Fréttablaðið - 26.10.2019, Síða 30
Þar sem ég var í
vinnunni rak ég
augun í gyllta poka utan
af kaffibaunum sem
voru á leið í ruslið og
datt í hug að nýta þá og
búa til töskur úr þeim.
Sigríður Inga
Sigurðardóttir
siggainga@gmail.com
Birna Bjarnason leikskólakenn-ari segist ekki vera mikið fyrir handavinnu en hún hefur þó
saumað fjöldann allan af fallegum,
gylltum töskum úr kaffipokum.
„Ég kann varla að þræða saumnál,“
svarar hún hlæjandi þegar hún er
spurð út í hugmyndina á bak við
töskurnar. „Ég hélt saumaklúbbs-
gleði í desember fyrir nokkrum
árum og átti að vera með pakka
tilbúinn. Þannig er að við vin-
konurnar förum saman í jólaspil
á aðventunni, sem er nokkurs
konar pakkaleikur. Við bjuggum
sjálfar til þetta spil og höfum verið
að selja það að gamni okkar fyrir
jólin. Þetta er svona okkar ævin-
týri. Allir eiga að koma með nokkra
pakka sem eru settir á borðið og
síðan hefst leikurinn. Skilyrðið er
að í pakkanum leynist eitthvað
handgert eða eitthvað sem hægt
væri að borða. Þar sem ég var í
vinnunni rak ég augun í gyllta
poka utan af kaffibaunum sem
voru á leið í ruslið og datt í hug að
nýta þá og búa til töskur úr þeim,“
upplýsir Birna. „Ég kalla töskurnar
gullpokana mína og hef gefið þær í
afmælisgjafir og jólagjafir. Þær eru
nær óslítandi og hægt að nota fyrir
hvað sem er. Ein vinkona mín notar
sína tösku t.d. sem sundtösku. Þótt
ég sé ekki mikil handavinnukona
finn ég mínar leiðir til að búa eitt-
hvað til,“ bætir hún við.
Birna þvær ekki kaffipokana
áður en hún notar þá, heldur
strýkur vandlega af þeim. „Ég vil
ekki þvo pokana því það er svo
góð lykt af kaffinu og ég vil að hún
haldi sér. Ég sauma sex til átta poka
saman í lengju og hef hálfan poka
í botninum. Ég nota límband til að
líma þessa hluta saman og síðan
sauma ég pokana saman í venju-
legri saumavél. Límbandið kroppa
ég síðan af. Þetta er ótrúlega einfalt.
Fyrst ég get gert þetta, geta allir gert
þetta,“ segir Birna glaðlega.
Rusl í jógúrtdós
Spurð hvort hún hafi áhuga á
endurvinnslu segir Birna að svo sé.
„Á deildinni á leikskólanum þar
sem ég vinn er allt rusl flokkað og
við notum helst ekkert plast. Eftir
vikuna er ekki meira óflokkað rusl
en svo að það passar í eina jógúrt-
dós, allt annað fer í endurvinnslu.
Við plokkum líka rusl úti við og það
vekur mikla lukku hjá börnunum.
Þetta byrjar allt hjá börnunum, þau
eru svo meðtækileg og elska þetta
og hvetja vonandi foreldra sína
áfram heima. Sjálf er ég dugleg að
flokka rusl heima hjá mér en í raun
snýst þetta líka um að minnka alla
neyslu og huga vel að umhverfinu.
Ég reyni að standa mig og geng t.d.
í vinnuna á hverjum degi. Ég hef
líka endurnýtt gömul sængurver
og nota þau sem poka undir dósir.
Það er ýmislegt hægt að gera fyrir
umhverfið með því að nota hugar-
flugið,“ segir Birna.
Ilmandi gullpokar og jólaspil
Birna er leikskólakennari en á deildinni er allt rusl flokkað og helst ekkert plast notað. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Jólaspilið hennar Birnu og vinkvenna hennar. Birna bjó til þessar skemmtilegu endurunnu töskur.
Birna Bjarnason
saumar nánast
óslítandi töskur
sem ilma af kaffi.
Efniviðurinn er
gylltir pokar und-
an kaffibaunum.
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 6 . O K TÓ B E R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R
2
6
-1
0
-2
0
1
9
0
4
:4
1
F
B
0
8
8
s
_
P
0
7
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
5
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
1
6
-A
A
4
C
2
4
1
6
-A
9
1
0
2
4
1
6
-A
7
D
4
2
4
1
6
-A
6
9
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
8
8
s
_
2
5
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K