Fréttablaðið - 26.10.2019, Síða 31
L AU G A R DAG U R 2 6 . O K TÓ B E R 2 0 1 9
Hallgrímskirkja
Við prestarnir vitum að margir leita einhvers sem er djúptækt og persónulega
gefandi í glundroða nútímans.
Margir upplifa samskipti fólks
sem yfirborðsleg og ekki nærandi
en allir vilja jákvæða reynslu sem
hvorki ógnar né spillir, heldur róar
og kyrrir,“ segir séra Sigurður Árni
Þórðarson, sóknarprestur í Hall-
grímskirkju, um inntak kvöld-
kirkjunnar sem haldin var í fyrsta
sinn í fyrrakvöld, fimmtudaginn
24. október.
Kvöldkirkjan er samvinnuverk-
efni presta og starfsfólks Hall-
grímskirkju og Dómkirkjunnar og
verður fyrst um sinn haldin einu
sinni í mánuði, fyrst í Hallgríms-
kirkju og í Dómkirkjunni eftir
áramót.
„Þögn er áberandi einkenni
kvöldkirkjunnar en orð hljóma á
slökunarstundum og í íhugunum.
Þau sem koma í kvöldkirkju ganga
inn með kyrrlátum hætti og fólk
talar um sín hversdagsmál utan
kirkjunnar,“ segir séra Elínborg
Sturludóttir í Dómkirkjunni.
Stundum verður þó tónlistar-
f lutningur í kvöldkirkjunni.
„Eitt hljóðfæri verður stundum
notað eða orðlaus söngur manns-
raddar,“ útskýrir séra Sigurður
Árni. „Fólk hefur frelsi til að vera
það sjálft í hinu heilaga rými og
mikill hreyfanleiki er stíll kvöld-
kirkjunnar. Fólk situr ekki lengi,
heldur rölta margir um kirkjuna í
kyrrð og hlustar á sitt innra hvísl
eða önnur hljóð rýmisins.“
Séra Elínborg segir suma dvelja
lengi í kvöldkirkjunni og aðra
stutt.
„Mörgum hentar jafnvel að
leggjast á kirkjubekki eða dýnur
til að stilla sinn innri mann
og tengja við tákn og hljóma
kirkjunnar. Sumir kveikja á kerti
til íhugunar eða sem bænakerti.
Aðrir krjúpa einhvers staðar í
kirkjunni.“
Tilfinningar í helgirými
Sunnudagsmessur og kyrrðar-
stundir dagkirkjunnar eru magn-
aðar en höfða ekki til allra.
„Tilgangur kvöldkirkjunnar er
að opna trúarheiminn fyrir fólki
sem finnur sig ekki í venjulegu
helgihaldi dagkirkjunnar,“ segir
séra Sigurður Árni. „Kvöldkirkjan
er öðruvísi en venjulegu helgi-
stundirnar sem fólk hefur áður
upplifað. Hún er ekki á sunnu-
dögum heldur á virkum degi og
fólk er ekki bundið við kirkju-
bekkina heldur hefur möguleika á
að ganga um kirkjurýmið, setjast
niður, færa sig og finna nýjan stað.
Svo hefur fólk möguleika til að tjá
sig og tilfinningar sínar, skila inn
í helgirýmið spurningum, líka
reiði og sekt, semsé túlka stóru
lífsmálin og skila þeim til Guðs.
Tilfinningarnar má líka setja á
blað. Bænir eru tjáðar og iðkaðar
með ýmsu óhefðbundnu móti í
kvöldkirkjunni.“
Séra Elínborg segir kvöldkirkj-
una reyna að gefa fólki gott næði.
„Myndatökur eru til að mynda
ekki heimilaðar því þær trufla
bæði fólk sem sækir kirkjuna sem
og f lytjendur,“ segir Elínborg og
bæði hvetja þau sem flesta til að
koma í kvöldkirkjuna.
„Það er gott að fara í kvöld-
kirkjuna í Hallgrímskirkju fyrst
og svo geta menn farið á pöbbinn
eða út að borða og líka komið við
í kirkjunni á leið heim,“ segir séra
Sigurður Árni.
Dómkirkjuprestarnir Elín-
borg Sturludóttir og Sveinn
Valgeirsson og Hallgrímskirkju-
prestarnir Irma Sjöfn Óskars-
dóttir og Sigurður Árni Þórðarson,
auk Grétars Einarssonar kirkju-
varðar í Hallgrímskirkju, sjá um
efni kvöldkirkjunnar sem verður
í Hallgrímskirkju í tvö skipti enn í
haust; fimmtudagana 21. nóvem-
ber og 12. desember frá klukkan
17 til 21.30.
Opna trúarheiminn að kvöldi
Þeir sem koma í friðsælan faðm kvöldkirkjunnar í Hallgrímskirkju í vetur ganga inn í kyrrð og
rökkvaða kirkju með kertaljósum. Næstu kvöldkirkjur verða opnar í nóvember og desember.
Prestarnir Irma Sjöfn Óskarsdóttir, Sveinn Valgeirsson, Elínborg Sturludóttir og Sigurður Árni Þórðarson sjá um kvöldkirkjuna, ásamt kirkjuverðinum Grétari Einarssyni. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
KYNNINGARBLAÐ
2
6
-1
0
-2
0
1
9
0
4
:4
1
F
B
0
8
8
s
_
P
0
7
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
5
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
4
1
6
-9
B
7
C
2
4
1
6
-9
A
4
0
2
4
1
6
-9
9
0
4
2
4
1
6
-9
7
C
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
8
8
s
_
2
5
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K