Fréttablaðið - 31.10.2019, Side 26
Við elskum að dekra við konur og finna handa þeim réttu klæðin við öll lífsins
tilefni og árstíðir,“ segir Guðrún
Axelsdóttir, eigandi Bernharðs
Laxdal í Skipholti.
Kápur og sparikjólar hafa verið
sérgrein Bernharðs Laxdal í 80 ár
og þar svigna nú fataslár og búðar-
borð undan dýrindis sparifatnaði,
fallegum kápum sem gera allar
konur glæsilegar og flottum úlpum
sem klæða konur vel og umvefja
þær hlýju í vetrarhörkunum.
„Við erum með gríðarlega mikið
úrval af kvenfatnaði og í hverri
viku koma nýjar vörur. Því er úr
miklu og freistandi úrvali að velja,“
segir Guðrún í glæsilegri verslun
Bernharðs Laxdal þar sem tekið er
af alúð og natni á móti viðskipta-
vinum og þaðan fara allar konur
sælar heim.
Fornfræg kvenfataverslun
Hjá Bernharð Laxdal fást heims-
þekkt og eftirsótt vörumerki. Þar
á meðal Gerry Weber, Taifun,
Samoon, Betty Barclay, Vera Mont
og fleiri og fleiri.
„Bernharð Laxdal er fornfræg
kápuverslun og hefur glatt konur
í áratugi með glæsilegu úrvali af
kápum og alls kyns dúnkápum og
dúnúlpum,“ segir Guðrún.
„Öll vörumerki í Bernharð
Laxdal styðja ábyrga framleiðslu.
Þar má nefna hágæða, ítalskar
ullarkápur frá Cinzia Rocca sem
eru algjör klassík, ásamt fleiri
frábærum merkjum sem saman-
standa af einstakri hönnun og
gæðum. Þá erum við með glæsilegt
úrval skinnkraga og skinntrefla
sem prýða hverja konu í svölum
haustvindum og vetrarríkinu,“
upplýsir Guðrún sem býður við-
skiptavinum upp á síðdegisfjör í
versluninni í dag klukkan 16 til 18.
„Við ætlum að njóta léttra
veitinga, horfa á glæsilega tísku-
sýningu og bjóða upp á dásamleg-
an klæðnað og fylgihluti á tilboði,
eins og dýrindis kápur og úlpur
frá Gerry Weber, Taifun og Betty
Barclay sem bjóðast á 20 prósenta
afslætti fram á laugardag.“
Bernharð Laxdal er í Skipholti 29b.
Sími 551 4422. Skoðið úrvalið á
laxdal.is.
Bernharð Laxdal styður í hvívetna ábyrga framleiðsluhætti. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Þær Anna, Hjördís, Lilja og Guðbjörg taka af alúð á móti viðskiptavinum.
Verslun Bernharðs Laxdal er í glæsilegu húsnæði að Skipholti 29b.
Sumir af fegurstu kjólum landsins fást einmitt í Laxdal.
Dömuleg buxnadragt í rauðum lit er íðilfögur í vetur.
Aðlaðandi er
konan ánægð
og það er hún
svo sannarlega
komin í fallegan
kjól frá Bern-
harð Laxdal.
Rósbleikur síðkjóll er rómantískur á síðkvöldum vetrar.
Við ætlum að njóta
léttra veitinga í
dag, horfa á glæsilega
tískusýningu og bjóða
upp á dásamlegan
klæðnað og fylgihluti á
frábæru tilboði.
Fínn blazer-jakki er sígild flík og passar við öll tækifæri.
20% afsláttur af Gerry Weber, Taifun og Betty Barclay
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 3 1 . O K TÓ B E R 2 0 1 9 F I M MT U DAG U R
3
1
-1
0
-2
0
1
9
0
5
:0
6
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
2
0
-B
4
4
4
2
4
2
0
-B
3
0
8
2
4
2
0
-B
1
C
C
2
4
2
0
-B
0
9
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
0
6
4
s
_
3
0
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K