Fréttablaðið - 26.10.2019, Qupperneq 58
Næsti stóri við
burðurinn okkar
er 10. nóvember klukkan
17, en þá verður Schola
Cantorum með a capp
ella tónleika sem nefnast
In paradisum.
Sorgin er þó ekki sjúkdómur, hún er hluti af lífinu og er jafnan tákn um heilbrigðar
tilfinningar. Til að takast á við
þessar tilfinningar, ræða þær og
heyra sögur annarra verða sam-
verustundir í Hallgrímskirkju í
nóvember undir yfirskriftinni
„Sorg, samtal og kyrrð“.
Samverustundirnar eru opnar
fyrir alla og hefjast klukkan 17.00
í Norðursal kirkjunnar með stuttu
inngangserindi sem er í höndum
presta sem hafa mikla reynslu
af starfi meðal syrgjenda. Eftir
erindin verður boðið til samtals
þar sem hægt er að spyrja spurn-
inga, deila reynslu eða þiggja góð
ráð á ferðinni um veg sorgarinnar
en fyrirlesararnir leiða samtalið.
Að því loknu er boðið upp á að
ganga inn í kirkjuna. Þar endum
við samverustundina við ljós-
bera kirkjunnar með stuttri
íhugun sem verður í umsjá presta
og djákna Hallgrímskirkju. Að
endingu er boðið upp á að tendra
ljós í minningu þeirra sem látin
eru.
Að sögn séra Irmu Sjafnar
Óskarsdóttur, prests í Hallgríms-
kirkju, var boðið upp á sams
konar sorgarstarf í fyrra og tókst
vel til. „Við kjósum að bjóða upp
á slíkt starf í kjölfar allraheilagra-
messu. Sá dagur er minningar-
Sorg, samtal og kyrrðarstund
Þau sem misst hafa einhvern nákominn þekkja af eigin raun söknuð og sorg. Það má segja
að sorgin sé eins og sársauki sem kemur þegar við missum einhvern sem við elskum.
Séra Irma Sjöfn segir sorgina vera hluta af lífinu. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Dagskrá
samverustundanna
er eftirfarandi:
n 6. nóvember
Dr. Sigurður Árni Þórðarson
og sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir,
prestar í Hallgrímskirkju, fjalla
um efnið „Sorgin – heilög
jörð“.
n 13. nóvember
Sr. Sigfús Kristjánsson, prestur
og verkefnastjóri á Biskups-
stofu, fjallar um „Áföll, sorg,
bjargráð og sköpun“.
n 20. nóvember
Sr. Sigrún Óskarsdóttir,
prestur og starfsmaður
Útfararstofu kirkjugarðanna,
flytur erindið „Jólin koma –
koma jólin? – sorg í nálægð
jóla“.
n 27. nóvember
Dr. Guðlaug Helga Ásgeirs-
dóttir sjúkrahúsprestur
fjallar um efnið „Í nærveru
dauðans“.
dagur þeirra sem kvatt hafa og í
mörgum kirkjum eru guðsþjón-
ustur á þessum degi helgaðar
minningu látinna. Einnig er þetta
tími þar sem við finnum aðventu
og jól nálgast í vetrarmyrkrinu.
Jólatíminn er syrgjendum oft
þungbær, söknuðurinn verður
dýpri og missirinn sárari og því
gott að undirbúa þennan tíma
vel. Sorgarferli er eins og vegferð
og samtalið okkar og samveran í
Hallgrímskirkju er tilboð um stað
til að staldra við á þessari veg-
ferð,“ segir séra Irma Sjöfn.
Listvinafélag Hallgrímskirkju var stofnað haustið 1982 og hefur það markmið að efla
listalíf við Hallgrímskirkju og
skipuleggja metnaðarfulla og
vandaða listviðburði í kirkjunni
sem fylla kirkjuna lífi og list.
„Félagið skipuleggur tónleika
og setur upp myndlistarsýningar
í anddyri kirkjunnar,“ segir Pétur
Oddbergur, nýr verkefnastjóri
Listvinafélags Hallgrímskirkju.
„Við höldum fjórar listasýningar
á ári, en á þriggja mánaða fresti
opnar nýr listamaður sýningu hjá
okkur og fær þá að sýna næstu þrjá
mánuði.
Svo höldum við tæplega 60
tónleika á ári hverju,“ segir Pétur.
„Í sumar vorum við með Kirkju-
listahátíð sem stóð í tíu daga og
á hverjum degi voru tónleikar og
aðrir listviðburðir. Í framhaldi af
Kirkjulistahátíð tók við Alþjóðlegt
orgelsumar og þá vorum við með
ferna tónleika á viku í tvo mánuði,
þannig að umfangið var gríðarlegt.
