Úti - 15.12.1936, Blaðsíða 23

Úti - 15.12.1936, Blaðsíða 23
U T I 23 Vængjatak Eftir Jón Hallgrímsson, Akranesi. Þegar stjörnurniar glitra, langt úti í geimnum og ekkert skýþykni hylur þær sjónum vorum, þá er sem hvíslað sje til mannanna, að líta upp lil hins stirndi- skrýdda himins. Þeim er það frónn að horfa og hugsa út í geiminn. Fyrir aug- nm vorum hlikar stjarna stjörnu fegri, er smámsaman tengja hugsun og óskir um vængjatak upp og út í geiminn. til hinna fjarlægu hnatt-stjarna. Menn velta fyrir sjer spurningum sjálfra sín og' svör- nm vísindanna. Skoðanir þeirra verða á ýmsa vegu, um líf og lífverur hinna fjarlægu hnatta. Niðurstaða þeirra verð- ur óljós trú á það, að á stjörnunum hljóti að þroskast líf, í einhverri mvnd. Ein af þeim stjörnum, sem mennirnir hyggja, er jörðin. Þar glima jieir við hin ýmsu verkefni, er náttúran og jieir sjálf- ir, skapa. Þeir vinna liver á sínu sviði, eftir þroska, staðháttum og stefnu vilja- kraftsins. Öld eftir öld hafa þeir barist við öfl náttúrunnar. Nokkur þeirra hefir þeim tekist að heisla að einhverju levti, sjer og eftirkomendunum til hægðarauka og liagsældaí i lífinu. En fleiri eru þau öhundnu og sterku öfl náttúrmmar, er mennirnir engu geta ráðið um, nje hag- nýtt. Með kunnáttu menningariimar hefir mönnunum tekist að vinna löndin, en jafnframt skapað ýms neikvæð öfl, er siðan vinna á móti heilbrigðri menningu og hugsjónum. Verður jiess vonandi ekki langt að biða að hinir ungu íslensku svifflugmenn sjá- ist með slik merki í hnappagatinu. Agnar Eldbérg Kofoed-Hansen, flugmaður. Hvert þjóðfjelag, liinna svo nefndu menningarþjóða, byggir upp tilveru sína á jieim grunni, er þeim hefir tekist að leggja, og kostar kajips um að ekki hall- ist grundvöllurinn undan ólmum öldum augnabliks-gælu móðsins, og annara fall- valstra fvrirhrigða nautnahálsins, er á ýmsum tínmm virðist hrenna svo skært. En þrátt fvrir varnir þjóðanna gegn ýmsum miður heilbrigðum öflum, jiá sýna staðrevndir, að straumköst hinna neikvæðu afla er sterk. Mennirnir hafa komið auga á kosti og lesti í lifi einstaklinga og þjóða. Þeir hafa fundið upp lvf og læknisaðgerðir, til viðreisnar jieim sjúku. Þeir hafa leitt vísindin lil verka, til þes að vinna heild- inni gagn, en stundum hefir þekkingin snúist á annan veg, en vísindafrumuð- irnir vildu. Það eru til tvær leiðir í lífinu. Þær heita Vel og Illa. Hvor um sig, hefir sína kosti, og mótar því vegfarandann i hvert sinn eftir viðeigandi starfslöngun. Það er mannanna sjálfra að ska]ia sjer lifsveg. Það voru einusinni tveir jafningjar á ferð. Þeir átlu engan veraldarauð, en Jieir áttu sinn eigin: heilbrigði likama og sálar. Þróttur hins unga manns svall Jieim í æðum, og ferðajirá æskunnar, til jies að kann stigu lífsins. Þeir ræddu sín á milli um að ferðast og finna frelsi og frama. Þeir hugsuðu málin og tóku sínar ákvarðanir. Þeir vildu að heiman, út i lifið til að leita; leita þess, er helgast væri til hagsældar jarðbundnmn æskumönnum, er jiráðu flug um geiminn. Að heiman var haldið um sumarlijart kvöld, út á hafið, til öflunar gulls úr grevpum ægis. Síðar lágu leiðir þeirra up]i til landsins og þar skildi með þeim. Annar var lengi á sama stað og vann sjer velvild og traust, með trúu starfi sínu, Iivort sem það var auðvelt eða erfitt. Hann valdi leiðina Vel. Framh. á bls. 35.

x

Úti

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Úti
https://timarit.is/publication/1404

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.