Fréttablaðið - 26.10.2019, Qupperneq 26
23. júní 2016
n Bretland greiðir atkvæði um að
yfirgefa Evrópusambandið með
51,89% atkvæðum en 48,11% vildu
aðild áfram.
24. júní 2016
n David Cameron forsætisráð-
herra, sem mótfallinn var út-
göngu, tilkynnir afsögn sína.
13. júlí 2016
n Theresa May verður forsætis-
ráðherra.
28. mars 2017
n May undirritar bréf til Evrópu-
sambandsins með vísan í 50. gr.
Sáttmála Evrópusambandsins um
útgöngu. Þar með hefst formlega
útgönguferli Bretlands úr ESB.
9. júní 2017
n Í þingkosningum, boðuðum
með skömmum fyrirvara, tapar
Íhaldsflokkurinn meirihluta á
þingi. May þarf að mynda minni-
hlutastjórn með stuðningi sam-
bandssinna á Norður-Írlandi, DUP.
8. desember 2017
n Bretland og ESB ná loks sam-
komulagi um fyrstu stig Brexit-
samningaviðræðnanna. Samn-
ingurinn tryggir að landamærin
milli Norður-Írlands og Írlands
verði opin.
2. mars 2018
n Theresa May gerir grein
fyrir efnahagslegri framtíðarsýn
fyrir útgöngu Breta úr ESB. Þar fari
Bretar úr markaðs- og tollabanda-
lagi ESB, en mikilvægum efnahags-
legum og lagalegum tengingum
við ESB verði viðhaldið með við-
skiptasamningum.
19. mars 2018
n Samkomulag næst um megin-
skilmála fyrir aðlögun Breta að
útgöngunni.
7. júlí 2018
n May og ríkisstjórn hennar kynna
áætlun um að viðhalda nánum
efnahagslegum tengslum við ESB.
Það er kallað „mjúkt Brexit“ og er
harðlega gagnrýnt.
8. júlí 2018
n David Davis lætur af störfum
sem útgöngumálaráðherra og
Boris Johnson sem utanríkisráð-
herra. Báðir vildu „hart Brexit“.
13. nóvember 2018
n Bretland og ESB ná samkomu-
lagi um drög að útgöngusamningi
Breta. Ráðherrar í liði May segja af
sér vegna þessa. Átök í fjölmiðlum
aukast.
4. desember 2018
n Breska þingið ávítar ríkisstjórn
May fyrir að hafa sýnt þinginu
lítilsvirðingu með því að birta
aðeins hluta lögfræðiálits á út-
göngusamningnum en ekki allan
samninginn.
12. desember 2018
n Theresa May stendur af sér
vantraust í Íhaldsflokknum þegar
rúmur þriðjungur þingmanna
breska Íhaldsflokksins samþykkti
vantraust á May. Staða hennar er
talin veik.
15. janúar, 2019
n Útgöngusamningur May er kol-
felldur í neðri málstofu þingsins.
202 styðja samkomulagið en 432
eru á móti. Það er talinn mesti
ósigur ríkisstjórnar Breta í meira
en öld.
16. janúar, 2019
n May lifir af vantrauststillögu
sem Jeremy Corbyn, leiðtogi
Verkamannaflokksins, lagði fram
í þinginu.
29. janúar 2019
n Meirihluti þingmanna greiðir at-
kvæði með breytingartillögum á
útgöngusamningnum. Þingið sam-
þykkir að lýsa andstöðu sinni við
útgöngu án samnings en hafnar
áætlun um seinkun útgöngu.
12. mars, 2019
n Annar samningur May felldur.
242 þingmenn styðja hann en 391
er á móti. Pólitísk átök magnast.
Átök, ósigrar
og klofin þjóð
Þann 23. júní 2016
kaus naumur
meirihluti Breta að
yfirgefa Evrópusam-
bandið. Enn sér
ekki fyrir endann
á vandræðum í
breska þinginu.
vikna hlé verði gert á þingstörfum,
einungis örfáum dögum eftir að
þingmenn koma úr sumarfríi.
Ákvörðunin veldur gífurlegri reiði
þingmanna.
3. september 2019
n Breska þingið samþykkir að taka
dagskrá þingsins í sínar hendur
eftir að Johnson rekur 21 upp-
reisnarmann úr Íhaldsflokknum.
Þeirra á meðal er dóttursonur
Churchills. Johnson er nú ekki
með meirihluta, þrátt fyrir
stuðning DUP.
