Skessuhorn - 28.01.2015, Blaðsíða 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 5. tbl. 18. árg. 28. janúar 2015 - kr. 750 í lausasölu
HEFUR SAFNAÐ FYRIR
ÖKUTÆKI
FYRIR HVERJU
LANGAR ÞIG AÐ SAFNA?
Allt um sparnað á arionbanki.is/reglulegur_sparnadur
Lúsina burt!
Nefúði!
Naso-ratiopharm
Grænn er
fyrir börnin
FRAMKÖLLUNARÞJÓNUSTAN EHF
BRÚARTORGI - 310 BORGARNESI - S. 437 1055
www.framkollunarthjonustan.is
Í kvöld, miðvikudag klukkan 21:30, verður fyrsti þáttur Sjónvarps Skessuhorns sendur út á sjónvarpsstöðinni ÍNN. Þátturinn
er hálftíma langur. Hann verður sá fyrsti af tólf mannlífs- og fréttaþáttum sem Skessuhorn mun framleiða til sýningar á ÍNN
og síðar á internetinu. Starfsmenn Skessuhorns hafa unnið að undirbúningi þessa verkefnis síðan um áramót. Framleiðsla á
efni er komin vel í gang en efnistök verða um gervallt Vesturland. Meðfylgjandi mynd var tekin í Akranesvita á mánudaginn
þegar Magnús Þór Hafsteinsson fréttamaður og Friðþjófur Helgason tökumaður voru að taka upp kynningu fyrsta þáttar.
Ljósm. hs.
Menntamálaráðherra hefur sett
fram þá hugmynd að sameina
Landbúnaðarháskóla Íslands, Há
skólann á Bifröst
og Háskólann á
Hólum í nýrri
s j á l f s e i g n a r
stofnun. Þetta
varð opinbert
eftir að Björn
Þ o r s t e i n s s o n
rekstor Land
búnaðarháskóla
Íslands sendi
starfsmönnum skólans tölvupóst
síðastliðinn þriðjudag. Í bréfinu
kemur fram að Illugi Gunnarsson
menntamálaráðherra hafi sett fram
þá hugmynd að búin verði til ný
sjálfseignarstofnun þar sem sam
einaðar verði fyrrgreindir skólar. Í
menntamálaráðuneytinu er unnið
að úttekt á háskólakerfinu í heild,
en fram hefur komið hjá Illuga
Gunnarssyni sú skoðun hans að há
skólar í landinu séu of margir.
Benda má á að næstkom
andi föstudag klukkan 9:30 hefst
í Hjálmakletti í Borgarnesi ráð
stefna um framtíð háskóla í Borg
arbyggð. Þar verður Illugi Gunn
arsson menntamálaráðherra meðal
gesta. mm
Ljósmynd Steinunnar Matthías
dóttur áhugaljósmyndara í Búðar
dal hlaut á dögunum fyrstu verð
laun í jólaljósmyndasamkeppni
mbl.is og Canon. Steinunn hlaut
að launum 18 pixla Canon EOS
1200Dmyndavél með linsu í verð
laun. Meðfylgjandi er verðlauna
mynd hennar. mþh
Menningar og safnanefnd Akra
neskaupstaðar hefur í ljósi ástands
og stöðu mála með kútter Sigur
fara afþakkað styrk sem úthlutað
hefur verið úr Græna hagkerfinu
með milligöngu Minjaverndar og
var ætlaður til endurbóta á kúttern
um. Jafnframt hefur Jóni Allans
syni forstöðumanni Byggðasafnsins
í Görðum verið falið að gera áætl
un um að hluta skipið niður og fjar
lægja það af stalli sínum. Sú áætlun
liggi fyrir 1. mars næstkomandi.
Í bókun frá fundi menningar
og safnanefndar í síðustu viku seg
ir að umræddur styrkur úr Græna
hagkerfinu, sem er að upphæð
fimm milljónir króna, muni ekki
duga fyrir nauðsynlegum endur
bótum eða lagfæringum. Kostn
aður við endurbætur á kútternum
hlaupi á tugum ef ekki á hundr
uðum milljóna króna. Árið 2007
var skrifað undir samkomulag við
menntamálaráðuneytið um sam
starf við endurbætur á kútter Sig
urfara og veitti Þorgerður Katr
ín Gunnarsdóttir menntamála
ráðherra, 60 milljónum króna fyr
ir hönd ráðuneytisins til endurbót
anna. Sú fjárhæð hefur aldrei kom
ið til greiðslu þrátt fyrir ítrekaðar
óskir forsvarsmanna Akraneskaup
staðar þar að lútandi. „Menning
ar og safnanefnd telur fullreynt að
fá ríkisvaldið til að styðja við end
urgerð kútters Sigurfara og á með
an heldur ástand skipsins áfram að
versna og er nú svo komið að af því
stafar hætta. Menningar og safna
nefnd óskar því eftir að bæjarstjór
anum á Akranesi verði falið fyrir
hönd eignaraðila að afþakka styrk
inn frá Minjavernd,“ segir í bókun
nefndarinnar. þá
Það húmar að kvöldi hjá Kútter Sigurfara. Ljósm. mm.
Styrkveitingu hafnað og ákveðið að
kútter Sigurfari verði fjarlægður
Sigraði í ljósmynda-
samkeppni
Í skoðun að sam-
eina þrjá háskóla