Úti - 15.12.1936, Blaðsíða 7

Úti - 15.12.1936, Blaðsíða 7
IITI 7 íshafsströnd, sem fara skvldi á skipi frá vesturströnd Ameríku, norður Berings- sund inn í íshafið og svo austur eftir meðfram strönd Alaska og Kanada. Hann kaus lieldur að sleppa þessari löngu sjó- ferð og fara landleiðina. Hún er tiltölu- lega hein og er það þó um 3000 kílómetra vegur. Mikið af þeirri leið er farið eflir Mackenzie-fljótinu. Skyldi Vilhjálmur hitta leiðangursskipið við Herscheleyju, sem er nokkuð fyrir vestan mynni fljóts- ins. En svo fór um sjóferð þá, að skipið komst ekki alla leið vegna ísa og stóð því Vilhjálmur þarna uppi einn síns liðs. Þarna voru þó hvítir menn örfáir, sem bjuggu í sæmilegum húsakynnum og að mestu við matvæli úr heimkynnum sín- um, og huðu þeir Vilhjálmi vist með sjer. En hann kaus sjerlieldurvistmeðEskimó- unum. Hann ætlaði sjer að kynnast þeim og hann vissi, að sú kynning yrði alt önnur, ef hann byggi í sjerstöku liúsi og kæmi til þeirra sem gestur, heldur en ef hann dveldi alveg meðal þeirra, í þeirra húsakynnum, við þeirra matvæli, í þeirra fatnaði o. s. frv. Úr því að þeir gátu lifað við þetta, þá átti hann að geta það líka. En til þessa hefði ekki komið ef leiðang- ursskipið hefði náð áfangastaðnum; þá hefði hann dvalið meðal fjelaga sinna og starfað með þeim um veturinn. Nú hefjast kyrini Vilhjálms af Eski- móum, af lífi þeirra og siðum — og ferða- Iögum. Hann lærir mál þeirra og um- gengst þá eins og einn af þeim. Það mundi margur telja, að hann hefði orðið að láta ýmislegt á móti sjer, eða það sem kallað væri að „yfirvinna sjálfan sig“, en Vilhjálmur gerir lítið úr því. Ef það er eitthvað, sem honum finst liann vanta, þá hugsar hann sem svo: „Ekki þarfnast þeir þess, þvi skyldi jeg þá þarfnast þess heldur?“ Nú fór hann að lifa eingöngu á keti, eða eingöngu á fiski, eftir því sem á stóð. Lengi vel var hann að treina sjer salt í rnatinn, en það nota Eskimóar ekki. Svo kom að því, að það þraut, en nokkru seinna fjekk hann salt hjá kunninga sín- urn. Þá kom það fyrir að hann gleynrdi að láta salt í matinn, þ. e. hann fann að það var engin nauðsyn. Og svo hætti hann því alveg. Mataræði. Þar sem Vilhjálmur settist að fyrst veiðist mikið af fiski, í nrynni Macken- zie-fljótsins. Frost eru þarna stöðug all- an veturinn og geymist hann því frosinn. Við máltíðir er lrann borinn inn þannig og látinn þiðna, þangað til hann er orð- inn álíka nreir og ískrenr. Þá er hann et- inn þannig, ósoðinn. 1 annað rnálið, en þarna er etið tvímælt, var liann þó oftast soðinn, lielst hausarnir, sem þóttu sjer- stakt sælgæti. (Helsti fiskurinn er laxa- ættar og mun hausinn þvi vera feitur). Nú hafði Vilhjálmur einmitt lraft óbeit á fiski, alt frá því er lrann var barn. Taldi móðir lrans það stafa af því, að í æsku, er hungursneyð gekk yfir, hefði fiskur verið eina næringin er hann fjekk og mundi lrann því hafa fengið leiða á hon- um. Nú sinti liann þessu ekki og fann þá, að þetta hafði ekki verið annað en kenjar. Annars lifa Eskimóar mikið á sela- og hreindýrakjöti. Er það etið soðið, en þó liklega snöggsoðnara en hjer hjá okkur. Ilreindýrakjöt er stundum þurkað eða liert. Þegar meira aflast af því að sumrinu en etið er, er ekki hægt að geyma það öðrnvísi. Vilhjálmur liafði mikið heyrt talað um óþef inni i híbýlum Eskimóa. En þar sem það var mest matarþefur, vandist hann honum um leið og liann vandist matnum. Ef hann kom svangur heim frá útiveru, fanst honum þefurinn meira að segja þægilegur. Hann lærði þarna margt, sem honum þótti merkilegt og sem hann hefir haldið fram síðan og meira að segja sannað með tilraunum á sjálfum sjer. Svo er t. d. um einhæft mataræði. „Jeg þekki menn, sem hafa verið orðnir leiðir á selsketi eftir þrjár vikur eða þrjá mánuði, en

x

Úti

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Úti
https://timarit.is/publication/1404

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.