjölskyldunnar
um að f lytja heim snúa að því að
verða betri manneskja. Styrkja
fjölskyldu- og vinabönd og huga að
andlegri heilsu.
„Árangur getur stundum leitt fólk
af réttri leið. Hann er svolítið hættu-
legur. Þá finnur maður fyrst fyrir
tóminu. Jim Carrey leikari hefur
velt þessu fyrir sér og sagðist óska
sér að allir fengju að prófa að verða
ríkir og frægir. Þá fyndi fólk fyrir
tómarúminu innra með sér.
Það er ævilangt verkefni að takast
á við það að vera góð manneskja og
gæta að andlegri heilsu sinni. Þetta
er sérstaklega vandasamt í dag því
samfélagið okkar er fullt af glans-
myndum. Samkvæmt Instagram
lifa allir hinu fullkomna lífi. Ég er
ekki á móti því að fólk setji inn fal-
legar myndir úr fríinu. En hið góða
líf er bara ósköp venjulegur hvers-
dagur. Bestu stundirnar verða ekki í
einhverju lúxuslífi, eða í því að lyfta
bikar. Þær eru faldar í hverjum degi.
Þær eru í rútínunni. Þegar þú sækir
börnin í leikskólann, þegar þú ert
með þeim að lita í stofunni heima.“
Kyngdi stoltinu
Björgvin Páll segist hafa þurft að
kyngja stoltinu þegar hann tók
ákvörðun um að breyta um áhersl-
ur og svo að hætta loks hjá Skjern.
„Það að kyngja egóinu og hætta
að hugsa allt út frá sjálfum sér var
það mikilvægasta sem ég hef gert á
mínum ferli. Bæði sem handbolta-
maður og manneskja. Ég ákvað að
styðja við árangur liðsins með því
að styrkja upprennandi markmann.
Það var það rétta að gera fyrir liðið
og hinum markmanni liðsins gekk
betur og betur. Hann var valinn
leikmaður ársins hjá klúbbnum,
markmaður ársins í Danmörku.
Ég fékk fyrir vikið minni og minni
spilatíma og setti mig sjálfur í þá
stöðu að vera í slakri leikæfingu og
ekki eins spennandi kostur fyrir
landsliðsþjálfarann,“ segir Björgvin
Páll sem segist þrátt fyrir það vera
sannfærður um að það hafi verið
rétt ákvörðun.
„Ég stend fyllilega við þá ákvörð-
un að láta mér standa á sama um
hver stóð í markinu eins lengi og
liðið náði árangri. Þetta hljómar
sem eðlileg hugsun innan liðs-
íþróttar en að mörgu leyti eru
íþróttamenn og þá sérstaklega í
atvinnumennsku í ákveðinni sam-
keppni við liðsfélaga sína um stöðu
í liðinu. Þetta er ómeðvitað kennt
upp alla yngri f lokka. Það að bera
sig saman við aðra og eins er það
mjög ríkt, sérstaklega í íslensku
samfélagi, að bera sig saman við
náungann. Þegar maður eldist og
þroskast fer aðeins að draga úr
þessu og maður byrjar hægt og
rólega að af læra mikið af þessum
hlutum. Það verður bara að koma
í ljós hvort þessi leið muni á end-
anum gera mig að betri markmanni
til lengri tíma litið.“
Fjölskylduvænt líf í Danmörku
Þótt Björgvin Pál og eiginkonu
hans, Karen Einarsdóttur, langi til
að flytja heim hefur lífið verið fjöl-
skyldunni gott í smábænum Skjern
í Danmörku. „Þetta er fjölskyldu-
vænt samfélag, við erum með þrjá
litla orma og sjáum ekki eftir því
að hafa saman tekið ákvörðun um
að flytja hingað fyrir einu og hálfu
ári síðan,“ segir Björgvin Páll. Þau
Karen eiga saman tvíburana Emil-
íu og Einar Leó, sem eru tæplega
tveggja ára gömul, og þá áttu þau
fyrir sex ára gamla stúlku, hana
„Ég ákvað að
skoða betur
hvað það var
sem gerðist
þegar ég var lítill
drengur.“
Draumurinn að verða
heimavinnandi húsfaðir
Björgvin Páll Gústavsson segir frá erfiðri barnæsku og glímu við kvíða og vanlíðan á
fullorðinsárum í nýrri bók, Án filters. Í einlægu viðtali segir hann frá því hvers vegna
hann ákvað að gera upp líf sitt og hvert hann stefnir. Honum finnst föðurhlutverkið mjög
mikilvægt og í lok ferils síns á hann sér þann draum að verða heimavinnandi húsfaðir.
Kristjana Björg
Guðbrandsdóttir
kristjana@frettabladid.is
2 6 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R22 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
6
-1
0
-2
0
1
9
0
4
:4
1
F
B
0
8
8
s
_
P
0
6
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
6
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
1
6
-C
2
F
C
2
4
1
6
-C
1
C
0
2
4
1
6
-C
0
8
4
2
4
1
6
-B
F
4
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
8
8
s
_
2
5
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K