Fréttablaðið - 26.10.2019, Page 40
Nýtt fólk
Tilkynningar um nýtt fólk Atvinnublað Fréttablaðsins
kemur út á laugardögum í viku hverri. Umsjónarmaður
blaðsins er Hrannar Helgason. Blaðið birtir valdar
greinar um ráðningu nýrra starfsmanna. Sendið til-
kynningar ásamt mynd af viðkomandi á netfangið:
nyttfolk@frettabladid.is
Bókari
Fasteignafélag óskar eftir bókara í 50% starf.
Í starfinu felast eftirfarandi verkefni, bókhald, vsk uppgjör,
gjaldkera- og innheimtustörf, launauppgjör, auk samskipta
við banka.
Áskilnaður gerður um mjög góða bókhaldskunnáttu (DK),
og tölvufærni. Sömuleiðis frumkvæði, sjálfstæði, og færni í
mannlegum samskiptum.
Umsóknir sendist fyrir 5.11.2019 á eftirfarandi netfang:
gretar@lundurfasteignir.is
Urð og Grjót ehf
óskar eftir vönum Gröfumanni í vinnu til langtíma,
verður að vera vanur á beltagröfu.
Áhugasamir hafið samband á
urdoggrjot@urdoggrjot.is eða S:660 0040.
GRÖFUMAÐUR
HH Ráðgjöf • Fjarðargata 13 - 15 • 220 Hafnarfjörður • Sími: 561 5900 • hhr@hhr.is • www.hhr.is
Ráðningarþjónusta
Sölu- og
lagerstarf
Sölu- og lagerstarf
Nánari upplýsingar um starfið er að finna á heimasíðu HH Ráðgjafar
www.hhr.is og eru áhugasamir beðnir um að sækja um starfið þar.
Gróðrarstöðin Lambhagi ehf. óskar eftir að ráða umsjónarmann nýrrar gróðrarstöðvar sem
er í uppbyggingu í Lundi í Mosfellsdal.
Um er að ræða fullt starf til framtíðar og mun viðkomandi hafa umsjón með framleiðslu á
salati í stöðinni.
Starfssvið Hæfniskröfur
• Umsjón og ábyrgð á gróðrarstöð
• Umsjón með starfsfólki gróðrarstöðvar
• Skipulagning daglegra starfa og verkefna
• Almenn störf í gróðrarstöð
• Menntun á sviði garðyrkjufræði, landbúnaðar-
verkfræði eða sambærileg menntun æskileg
• Reynsla af vinnu við lokuð ræktunarkerfi kostur
• Metnaður og frumkvæði í starfi
• Rík ábyrgðakennd, skipulögð vinnubrögð og
góð hæfni í mannlegum samskiptum
Framleiðslustjóri garðyrkjustöðvar
Í Lundi eru tvö lítil hús sem fyrirtækið hefur umráð yfir og mun viðkomandi
starfsmaður eiga möguleika á að hafa búsetu í öðru þeirra ásamt fjölskyldu sinni ef
svo ber undir.
Gróðrarstöðin Lambhagi ehf. var stofnuð árið 1979 og er stærsti framleiðandi og
seljandi á fersku salati og kryddjurtum á Íslandi.
Staða leikskólastjóra við leikskólann Fífuborg
Skóla- og frístundasvið
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir
borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar auglýsir stöðu leikskólastjóra í Fífuborg lausa til umsóknar.
Fífuborg er fjögurra deilda leikskóli við Fífurima í Grafarvogi. Gildi leikskólans eru virðing, heilbrigði og gleði. Fífuborg er Grænfánaskóli
og unnið er eftir kenningum John Dewey, Caroline Pratt og Lev Vygotsky. Í leikskólanum er lögð áhersla á lýðræðislega stjórnun með
samstarfi allra sem mynda samfélag Fífuborgar, að raddir barnanna heyrist og þau hafi áhrif á umhverfi sitt en börnin fá fræðslu um
réttindi barna samkvæmt Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Markvisst er unnið með mál og læsi, m.a. með þróunarverkefninu
„Litlu könnuðirnir“ þar sem unnið er með læsi í tengslum við könnunaraðferðina. Fífuborg hlaut hvatningarverðlaun skóla- og frístunda-
ráðs 2019 fyrir verkefnið „Ella endurvinnsludúkka“ og leikskólinn tekur þátt í vináttuverkefni Barnaheilla. Gott samstarf er við foreldra og
grenndarsamfélagið í nágrenni leikskólans.
Leitað er að einstaklingi sem býr yfir leiðtogahæfileikum og er tilbúinn til að leiða áfram gott og metnaðarfullt leikskólastarf í Fífuborg.
Meginhlutverk leikskólastjóra er að:
• Vera faglegur leiðtogi leikskólans og móta framtíðarstefnu
hans innan ramma laga, reglugerða, aðalnámskrár og stefnu
Reykjavíkurborgar.
• Bera ábyrgð á daglegu starfi í leikskólanum.
• Skipuleggja foreldrasamstarf í samvinnu við foreldra og starfs-
menn.
• Hafa yfirumsjón með innra mati á starfi leikskólans og um-
bótaáætlunum.
• Hvetja til þróunar og nýbreytni í leikskólastarfi.
• Stýra rekstri leikskólans á grundvelli fjárhagsáætlunar.