Það er ókeypis aðgangur að
listasýningunum okkar í and-
dyri kirkjunnar, en það fer eftir
verkefnum hvort það kostar á tón-
leika,“ segir Pétur.
Stórir viðburðir fram undan
„Það er mjög mikil vinna lögð í
skipulag og undirbúning við-
burðanna í Hallgrímskirkju og
að undanförnu hefur farið fram
skipulag á viðburðum næsta árs,
sem er 38. starfsár félagsins,“ segir
Pétur. „Á næstu vikum eru ýmsir
spennandi viðburðir fram undan
og þemað í þeim er trúarlegt, við
leggjum áherslu á að hafa dag-
skrána fjölbreytta en um leið þurfa
verkefni að vera áhugaverð og
listrænt spennandi til að komast á
dagskrá Hallgrímskirkju. Inga Rós
Ingólfsdóttir og Hörður Áskelsson
hafa byggt upp gríðarlega vandað
og flott starf í Listvinafélaginu og
því er mikill heiður fyrir mig að
starfa hjá þessu metnaðarfulla
félagi.
Á næstunni munum við flytja
þekkt og vandað verk, óratoríuna
Messías eftir Händel sem flutt
verður 7. desember kl. 18 og 8. des-
ember kl. 16,“ segir Pétur. „Verkið
verður flutt af Mótettukórnum
ásamt Alþjóðlegu barokksveitinni
í Hallgrímskirkju, einsöngvurum
og Herði Áskelssyni stjórnanda.
Miðasala er í fullum gangi á midi. is
og í kirkjunni frá kl. 9-17 á hverjum
degi fram að tónleikum.
Svo stöndum við fyrir tónleik-
unum Hátíðarhljómar, Hátíðar-
tónlist fyrir tvo trompeta og
orgel, bæði 30. desember og á
gamlárskvöld. Tónleikarnir eru nú
haldnir í 27. sinn,“ segir Pétur. „Þar
að auki verður Schola Cantorum
með glæsilega tónleika í vetur.
Það verða ókeypis jólatónleikar
15. desember, en þar verður boðið
upp á dagskrá með íslenskum
jólalögum og latneskum mót-
ettum frá endurreisnartímanum
og tónleikunum verður útvarpað
á RÚV. Ríkisútvarpið valdi Schola
cantorum sem fulltrúa Íslands
á jólatónleikaröð sem Samband
evrópskra útvarpsstöðva (EBU)
sendir út á þriðja sunnudegi í
aðventu frá morgni til kvölds. Það
verða einnig hádegisjólatónleikar
20. desember með Schola Cant-
orum kl. 12.00.“
Þétt dagskrá fram undan
„Næsti stóri viðburðurinn okkar
er 10. nóvember klukkan 17, en
þá verður Schola Cantorum með
a cappella tónleika sem nefnast
In paradisum, en tónleikarnir eru
hluti af allraheilagramessu,“ segir
Pétur. „Það er hægt að fá miða á
tónleikana á tix.is og þeir verða
líka fáanlegir í miðasölu kirkjunn-
ar klukkustund fyrir tónleikana.
Svo erum við í samstarfi við
Listaháskólann og 16. nóvember
klukkan 14 ætla nemendur skólans
að koma fram á ókeypis tónleikum
hjá okkur,“ segir Pétur.
Í desember er náttúrulega tölu-
vert þétt dagskrá og strax fyrsta
sunnudag í aðventu verður opnuð
ný myndlistarsýning í anddyrinu,“
segir Pétur. „Eftir messu, kl. 12.15,
opnar Guðrún Tryggvadóttir
sýningu sína.
Það er margt f leira fram undan
og við hvetjum fólk til að kynna
sér dagskrána á vefsíðum Listvina-
félagsins og Hallgrímskirkju,“ segir
Pétur.
Þeir sem hafa áhuga á að skrá sig í
Listvinafélag Hallgrímskirkju geta
gert það á vef félagsins, www.list-
vinafelag.is
Margt að gerast í kirkjunni
Listvinafélag Hallgrímskirkju sér um að skipuleggja og setja upp alls kyns tónleika og sýningar í
Hallgrímskirkju. Margir spennandi viðburðir eru á dagskrá það sem eftir lifir árs og á því næsta.
Pétur segir að félagið haldi tæplega 60 tónleika á ári og það séu fáar kirkjur
sem bjóða upp á jafn öfluga dagskrá og Hallgrímskirkja.FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
4 KYNNINGARBLAÐ 2 6 . O K TÓ B E R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U RHALLGRÍMSKIRKJA
2
6
-1
0
-2
0
1
9
0
4
:4
1
F
B
0
8
8
s
_
P
0
7
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
5
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
4
1
6
-9
B
7
C
2
4
1
6
-9
A
4
0
2
4
1
6
-9
9
0
4
2
4
1
6
-9
7
C
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
8
8
s
_
2
5
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K