Fréttablaðið - 26.10.2019, Síða 57
Jóhanna og Hallgrímur voru gefin saman í hjónaband í Hallgrímskirkju 20. septem-
ber árið 1969 eða fyrir fimmtíu
árum. Á þeim tíma var ekki
búið að taka núverandi kirkju í
notkun heldur sögðu þau já-in sín í
kirkjunni sem var í kórnum. Núna
50 árum síðar tóku tvö börn þeirra
sig til og bjuggu til óvissudag fyrir
foreldra sína sem byrjaði með
heimsókn í spa og dekri.
Foreldrarnir höfðu enga hug-
mynd um hvað gert yrði en treystu
börnum sínum fullkomlega. „Eftir
veislumat í hádeginu var haldið af
stað og farið upp á Skólavörðuholt
og inn í anddyri kirkjunnar en
þar beið þeirra skrýddur prestur.
Þá fóru þau að hlæja og gerðu
sér grein fyrir að heimsóknin í
kirkjuna væri annað og meira en
að kíkja í kirkjuna og minna á að
í kórnum hefðu þau nú verið gift,“
segir Sigurður Árni Þórðarson,
prestur í Hallgrímskirkju.
„Gullhjónin, börnin þeirra,
afkomendur og vinir kveiktu
á kertum við kirkjuinngang.
Presturinn spurði hvort þau vildu
halda áfram að elska hvort annað
og efla. Og þau sögðu já, já. Tár
komu á hvarma allra sem voru
viðstaddir og áður en yfir lauk var
þetta orðin fimm klúta gleðivið-
burður,“ segir hann.
Jóhanna segir að þetta hafi verið
skrítinn en stórskemmtilegur
dagur sem kom þeim hjónum
mikið á óvart. Þetta var óvissuferð
hjá börnunum sem varð að dásam-
legum degi. Þau voru búin að
undirbúa daginn ótrúlega vel og
allt gekk upp. „Barnabörnin sungu
fyrir okkur en við eigum tvö börn,
tengdabörn og fjögur barnabörn.
Einnig var systir mannsins míns
og dóttir hennar þarna. Mér fannst
voða skrítið að sjá þær í kirkjunni
og varð ekki síður undrandi
þegar séra Sigurður birtist í
fullum skrúða,“ segir Jóhanna
og hlær. „Við hjónin vorum ekki
með neinar svona hugleiðingar.
Vinkona mín og maður hennar
endurnýjuðu heitin á Flórída og
við töluðum um hvað það væri
sniðugt. Sennilega hafa börnin
heyrt það úr því þau tóku upp á
þessu. Ég mæli hundrað prósent
með endurnýjun á heitinu, þetta
var eins og brúðkaupsdagur, allt
svo flott,“ segir hún.
„Þegar við gengum inn í
kirkjuna réttu barnabörnin mér
brúðarvönd. Hann var nákvæm
eftirlíking af brúðarvendinum sem
ég bar á brúðkaupsdeginum fyrir
fimmtíu árum. Einnig var brúðar-
terta á borðum hjá dóttur minni
eftir athöfnina í kirkjunni,“ segir
Jóhanna en það voru ekki bara
tár á hvörmum fjölskyldunnar
þennan dag heldur einnig túrista
sem voru að skoða kirkjuna.
Hallgrímur Smári, var fyrsta
barnið sem skírt var í nývígðri
Hallgrímskirkju árið 1949. Þess
vegna fékk hann Hallgrímsnafnið.
Svo naut hann kirkjunnar þegar
hann gekk í hjónaband. Jóhanna
rifjaði upp daginn, við vígsluna og
hló þegar minningarnar þyrluðust
upp. „Það var dásamlegt að kveðja
þau við kirkjudyrnar.“
Ótrúleg óvissuferð
Börn Jóhönnu Bergmann og Hallgríms Smára Jónssonar
komu þeim á óvart á gullbrúðkaupsdaginn þeirra.
Jóhanna og Hallgrímur með séra Sigurði Árna í gullbrúðkaupinu sem varð
að aldeilis skemmtilegum hamingjudegi þegar þau endurnýjuðu heitin.