• Bera ábyrgð á starfsmannamálum, svo sem ráðningum, vinnutil-
högun og starfsþróun.
• Skipuleggja tengsl skólans við ýmsa samstarfsaðila.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf leikskólakennara.
• Viðbótarmenntun í stjórnun eða kennslureynsla á leikskólastigi.
• Reynsla af stjórnun æskileg.
• Stjórnunarhæfileikar og vilji til að leita nýrra leiða.
• Þekking á rekstri, áætlanagerð og fjármálastjórnun.
• Lipurð og hæfni í samskiptum.
• Sjálfstæði og frumkvæði.
Í öllu starfi skóla- og frístundasviðs er unnið að innleiðingu
Menntastefnu Reykjavíkur, „Látum draumana rætast“, þar sem
leiðarljósin eru virkni og þátttaka barna, aukið samstarf og
fagmennska.
Umsókn fylgi yfirlit yfir nám og fyrri störf, leyfisbréf til að nota starfsheitið leikskólakennari og greinargerð um framtíðarsýn umsækjanda
á starf í leikskólanum.
Ráðið verður í stöðuna frá 1. janúar 2020. Umsóknarfrestur er til og með 11. nóvember 2019.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags stjórnenda leikskóla.
Umsækjendur eru beðnir um að sækja um starfið á heimasíðu Reykjavíkurborgar, www.reykjavik.is/storf
Nánari upplýsingar veita Ingibjörg M. Gunnlaugsdóttir, skrifstofustjóri fagskrifstofu leikskólamála eða Elísabet Helga Pálmadóttir
þróunarfulltrúi, sími 411 1111. Netföng: ingibjorg.m.gunnlaugsdottir@reykjavik.is og elisabet.helga.palmadottir@reykjavik.is
Nýr framkvæmdastjóri
Smartmedia
Hjörvar Hermannsson hefur tekið við stöðu framkvæmda stjóra Smart
media en hann hefur verið sölu
og verkefnastjóri hjá félaginu í
tvö ár. Tóku breytingarnar gildi
15. október síðastliðinn. Hjörvar
kemur til með að bera ábyrgð á
daglegum rekstri og styðja við þann
mikla vöxt sem átt hefur sér stað í netverslun hér á landi
undanfarin ár. Hann hefur lokið BSnámi í viðskipta
fræðum við Háskóla Íslands og MSgráðu í markaðs
fræðum við Griffith University í Ástralíu. Áður starfaði
Hjörvar sem verkefnastjóri á auglýsingastofunni PIPAR/
TBWA. Breytingar eru liður í því að efla stuðning Smart
media við viðskiptavini sína í stafrænum umskiptum en
fyrirtækið þjónustar yfir 140 íslensk smá og heildsölu
fyrirtæki sem veita þjónustu sína í stórauknum mæli í
gegnum netið.
Svanborg til Viðreisnar
Svanborg Sigmarsdóttir stjórnmálafræðingur hefur tekið til starfa sem framkvæmda
stjóri borgarstjórnarflokks
Viðreisnar og verkefnastjóri
sveitarstjórnarmála. „Hugsjónir
Viðreisnar um frjálslyndi, frelsi,
jafnréttismál, umhverfismál og
alþjóðasamvinnu ríma vel við mína
sannfæringu um gott og réttlátt samfélag.
Því hlakka ég mjög til að taka þátt í starfi Viðreisnar,“
segir Svanborg. Undanfarinn áratug hefur Svanborg
starfað sem upplýsingafulltrúi opinberra aðila, nú síðast
hjá Ríkisendurskoðun. Áður var hún blaðamaður á
Fréttablaðinu og hefur reglulega kennt áfanga í stjórn
málafræði við Háskóla Íslands og Háskólann á Bifröst.
Sigríður til Völku
Sigríður Olgeirsdóttir var nýverið ráðin sviðsstjóri þjónustu hjá hátæknifyrirtækinu
Völku. Hún mun bera ábyrgð á
þjónustusviði fyrirtækisins á
alþjóðavísu, en fyrirtækið hefur
vaxið mjög síðustu misseri. Sigríður
var síðustu níu ár framkvæmda
stjóri rekstrar og upplýsingatæknisviðs
Íslandsbanka. Hún hefur einnig setið í
fjölda stjórna í viðskiptalífinu, hérlendis sem erlendis.
Hún var framkvæmdastjóri Ax hugbúnaðarhúss, for
stjóri Humac, og framkvæmdastjóri hjá Tæknivali og
stofnaði og byggði upp Tæknival í Danmörku. Sigríður
er kerfisfræðingur frá Tigentskolen í Danmörku, með
MBAgráðu frá Háskólanum í Reykjavík, AMPgráðu frá
Harvard Business School og próf í rekstrar og viðskipta
fræðum frá Endurmenntun Háskóla Íslands.
Ábendingahnappinn má finna á
www.barnaheill.is
8 ATVINNUAUGLÝSINGAR 2 6 . O K TÓ B E R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R
2
6
-1
0
-2
0
1
9
0
4
:4
1
F
B
0
8
8
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
1
6
-E
A
7
C
2
4
1
6
-E
9
4
0
2
4
1
6
-E
8
0
4
2
4
1
6
-E
6
C
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
8
8
s
_
2
5
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K