Úti - 15.12.1936, Blaðsíða 32

Úti - 15.12.1936, Blaðsíða 32
32 ÚTI var staddur, segir skátunum að nú þurfi skjót liandtök, því einn flugmannanna liggi hálfdruknaður í flæðarmáli vatns- ins, annar sje fótbrotinn og sá þriðji mik- ið brunninn. Foringi skátanna skipar nú fyrir, hvernig best sje að haga hjálpar- starfinu, þannig að allir fái sem fyrst bráðabyrgðahjálp við meiðslunum. Eins og góðum skátaflokki bar, hafði flokkur- inn ágætt ferðaapotek með sjer, og allir kunnu skátarnir að veita fyrstu iijálj). Þá eru þeir spurðir um, hvar sje næsti læknir, bílvegur og svo framv. Þegar þessu er lokið, har skátunum að velja Ijaldstað og slá þar upp tjöldum sínum. Með nokkru millibili komu svo flokk- ar þeir, sem eftir voru. Fóru þeir að öllu eins og fyrsti floklcurinn, bundu um sár hins brenda og hins fótbrotna manns og gerðu lífgunarlilraunir á þeim druknaða. Síðan tjölduðu þeir. Allir komust flokk- arnir þannig heilu og höldnu að mark- inu. Auðvitað voru þeir misjafnlega dug- legir að rata í myrkrinu og eins að veita hjálpina, en alt fór það samt rjett fram. í þessum leik reynir jafnt á foringja og liðsmenn flokkanna. Foringinn verð- ur að vera fljótur að átta sig á því, hvern- ig hest er að skipa drengjunum fyrir verkum, bæði þegar taka þarf upp tjöld- in, í einni svipan, og eins þegar komið er að hóp slasaðra manna, að gæta þess að allir geri eittlivað, og að öllum hinum særðu sje veitt hjálpin jafn fljótt. Þá ríð- ur og á þvi, að rjett átt sje valin á átta- vitanum og að skátarnir kunni einnig að notfæra sjer það, að rata jafnldiða eftir stjörnunum, ef þær sjást, og athuga vindstöðuna. Þannig reyna skátarnir að afla sjer þekkingar og þjálfunar í leik til þess að geta verið viðbúnir, þegar til alvörunnar kemur. Það hefir því miður oft sýnt sig, að þegar fólk kemur að slysastað, stendur það ráðþrota, jafnvel þótt það hafi lært BLAÐAMÁL ÍSL. SKÁTA. Framh. af hls. 28. nefndin til, að auki, að til reynslu skyldi þetta fyrirkomulag haft í eitt ár, en ef j)að sýndi sig þá, að halli yrði ekki á út- gáfunni, skyldi BÍS reka útgáfu blað- anna í framtíðinni. Nú hefir stjórn BÍS ráðið, sem út- gáfustjóra Axel Sveins skálaforingja. Bitstjóri „Úti“ verður eins og áður Jón Oddgeir Jónsson. Hann var og ritstjóri ,Slcátablaðsins“, en samkvæmt tillögum hans, um að sami maður hafi ekki rit- stjórn nema eins blaðs á hendi, þá lætur hann af ritstjórn „Skátablaðsins“. I stað hans hefir herra Steingrímur Arason, varaskátaliöfðingi íslands, tekið við ril- stjórn „Skátablaðsins“ ásamt Frank Michelsen. Ritstjórn fyrir „Skátann", sem koma mun út, sem foringja og R. S. blað, eftir nýjár, liefir ekki eun verið ákveðin. Leifur Guðmandsson. hjálp í viðlögum. Það vantar einbeitni til þess að byrja. Að mínu áliti þurfa því allir, hvort sem þeir eru skátar eða ekki, að þjálfa sig í j)ví að koma á slysastað. Það er hægt með þvi að fara að eitthvað líkt og skát- arnir, sem sagt er frá hjer á undan. Mörg dæmi úr daglega lífinu sanna, að fum og ráðaleysi á slysastað, hefir gert mikið tjón. Verum viðbúnir. Daniel Gíslason.

x

Úti

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Úti
https://timarit.is/publication/1404

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.