Kristný Rós Gústafsdóttir er djákni og verkefnastjóri í Hallgrímskirkju. Hún segir
að starf kirkjunnar blómstri um
þessar mundir. „Það er mjög góð
þátttaka í öllu okkar starfi. Til
dæmis eru margir af erlendu bergi
brotnir sem koma til okkar á for-
eldramorgna. Þar fær fólk stuðning
og kynnist,“ segir Kristný. Hún
segir að fermingarbörnin verði
átján í ár sem er f leiri en í fyrra.
„Starfið okkar er líf legt, lifandi og
vel sótt.“
Hér má sjá fjölbreytta dagskrá
sem er í boði í Hallgrímskirkju.
Skemmtilegur sunnudaga-
skóli alla sunnudaga
Jesús sagði: „Leyfið börnunum að
koma til mín.“ Á sunnudögum kl.
11.00 er sunnudagaskóli fyrir alla
krakka. Sunnudagaskólinn byrjar
í messunni í kirkjunni og færist
svo yfir í Suðursal kirkjunnar. Í
sunnudagaskólanum er sungið,
farið með bænir, Biblíusögur
lesnar, brúður bregða á leik og
fleira skemmtilegt á dagskrá. Eftir
samveruna er messukaffi fyrir alla
og föndur í boði fyrir börnin.
Stjórnendur eru Ragnheiður
Bjarnadóttir og Rósa Árnadóttir.
Krílasálmar skapa tengsl og
örva ung börn og foreldra
Krílasálmar eru í Hallgrímskirkju
á þriðjudögum kl. 11.30-12.15.
Krílasálmar eru tónlistarsamverur
fyrir ung börn, 3-12 mánaða, og
foreldra þeirra. Tónlist er notuð til
að styrkja tengslin og örva börnin.
Þar er leikið á yfirtónarík hljóð-
færi, sálmar, íslensk þjóðlög og
þekkt barnalög sungin. Með söng
er börnunum vaggað og foreldrar
dansa einnig til að veita börnum
upplifun sem hefur góð áhrif á til-
finninga- og hreyfiþroska þeirra.
Engrar sérkunnáttu er þörf til að
taka þátt og syngja með barninu
sínu. Hvert námskeið tekur sex
vikur og skráning er nauðsynleg:
kristny@hallgrimskirkja.is.
Stjórnendur eru Kristný Rós
Gústafsdóttir og Ragnheiður
Bjarnadóttir.
Örkin og unglingarnir
Unglingar í 8.-10. bekk funda með
leiðtogum sínum í kjallara kirkj-
unnar á þriðjudögum kl. 19.30-
21.30. Þar er ýmislegt brallað,
t.d. kökuskreytingarkeppni,
heimsókn í turninn, ísferð, hug-
leiðingar lesnar og farið með bænir
og margt f leira. Það er alltaf eitt-
hvað skemmtilegt á dagskrá hvert
þriðjudagskvöld. Allir unglingar í
8.-10. bekk eru velkomnir.
Stjórnendur eru Kristný Rós
Gústafsdóttir og Sigurður Óskar
Óskarsson.
Foreldramorgnar þar sem
börn og fullorðnir hittast
Foreldrar sem eru heima með
börnin sín hafa færi á að hitta
aðra foreldra og börn á foreldra-
morgnum. Samveran hæfir
litla fólkinu og er í kórkjallara
kirkjunnar á miðvikudögum
kl. 10-12. Leikföng og teppi eru
til staðar fyrir börnin og í lok
hverrar samveru er söngstund
með krílunum. Foreldramorgnar
þjóna bæði fullorðnum og
börnum.
Stjórnendur eru Kristný Rós
Gústafsdóttir og Ragnheiður
Bjarnadóttir.
Fermingarfræðslan fjöl-
breytileg og skemmtileg
Alla miðvikudaga eftir skóla
hittast fermingarungmenni og
ræða málin við Kristnýju Rós
djákna og prestana Irmu Sjöfn
og Sigurð Árna.
Fermingarungmennin og for-
ráðafólk hittast reglulega yfir
veturinn og taka þátt í messum
og fræðslu, m.a. með því að vera
messuþjónar. Ekki er búið að
loka fyrir fermingarskráningu
og það er hægt að hafa samband
við skrifstofu kirkjunnar vegna
nýskráningar.
