Fréttablaðið - 31.10.2019, Side 4

Fréttablaðið - 31.10.2019, Side 4
Bankinn tilkynnti ekki um hliðarstarfsemi sína eins og skylt er. ® 37” BREYTTUR CREW CAB RAM 3500 GLÆSILEGT ÚTLIT, NÝJAR ÚTFÆRSLUR OG FJÖLMARGAR TÆKNINÝJUNGAR Í BOÐI. EIGUM TIL CREW CAB BIG HORN, LARAMIE, SPORT OG LIMITED ÚTFÆRSLUR TIL AFGREIÐSLU STRAX. EINNIG MEGA CAB Í LARAMIE OG LIMITED ÚTFÆRSLUM . BJÓÐUM UPP Á 35”-40” BREYTINGAR RAM 3500 VERÐ FRÁ: 6.987.745 KR. ÁN VSK. RAM 3500 VERÐ FRÁ: 8.640.000 KR. M/VSK. ramisland.is UMBOÐSAÐILI RAM TRUCKS Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR S. 534 4433 • WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16 VIÐSKIPTI Kvika banki lét hjá líða að tilkynna Fjármálaeftirliti um svonefnda hliðarstarfsemi bank- ans, eins og kveðið er á um að gera skuli í lögum um fjármálafyrirtæki. Vegna þessa hafa bankinn og eftir- litið gert með sér samkomulag um að bankinn greiði sekt að fjárhæð þrjár milljónir. Þetta kemur fram í gagnsæistilkynningu eftirlitsins. Segir þar að helstu skilyrði þess að viðskiptabanki megi stunda hliðar- starfsemi séu annars vegar að starf- semin sé í eðlilegu framhaldi af fjármálaþjónustu fyrirtækisins og hins vegar að Fjármálaeftirlitinu sé tilkynnt um starfsemina sem fyrir- huguð er. Í lögunum er kveðið á um að brot lögaðila á þessari tilkynn- ingarskyldu geti numið frá fimm hundruð þúsund krónum til átta hundruð milljóna króna, en geti þó farið umfram það að uppfylltum til- teknum skilyrðum. – jþ Kvika greiðir milljónir í sekt til Fjármálaeftirlitsins Allar nýjustu fréttir og blað dagsins eru fáanleg á www.frettabladid.is 1 Fjöl skyld u mað ur vann fyrst a vinn ing: „Af leig u mark aðn um yfir í eig ið hús næð i“ Þriggja barna fjölskyldufaðir á höfuðborgar- svæðinu vann fyrsta vinning í Lottói, tæpar 42 milljónir. 2 Freyja vann í Hæstarétti Hæstiréttur kvað upp dóm sinn í gær í máli Barnaverndar- stofu gegn Freyju Haraldsdóttur. 3 Þetta eru bestu veitingahús Íslands Veitingastaðurinn ÓX er talinn besti veitingastaðurinn á Íslandi að mati White Guide, leiðarvísis um matargerð. 4 Súrefnismettunarmæla í allar flugvélar: „Ég var orðinn blár í framan“ Daníel Wirkner fékk flogakast um borð í vél Icelandair á leið frá Alicante til Keflavíkur. 5 Syrgj endur í vímu eftir að ó vart var boðið upp á hass­ köku í jarðar för Táningsdóttir starfs manns veitinga hússins hafði bakað kökuna fyrir annað til efni. FERÐAÞJÓNUSTA Samtals 183.107 farþegar komu til Íslands með skemmtiferðaskipum á þessu ári. Síðasta skip sumarsins sigldi úr Sundahöfn eftir miðnætti í fyrrinótt. Það var farþegaskipið Astoria sem bæði hóf skemmtisiglinga- tímabilið til Íslands og lauk því. Astoria kom fyrst til Sundahafnar að morgni 16. mars og sigldi þaðan síðustu ferðina í fyrrinótt. Auk fyrrnefndra farþega var 80.241 áhafnarmeðlimur um borð í skemmtiferðaskipunum 84 sem hingað komu í alls 194 ferðum. – gar Síðasta skipið í haust fór í gær Í Sundahöfn. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI SAMFÉLAG Síðastliðinn mánudag varð Jóna Guðrún Ólafsdóttir fyrir þeirri óskemmtilegu reynslu að sjá greiðsluseðla frá Greiðslu- miðlun upp á rúma milljón á heimabanka sínum. Kannaðist hún ekki við færslurnar sem voru vegna viðskipta við raftækjarisann Elko. Nánari athugun leiddi í ljós að dóttir hennar, sem er í mikilli neyslu, hafði náð að stofna reikn- ing í hennar nafni á greiðslusmá- forritinu Pei og gat þannig keypt raftæki fyrir alla upphæðina. „ Að öllu m lík indu m hef u r hún komist yfir lykilorðið mitt á Íslyklinum og það dugði til þess að stofna reikning í mínu nafni inni á þessu greiðsluforriti. Síðan fæ ég bara fjóra greiðsluseðla inn á heimabanka minn upp á rúma eina milljón króna samtals og hef fjór- tán daga til að borga,“ segir Jóna Guðrún. Hún hef ur ver ið opin með reynslu sína sem aðstandandi fík- ils. Þá segist hún hafa lent í margs konar sambærilegum vandræðum vegna neyslu dóttur sinnar en iðulega taki fyrirtækin einhverja ábyrgð. Það sé þó ekki svo í tilviki Elko og Greiðslumiðlunar. „Dóttir mín náði rúmlega 300 þúsund krónum út af tékkareikn- ingi mínum hjá Arion banka í sumar með því að nota gamalt lykilorð að reikningi. Bankinn gekkst við þeim mistökum og end- urgreiddi mér upphæðina. Þá náði dóttir mín einnig að kaupa sér f lug- miða til Spánar hjá Úrvali Útsýn en þar mætti ég miklum skilningi og kaupin gengu til baka,“ segir Jóna Guðrún. Sömu sögu sé ekki að segja af Elko og Greiðslumiðlun. „Viðmótið hjá báðum þessum fyrirtækjum er að ég eigi að sitja uppi með tjónið. Nafn dóttur minnar kemur fram sem kaupandi að raftækjunum hjá Elko en reikningurinn er sendur á mig. Það kvikna engar spurningar þó að kona í annarlegu ástandi kaupi raftæki fyrir rúmlega millj- ón í fjórum ferðum og á reikning annars aðila,“ segir Jóna Guðrún. Hún hefur leitað ráðgjafar hjá lög- fræðingi og hyggst kanna rétt sinn vegna málsins. Lögmaður Greiðslumiðlunar segir að fyrirtækið geti ekki tjáð sig um málefni einstakra viðskipta- vina. Hann staðfestir að nóg sé að komast yfir lykilorð á Íslyklinum og kennitölur til þess að skrá sig inn á greiðslulausnina. „Það er raunveruleikinn í dag á þessum tímum rafrænna lausna. Það er mikilvægt að fólk passi upp á lykilorðin sín,“ segir Bjarni Þór Óskarsson lögmaður. Að hans sögn eru slík fjársvik í gegnum Pei afar sjaldgæf en þó hafi vissulega komið upp nokkur tilvik. „Það er eins og með allar greiðslulausnir, því miður reyna óprúttnir aðilar að hafa fé af fólki,“ segir Bjarni Þór. bjornth@frettabladid.is Situr uppi með milljón króna fjártjón út af stolnu lykilorði Móðir fíkils var sér óafvitandi skuldsett fyrir rúma milljón króna í gegnum greiðslulausnina Pei sem Greiðslumiðlun rekur. Hún gagnrýnir hve auðvelt sé að skrá aðra í slík viðskipti. Dóttir hennar keypti síma og spjaldtölvur í Elko fyrir alla upphæðina. Fyrirtækin segja móðurina sitja uppi með tjónið. Það kvikna engar spurningar þó að kona í annarlegu ástandi kaupi raftæki fyrir rúmlega milljón í fjórum ferðum og á reikning annars aðila. Jóna Guðrún Ólafsdóttir Jóna Guðrún Ólafsdóttir hefur áður lent í svipuðum vanda vegna neyslu dóttur sinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR 3 1 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 3 1 -1 0 -2 0 1 9 0 5 :0 6 F B 0 6 4 s _ P 0 6 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 2 0 -8 7 D 4 2 4 2 0 -8 6 9 8 2 4 2 0 -8 5 5 C 2 4 2 0 -8 4 2 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 6 4 s _ 3 0 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.