4. september 2019
n Neðri málstofa breska þingsins
samþykkir að forsætisráðherr-
anum, Boris Johnson, beri að
sækja um frestun á útgöngu takist
ekki samningar fyrir 18. október.
Brexit án samninga er hindrað
og Johnson fær ekki að boða til
kosninga.
9. september 2019
n Breska þingið hafnar öðru sinni
tillögu Boris Johnson um að boða
til þingkosninga þann 15. október,
áður en Bretar eiga að ganga úr
Evrópusambandinu.
24. september 2019
n Hæstiréttur Bretlands kemst
að þeirri niðurstöðu að ákvörðun
Boris Johnson, um að gera hlé
á störfum breska þingsins, hafi
verið ólögleg. Áfrýjunardómstóll
í Skotlandi hafði einnig komist að
slíkri niðurstöðu.
17. október 2019
n Boris Johnson, forsætisráðherra
Bretlands, segir að nýr samningur
hafi náðst um útgöngu Breta úr
Evrópusambandinu. Samningur-
inn er svipaður og samningur May
sem ítrekað var hafnað í þinginu.
DUP hafnar samningnum.
19. október 2019
n Samningurinn kemst ekki á
dagskrá þingsins. Boris Johnson
sendir bréf til Evrópusambandsins
og óskar eftir því að útgöngu Breta
verði frestað.
24. október 2019
n Boris Johnson segir að hann
muni einungis gefa þingmönnum
meiri tíma til að ræða útgöngu-
samning ef þeir samþykkja að
boða til kosninga 12. desember
næstkomandi.
Kristinn Haukur
Guðnason
kristinnhaukur@frettabladid.is
Útganga Bretlands úr Evrópusambandinu hefur klofið bæði bresku þjóðina og stjórnmálin í herð-ar niður og átökin
í þinginu hafa verið fordæmalaus.
Tveir forsætisráðherrar hafa sagt
af sér vegna málsins, ríkisstjórnir
beðið marga fáheyrða og niðurlægj-
andi ósigra í þinginu, þingflokkar
riðlast til, þingmenn verið reknir úr
flokkum, ákvarðanir dæmdar ólög-
legar af dómstólum og þingforseti
varla haft undan að skamma þing-
menn fyrir brigsl um svik og land-
ráð.
Enn sér ekki fyrir endann á
hnútinn í þinginu og á meðan bíða
breskir borgarar, innf lytjendur,
atvinnulíf ið og stofnanir með
hjartað í buxunum.
Meðfylgjandi er yfirlit yfir helstu
tímasetningar frá hinum örlagaríka
degi 23. júní 2016 þegar naumur
meirihluti Breta kaus að yfirgefa
Evrópusambandið.
21. mars 2019
n ESB veitir Bretum útgöngufrest
til 22. maí.
29. mars 2019
n Brexit-samningur May er felldur
í þinginu í þriðja sinn með 58 at-
kvæða mun. 285 þingmenn styðja
hann en 344 eru á móti.
1. apríl 2019
n Þingmenn hafna öllum tillögum
að úrlausnum í útgöngumálum.
Klofningur innan flokka verður æ
augljósari.
5. apríl 2019
n May biður ESB um nýjan frest, til
30. júní.
10. apríl 2019
n Leiðtogar Evrópusambands-
ríkja bjóða Bretum framlengingu á
fresti, til 31. október.
23. maí 2019
n Kosningar til Evrópuþings.
Nýstofnaður Brexit-flokkur Nigels
Farage fær 30,5 prósenta fylgi og
flesta þingmenn.
24. maí 2019
n Eftir að hafa sótt á brattann
alla sína forsætisráðherratíð segir
Theresa May af sér sem forsætis-
ráðherra.
23. júlí 2019
n Alexander Boris de Pfeffel John-
son – eða Boris Johnson sigrar í
leiðtogakjöri Íhaldsflokksins.
24. júlí 2019
n Johnson verður formlega for-
sætisráðherra. Hann lofar úrgöngu
úr ESB 31. október, sama hvað.
28. ágúst 2019
n Elísabet II, drottning, samþykkir
beiðni Johnsons um að fimm
2 6 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R26 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
6
-1
0
-2
0
1
9
0
4
:4
1
F
B
0
8
8
s
_
P
0
6
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
1
6
-D
1
C
C
2
4
1
6
-D
0
9
0
2
4
1
6
-C
F
5
4
2
4
1
6
-C
E
1
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
0
8
8
s
_
2
5
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K