Fréttablaðið - 26.10.2019, Síða 28
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@
frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s.
550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Jóhanna Helga
Viðarsdóttir
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656,
Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103,
Þótt flestum finnist enn langt til jóla eru sumir farnir að bíða þeirra með mikilli eftirvænt-
ingu, fagna öllum skreytingum og
jólageitinni í Ikea. Elín Marta er eitt
þessara jólabarna. Hún segist ekki
eiga langt að sækja þennan áhuga
því bæði móðir hennar og amma
hafa alltaf verið mikil jólabörn og
skreytt mikið fyrir jólin. „Það er
óhætt að segja að ég sé mikið jóla-
barn og hef alltaf verið. Mamma
hefur alltaf skreytt mjög mikið og
safnað að sér alls kyns jólaskrauti.
Ætli hún hafi ekki smitast af móður
sinni sem einnig var mikið fyrir
að skreyta,“ segir Elín Marta. „Svo
hefur dóttir mín erft þetta frá
mér þótt hún sé bara sjö ára. Hún
er strax farin að tala um jólin og
hlakkar mikið til þeirra,“ bætir hún
við og hlær að öllu saman.
Þótt Elín Marta hugsi um jólin
allt árið byrjar hún ekkert sér-
staklega snemma að skreyta. „Ég
byrja yfirleitt að skreyta þegar ég
set aðventuljós í gluggann fyrst
í aðventunni. En ég lauma nú
gjarnan einhverjum ljósaseríum
upp fyrr því það er svo gott að fá
birtuna frá þeim,“ segir hún. „Ég
er ekkert sérstaklega jólaskrauts-
glöð sjálf þótt ég sé svona mikið
jólabarn. Hef þetta hæfilegt og
nágrannar mínir þurfa ekkert að
óttast. En ég hef ótrúlega gaman af
því að horfa á jólaskraut hjá öðrum
og dáist mikið að því. Jólin eru svo
ótrúlega skemmtilegur tími og
minn uppáhalds á árinu.“
Nítján hundruð jólabörn
Elín Marta segist tala um jólin allan
ársins hring og byrja að telja niður
um hásumar. „Stundum er fólk
að verða brjálað á þessum áhuga
mínum,“ segir hún. Elín Marta setti
upp jólasíðuna á Facebook fyrir
fimm árum. „Ég vissi um nokkra
svona jólabrjálaða og ákvað að
gleðja þá með þessari síðu þar sem
alltaf væri hægt að dást að jólum
og öllu því sem þeim fylgja. Þetta
fór rólega af stað en allt í einu jókst
aðsóknin og núna eru 1.900 jóla-
börn sem fylgja síðunni. Ég er því
ekki sú eina á landinu,“ segir hún.
„Á þessari síðu má fólk vera spennt
og fullt tilhlökkunar, dást að jóla-
myndum og telja niður. Þetta var
lítið fyrst og hálfgerður sauma-
klúbbur, fólk að deila jólamyndum.
Ég vona að síðan fari á fullt núna
fyrir jólin og hlakka til að sjá
myndir. Þeir hörðustu fara senni-
lega að skreyta núna fljótlega þótt
það sé eiginlega ekki samfélagslega
viðurkennt að skreyta svo snemma.
Margir í þessum hópi setja jóla-
ljósin fljótt upp bæði úti og inni.“
Jólabakstur fljótlega
Elín Marta ólst upp við smá-
kökubakstur fyrir jólin og hún
viðheldur þeim sið. „Ég býst við
fara í baksturinn fljótlega. Geri
alltaf nokkrar tegundir og held í
hefðirnar. Það er svo notalegt að fá
bökunarilminn um húsið. Jóla-
lögin eru alltaf í spilun. Ég meira að
segja laumast til að hlusta á þau í
vinnunni því það er svo notalegt að
hafa þau í bakgrunninum. Svo gott
að hafa smá „jingle“ í eyrunum,“
segir Elín Marta sem er starfs- og
námsráðgjafi hjá Þjónustu- og
þekkingarmiðstöðinni fyrir blinda
og sjónskerta. Þetta er krefjandi
starf en hún segist finna sig í því að
hjálpa öðrum. „Það reyndar tengir
mig við jólin því mér finnst ofboðs-
lega gaman að gefa gjafir. Ég ákveð
mjög snemma hvað mig langar að
gefa fjölskyldunni í jólagjöf. Við
gefum gjafir hvert til annars upp í
fermingaraldur.“
Heldur í gamlar hefðir
Elín María á tvö börn og sambýlis-
maður hennar átti tvö fyrir svo
fjölskyldan er stór. „Það er alltaf
mikil gleði hjá okkur um jólin
þegar fjölskyldan hittist. „Amma
mín bauð alltaf stórfjölskyldunni í
heitt súkkulaði og kökur á jóladag
sem var ákaflega skemmtilegt.