Jólin hans Hallgríms
Sýningin „Jólin hans Hallgríms“
verður opnuð í Hallgrímskirkju
mánudaginn 25. nóvember og
stendur til jóla. Sýningin er fyrir
börn á öllum aldri. Í fimmta sinn
býður Hallgrímskirkja leikskóla-
og grunnskólabörnum í Reykjavík
og nágrenni að koma í heimsókn
í Hallgrímskirkju í aðdraganda
jólanna. Í heimsókninni er sagt
frá því hvernig jólin voru fyrir 400
árum á Íslandi. Verkefnið hefur
mælst vel fyrir og fengið góð við-
brögð en í fyrra komu rúmlega
þúsund börn í heimsókn.
Í heimsókninni fá börnin
stutta endursögn úr bókinni Jólin
hans Hallgríms eftir Steinunni
Jóhannesdóttur með myndum
eftir Önnu Cynthiu Leplar. Bókin
segir frá undirbúningi jólanna
hjá drengnum Hallgrími Péturs-
syni og fjölskyldu hans. Börnin fá
einnig frjálsa stund í baðstofunni
sem hefur verið komið fyrir, þar
geta þau leikið sér með leggi og
skeljar, litað mynd og föndrað.
Sýningin „Jólin hans Hallgríms“
var jólasýning Þjóðminjasafnsins
árið 2014.
Tekið verður á móti heimsókn-
um virka daga frá 25. nóvember
til jóla frá kl. 9-14. Hver heimsókn
tekur um klukkustund. Hópar geta
bókað heimsókn með því að senda
tölvupóst á netfangið kristny@
hallgrimskirkja.is.
Líflegt starf fyrir alla fjölskylduna
Mjög margt er í boði fyrir allan aldur í Hallgrímskirkju. Lifandi starf fyrir alla fjölskylduna. Nú er
byrjað að bóka heimsóknir fyrir börn á Jólin hans Hallgríms sem verða á aðventunni í kirkjunni.
Kristný Rós, djákni og verkefnastjóri, sér um lifandi og skemmtilegt starf í
Hallgrímskirkju. Starfið er fjölbreytt og skemmtilegt. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Klais-orgelið í Hallgríms-kirkju vekur gjarnan athygli þeirra sem kirkjuna sækja,
jafnt heimafólks sem ferðalanga,
enda er það 15 metra hátt, 25 tonn
að þyngd og pípurnar telja 5.275.
Það er svo sannarlega voldugt
og kraftmikið. Auk þess að vera
notað við helgihaldið í Hallgríms-
kirkju er þetta magnaða hljóðfæri
einnig talsvert mikið notað við
hvers konar tónleikahald. Yfir
sumartímann stendur Listvina-
félag Hallgrímskirkju meðal annars
fyrir Alþjóðlegu orgelsumri þar
sem organistar hvaðanæva úr
heiminum koma og spila í hverri
viku, samtals um 40 tónleika yfir
sumarið.
Yfir vetrartímann eru kyrrðar-
stundir í hádeginu á fimmtudögum
þar sem fara saman ljúfir tónar
orgelsins og bænir og hugleiðing frá
prestunum. Í lok hverrar kyrrðar-
stundar safnast kirkjugestir í súpu
í Suðursal kirkjunnar og eiga þar
notalega stund saman.
Fyrsta laugardag í hverjum
mánuði er hins vegar kröftugri
orgelleikur í hádeginu því þá er
Orgel Matinée, sem er ákveðin
tegund orgeltónleika. Björn Steinar
Sólbergsson, organisti í Hallgríms-
kirkju, leikur þar verk eftir Bach
og fleiri í samræmi við kirkjuárið.
Orgel Matinée og kyrrðarstundir
eru ókeypis viðburðir í Hallgríms-
kirkju og allir eru velkomnir.
Áhrifaríkir tónar
Orgelið í Hall-
grímskirkju
er einstaklega
vandaður og
fallegur gripur
og sendir frá
sér áhrifamikla
orgeltóna.
KYNNINGARBLAÐ 3 L AU G A R DAG U R 2 6 . O K TÓ B E R 2 0 1 9 HALLGRÍMSKIRKJA
2
6
-1
0
-2
0
1
9
0
4
:4
1
F
B
0
8
8
s
_
P
0
7
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
5
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
1
6
-9
6
8
C
2
4
1
6
-9
5
5
0
2
4
1
6
-9
4
1
4
2
4
1
6
-9
2
D
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
8
8
s
_
2
5
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K