Fréttablaðið - 26.10.2019, Qupperneq 72
Rakel Líf Jonathansdóttir er átta
ára en verður níu ára í nóvember.
Það skemmtilegasta sem hún gerir
á heimilinu er að baka.
Rakel Líf, í hvaða skóla ertu og
hvert er eftirlætisfagið þitt? Ég er
í Salaskóla og mér finnst skemmti-
legast að vera í smiðjum.
Hvernig leikur þú þér helst í frí-
mínútunum? Ég reyni alltaf að gera
eitthvað nýtt en mér finnst gaman
að róla og leika mér í hreystibraut-
inni sem er á skólalóðinni.
Hvað finnst þér skemmtilegast að
gera á heimilinu? Ég hjálpa stund-
um til við að elda mat en mér finnst
skemmtilegast að baka.
Hefur þú einhvern tíma orðið
hrædd? Já, ég er stundum smá
hrædd við dýr.
Hver eru helstu áhugamálin þín?
Ég er að æfa fimleika í Gerplu og svo
finnst mér gaman að syngja. Líka að
teikna og mála.
Áttu þér eitthvert uppáhaldslag?
Já, Draumar geta ræst sem Jón Jóns-
son syngur, það er uppáhaldslagið
mitt.
Hver er besta bók sem þú hefur
lesið? Bókin Verstu börn í heimi,
1 og 2.
En uppáhalds tölvuleikurinn? Ég
man ekki eftir neinu sérstöku nafni
en ég leik mér aðallega í símanum
mínum ef ég er að spila tölvuleiki.
Áttu þér eftirlætisstað á Íslandi,
annan en hverfið þitt? Mér finnst
skemmtilegt að vera á Akureyri,
Egilsstaðir eru líka í uppáhaldi af
því afi og amma eiga heima þar og
svo er gaman að fara til Vestmanna-
eyja.
Hefur þú farið til útlanda? Ég hef
komið til Danmerkur og það var
mjög gaman. Ég fékk að fara í Tívolí
og prófa öll tækin!
Hvað langar þig að verða þegar þú
verður stór? Mig langar að verða
mjög góð í fimleikum.
Draumar
geta ræst
er uppáhaldslagið
Rakel Líf langar að verða mjög góð í fimleikum. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Nornaþraut
Hér eru níu nornir fljúgandi á kústum. Hvaða tvær myndir eru eins?
1. Hvað er það sem
gengur án afláts
en kemst aldrei
til dyra?
2. Kringlótt eins og
kaka, svört eins
og moldin en
með langt skott.
Hvað er það?
3. Í hvaða
mánuði
borða menn
minnst?
4. Hvað eru
mörg
manna- og
bæjarnöfn á
vasahníf?
Gátur
Svör 1: Klukkan. 2: Steikarpanna. 3:
Febrúar, hann er stystur. 4: Oddur,
Hjalti, Skafti, Bakki, Kinn, Egg
ÉG REYNI ALLTAF AÐ
GERA EITTHVAÐ NÝTT
EN MÉR FINNST GAMAN AÐ
RÓLA OG LEIKA MÉR Í HREYSTI-
BRAUTINNI SEM ER Á SKÓLA-
LÓÐINNI.
„Jæja já, tölusúpa,“ sagði
Kata og virtist ekki vera
par hrifin. „Hvað eigum
við að gera við þessa
tölusúpu?“ Lísaloppa las
leiðbeiningarnar. „Við
eigum að byrja á bláu
tölunni tveir og með því
að fylgja bara sléttum
tölum lóðrétt og lárétt,
finna leið upp á töluna
4 á toppi teningsins.“
„Sléttar tölur og
oddatölur, það kann ég,“
sagði Kata hróðug. „Eru
annars 2,4,6 og 8 ekki
sléttar tölur?“ „Jú,“ sagði
Lísaloppa. „Þá vindum
við okkur bara í þetta,“
sagði Kata ákveðin.
„Ekki eftir neinu að bíða.“
Konráð
á ferð og flugi
og félagar
375
Getur þú fundið leiðina í gegnum talnateninginn
??
?
4 2 8 6 7 2 4 6 7 2 3 6
8 7 7 5 6 4 7 8 4 2 5 2
2 4 2 4 2 5 2 1 5 3 7 6
7 6 8 5 6 4 8 6 3 2 9 4
8 4 7 2 1 8 7 2 4 8 3 2
4 7 5 8 4 5 2 6 6 2 4 8
2 6 2 7 2 5 2 1 2 6 2 7
1 4 5 8 1 3 6 4 2 5 4 6
2 8 9 4 8 4 2 6 7 3 9 2
4 7 5 2 1 2 1 5 3 4 8 6
8 1 6 4 3 6 4 7 6 2 7 2
2 6 2 7 8 3 2 8 2 1 5 6
?
?
2 6 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R36 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
KRAKKAR
2
6
-1
0
-2
0
1
9
0
4
:4
1
F
B
0
8
8
s
_
P
0
7
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
5
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
4
1
6
-9
6
8
C
2
4
1
6
-9
5
5
0
2
4
1
6
-9
4
1
4
2
4
1
6
-9
2
D
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
8
8
s
_
2
5
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K