Núna er hún orðin öldruð og
komin á hjúkrunarheimili svo
það er ekki lengur, því miður. Ég
Jólaljósin eru ekki enn komin upp hjá fólki en Elín Marta hlakkar mikið til þegar skreytingarnar koma á húsin. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Dætur Elínar Mörtu, Ásta Svanhild
og Þórunn Edda, við jólatréð 2017.
Við fallega jólahúsið á Akureyri í september síðastliðnum. Elín Marta þarf
alltaf að kíkja á jólaandann í húsinu þegar hún á leið um Norðurland.
Elín
Albertsdóttir
elin@frettabladid.is
Framhald af forsíðu ➛
hef reynt að bæta fyrir það og býð
heim til mín nánustu fjölskyldu.
Mér finnst notalegt að halda í
gamlar hefðir. Við förum síðan
í hangikjöt til foreldra
minna. Ég var alin upp
við svínabóg á aðfanga-
dag en maðurinn
minn er ekki fyrir
hvítt kjöt þannig
að við höfum
sammælst
um svína-
hamborg-
arhrygg í
staðinn.“
Móðir
Elínar Mörtu
vildi hafa jóla-
skrautið langt
fram í janúar
en dóttirin
tekur allt niður
á þrettándanum.
Ástæðan er sú
að Elín Marta á
afmæli 18. janúar
og hún skammaðist
sín fyrir það að
jólatré væri enn í
stofunni þegar hún
bauð vinum sínum
í afmælisveislu.
„Það var sérstaklega viðkvæmt á
unglingsárunum,“ segir hún. „Hins
vegar finn ég alltaf fyrir jólablús
þegar jólaskrautið er tekið niður.
Þegar ljósin fara verður allt svo
dimmt. Ég reyni því að halda í
hvítu perurnar sem lengst. Annað
tilhlökkunarefni er þegar jóla-
bækurnar streyma á
markaðinn. Ég bíð eftir
Bókatíðindunum,“
segir hún en viður-
kennir að bók-
lestur sé minni
en hann var áður
fyrr. „Ég bý alltaf
til aðventudaga-
tal sem ég opna
síðan með
börnunum
og finnst
dásamlegt
þegar
aðventan fer á fullt og jólasvein-
arnir koma til byggða.“
Viðburður í jólahúsi
Facebook-síðan Jólabörn ætlar að
vera með viðburð 5. desember. „Við
ætlum að koma saman í Jólahúsinu
í Hafnarstræti og eiga skemmtilegt
jólakvöld. Þeir sem eru meðlimir
á síðunni og mæta á viðburðinn
fá 15% afslátt af jólaskrauti þetta
kvöld. Það verður mjög jólakósý og
ég hlakka til að hitta allt þetta fólk
sem hefur áhuga á síðunni minni,
sjá framan í það og ræða saman.
„Mér finnst mjög skemmtilegt að
halda úti þessari síðu og væri til í
að hún yrði mun virkari. Ég hvet
meðlimi til að fara á fullt í jóla-
skapinu og deila efni,“ segir Elín
Marta. „Nóvember og desember
eru dimmir og kaldir mánuðir og
jólaskrautið og -ljósin eru fyrir mér
ljósið í myrkrinu. Fólk er innilegra
á þessum árstíma og maður fær
fleiri knús. Fjölskyldur hittast og
vinnustaðir gera eitthvað skemmti-
legt. Jólin vekja upp góðar minn-
ingar. Ég er mikil vetrarkona enda
fædd í janúar. Þessi árstími hentar
mér því mjög vel. Mér þykir gaman
að fara út í snjóinn að leika með
börnunum.“
Brugðið
á jólaleik
í Hyde Park
í London í
desember
2011.
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 6 . O K TÓ B E R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R
2
6
-1
0
-2
0
1
9
0
4
:4
1
F
B
0
8
8
s
_
P
0
6
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
6
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
1
6
-B
E
0
C
2
4
1
6
-B
C
D
0
2
4
1
6
-B
B
9
4
2
4
1
6
-B
A
5
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
8
8
s
_
2
5
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K