Úti - 15.12.1936, Page 33

Úti - 15.12.1936, Page 33
ÚTI 33 Væringjavika Skátafjelagið Væringjar verður 25 ára gamalt 1. sumard. 1938. Stjórn fjelagsins liefir ráðgert ýmisl. um, livernig þessa afmælis yrði best minst, og fer hjer á eftir nánari frásögn um það, eftir ritara stjórn- arinnar, Leif Guðmundsson. Elsta skátafjelag'ið á íslandi, verður 25 ára fyrsta sumardag 1938. Sama ár eru liðin 30 ár frá því að fyrstu skáta- flokkarnir voru stofnaðir í Englandi, svo sjá má að skátahreyfingin hefir borist furðu fljótt liingað til lands. Undanfarin ár hafa skátar hinna ýmsu landa heims verið að halda upp á 25 ára aímæli sín, og er nú röðin brátt komin að okkur íslensku skátunum. Væringjarnir í Reykjavík hafa þegar að nokkru hug'sað sjer, hvernig þeir í að- aldráttum vilja minnast 25 ára starfs. Sumardagurinn fyrsti 1938, verður auð- vitað aðalhátíðisdagurinn, en sá dagur verður byrjun á „Væringjaviku“ i Revkjavik. Opnuð verður skátasýning í yikutíma. I sýningunni munu allar skáta- sveitir landsins taka þátt, eða það vona Væringjarnir. Þar verða sýndir munir, er skátar hinna ýmsu skátasveita landsins hafa búið til. Þar verða einnig sýnd skátablöð og' bækur frá hinum ýmsu löndum heimsins. Sýnt verður á hvern hátt skátar starfa, allskonar útileguút- búnaður sýndur og fl. í sambandi við sýninguna sje haldin basar. Áður en sýni- ingin hefst ganga skátasveitir bæjarins fylktu liði um götur borgarinnar til þess að vekja athygli fólks á sýningunni. Um kveldið hlýða skátar messu í dómkirkj- unni. Að öðru leyti fer „Væringjavikan“ þannig fram: Haldin verður skemtun fyr- ir alla skáta í bænum. Samkoma verður baldin fyrir foreldra skátanna, þar sem þeir g'eta kynt sjer á bvern hátt skátarnir starfa. Haldin sje kvikmyndasýning, er sýni skátalíf hjer og' erlendis. Utbreiðslu- fundur sje haldin fyrir dreng'i, sem ekki eru skátar. Stór hópsýning fer fram, þar sem sýndar verða allskonar skátaíþróttir, og að lokum útvarpskvöld, er skátar standa að. Um sumarið hafa Væringjar hug á, að lialda skátamót með þátttöku, sem flestra skáta landsins. Á mót þetta munu þeir einnig bjóða erlendum skátum, frá Norð- urlöndum og Englandi. Undirbúningur undir þáttöku erlendra skáta í mótinu mun verða hafin á Jamboree í Hollandi næsta sumar. I sambandi við 25 ára af- mælið munu Væringjarnir gefa út vand- að minningarrit. Jeg hefi nú lauslega getið þess, hvernig Væringjarnir vilja minnast 25 ára afmæl- is síns, þó að vísu sje ekkert endanlega ákveðið enn um alla tilhögun, en þeir vænta þess, að B. í. S. ásamt skáta- fjelögum landsins styðji þá með allan undirbúning, svo þessi merki viðburður í sögu íslenskra skáta geti orðið til sem mestrar eflingar skátahreyfingunni lijer á landi. Leifiir Guðnumdsson. Á barmi gamlaGeysis

x

Úti

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úti
https://timarit.is/publication/1404

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.