Fréttablaðið - 31.10.2019, Side 60
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Svava O’Brien svava@frettabladid.is,
Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann
Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir
elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is
ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is
Á PLÖTUNNI RAPPA ÉG
UM ALLT FRÁ LOSTA
YFIR Í REIÐI, ÞUNGLYNDI OG
SJÁLFSVÍGSHUGSANIR. EN ÞESS
Á MILLI ER ÉG LÍKA MJÖG
BERSKJÖLDUÐ OG MJÚK Í MÉR.
3 1 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R44 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
okkar allra
fyrir forvitna
Hefst í kvöld kl. 20.05
Ferða- og matreiðsluþáttur þar sem Kristinn
Guðmundsson ferðast með vini sínum, Janusi Braga,
um heimaslóðir sínar á Reykjanesi og eldar fyrir hann.
Föstudaga kl. 9.05
Vera Illugadóttir skoðar atburði og málefni líðandi
stundar í ljósi sögunnar.
Fyrsta plata rapparans Dýrfinnu Benitu kom út á miðnætti, en hún rappar undir nafninu Countess Malaise. Platan heitir Hystería og snertir
á ýmsum þemum sem eru Dýrfinnu
hugleikin.
Erfitt að kveðja pabba
„Í kvöld er ég að spila á Tiny Terror
í Iðnó, en það var löngu ákveðið
áður en að ljóst var að platan kæmi
út í dag,“ segir Dýrfinna en hrekkja-
vökustemning mun ríkja á viðburð-
inum í kvöld.
Platan hefur verið í vinnslu í um
ár, en lögin sem á henni eru hafa
aldrei heyrst áður.
„Ég kláraði námið mitt í Amst-
erdam árið 2018, en þar lærði ég
myndlist og hönnun. Á meðan
ég var í náminu þá hóf ég að gera
tónlist undir nafninu Countess
Malaise. Ég fékk f ljótlega athygli
og byrjaði strax að spila í Evrópu
og hérlendis, mjög reglulega og á
meðan ég var í skóla. Dagskráin
var mjög þétt hjá mér. Eftir útskrift
ákvað ég að það væri gott að gera
heildstætt verk, heila plötu.“
Dýrfinna segist hafa f lutt heim,
ekki einungis til að vinna í plötunni
heldur einnig í sjálfri sér.
„Ég var orðin ótrúlega andlega
veik. Pabbi minn var líka orðinn
mjög gamall og ég vildi vera hérna
á landinu hjá honum.“ Faðir Dýr-
finnu lést fyrr í vikunni og segir hún
að það hafi verið henni ómetanlegt
að fá að vera með honum síðustu
dagana.
Langaði að vera berskjölduð
Dýrfinna var byrjuð á einu lagi áður
en hún útskrifaðist.
„Þetta var búið að vera mér hug-
leikið lengi. Rappheimurinn hérna
heima samanstendur mest af strák-
um. Senan er smá einsleit, hvítir
ungir strákar að rappa um sömu
hlutina. Mig langaði að koma með
eitthvað öðruvísi, hugsa út fyrir
boxið. Mig langaði líka að opna mig
og vera berskjölduð.“
Hún segir einnig að hana hafi
langað að vera einhvers konar fyrir-
mynd fyrir þá sem upplifa sig utan-
velta.
„Fólk sem hefur ekki neinn á
svipuðu reki til að líta upp til innan
íslensku senunnar. Þá er ég að
tala um stelpur, non-binary, fólk
í LGQTB+ samfélaginu og marga
f leiri, sem ég styð af öllu hjarta.
Ég skilgreini mig ekki endilega
nákvæmlega innan samfélagsins,
sjálfri finnst mér ekki skipta máli
að kynferði mitt komi fram. Ég
leik mér mikið með sjálfið og kyn-
ímyndir. Áður hefði ég verið kölluð
strákastelpa en núna er það algjör-
lega úrelt hugtak. Mig langar að
vera fyrirmynd fyrir fólk sem hefur
upplifað sig utanveltu, jafnvel fólk
með geðheilsuvandamál þar sem ég
þekki það vel af eigin raun.“
Rappar um andlegu veikindin
Margir af bestu vinum Dýrfinnu og
einnig fjölskildumeðlimir tilheyra
LGQTB+ samfélaginu og því eðlilegt
að það hafi orðið henni innblástur.
„Ástæðan fyrir nafninu á plöt-
unni minni, Hystería, er sú að það
er dregið af forngríska orðinu yfir
leg. Hér áður fyrr var það notað yfir
konur sem voru settar á geðveikra-
hæli, fengu rafstuð og illa meðferð.
Þessar konur voru þar áður kallaðar
nornir. Konur með skoðanir eða
kvíða, sem földu ekki kynferði sitt,
sem tóku áhættu og börðust fyrir
réttindum sínum. Þær voru bara
afskrifaðar sem geðveikar, sagt að
þær væru með hysteríu. Því finnst
mér orðið eiga vel við og það sem ég
stend fyrir. Á plötunni rappa ég um
allt frá losta yfir í reiði, þunglyndi
og sjálfsvígshugsanir. En þess á milli
er ég líka mjög berskjölduð og mjúk
í mér.“
Hysteríu er hægt að nálgast á
öllum helstu streymisveitum.
steingerdur@frettabladid.is
Berskjölduð Dýrfinna
Dýrfinnu Benitu langaði að heiðra þá sem upplifa sig utanveltu, sér-
staklega innan íslensku rappsenunnar. Útkoman er platan Hystería
sem kom út á miðnætti. Hún rappar um losta, þunglyndi, sjálfsvígs-
hugsanir og reiði, en er umfram allt berskjölduð og heiðarleg.
Countess Malaise kemur fram á Tiny terror-viðburðinum á Iðnó í kvöld.
3
1
-1
0
-2
0
1
9
0
5
:0
6
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
4
2
0
-9
6
A
4
2
4
2
0
-9
5
6
8
2
4
2
0
-9
4
2
C
2
4
2
0
-9
2
F
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
6
4
s
_
3
0
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K