Skessuhorn


Skessuhorn - 28.01.2015, Blaðsíða 10

Skessuhorn - 28.01.2015, Blaðsíða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 28. JANÚAR 2015 Svipmyndir frá Mannamóti ferðaþjónustunnar Mannamót markaðsstofa ferða­ þjónustunnar er árlegur viðburð­ ur sem haldinn hefur verið í einu af flugskýlunum á Reykjavíkur­ flugvelli. Tilgangur mannamóts­ ins er að fyrirtæki á landsbyggð­ inni geti kynnt starfsemi sína fyr­ ir ferðaþjónustuaðilum á höfuð­ borgarsvæðinu. Á Mannamótinu hittist fólk alls staðar af land­ inu sem starfar við ferðaþjón­ ustu, kynnist og myndar tengsl. Mannamótið stendur yfir í einn dag og er haldið í byrjun árs. Í ár fór það fram síðastliðinn fimmtu­ dag, 22. janúar. Þarna voru fulltrúar ferða­ þjónustufyrirtækja á Vesturlandi. „Þetta heppnaðist vel. Alls tóku 32 fyrirtæki úr landshlutans þátt. Það komu fulltrúar fjölmargra að­ ila sem leita eftir tengslum við fyr­ irtæki sem starfa við greinina. Það á vonandi eftir að skila sér,“ seg­ ir Kristján Guðmundsson fram­ kvæmdastjóri Markaðsstofu Vest­ urlands í samtali við Skessuhorn. Hér fylgja með nokkrar svip­ myndir frá Mannamótinu 2015. mþh Nöfnurnar Sigrún Eggertsdóttir hjá Iceland Guesthouse – Hvítá og Sigrún Þormar hjá Snorrastofu í Reykholti. Þær stöllur Áslaug Þorvaldsdóttir og Sigríður Margrét Guðmunds- dóttir frá Landnámssetrinu í Borgarnesi. Í baksýn glittir í Friðþjóf Helgason kvikmyndatökumann mynda Hafþór Inga hjá Egils Guesthouse og Agnesi á Hundastapa. Svipmyndir frá Mannamóti munu verða í Sjónvarpi Skessuhorns á ÍNN miðvikudaginn 4. febrúar klukkan 21:30. Sæmundur Ásgeirsson á og rekur gistiheimilið í Gamla bænum í Húsafelli. Hér er hann á spjalli við einn gesta Mannamótsins. Gauji litli (Guðjón Sigmundsson) kynnti Hernámssetrið á Hlöðum í Hvalfirði. Vestlensku fulltrúarnir á Mannamótinu röðuðu sér upp sitt hvoru megin á sama ganginum í flugskýlinu á Reykjavíkurflugvelli og tóku þar á móti gestum. Boðið var upp á ýmislegt snarl úr náttúru Vestur- lands, svo sem súpur og annað góðmeti. Þorkell Símonarson (Keli) í Langaholti á Snæfellsnesi handleikur fornar tennur rostungs og náhvals sem hafa fundist í fjörunum þar. Honum að baki við súpupottinn er frú hans Rúna Björg Magnús- dóttir. Aftar er síðan Ragnhildur Sigurðardóttir framkvæmdastjóri Svæðisgarðsins Snæfellsnes. Örlítið vantaði upp á að rjúfa milljón ferðamanna múrinn Fjöldi flugfarþega til landsins og með Norrænu til Seyðisfjarðar var um 997 þúsund á síðasta ári og er það 190 þúsund fleiri ferðamenn en komu til landsins árið 2013. Aukningin milli ára nemur 23,6%. Ferðamenn á árs­ grunni nálgast því mjög eina millj­ ón en gera þarf ráð fyrir vissum frá­ vikum vegna aðferðafræðinnar sem beitt er, segir í tilkynningu frá Ferða­ málastofu. Fyrir utan þessar töl­ ur eru farþegar með skemmtiferða­ skipum en 104.516 farþegar komu til Reykjavíkur með 90 skipum árið 2014, 13,4% fleiri en árið 2013. Um 96% skemmtiferðaskipa til landsins hafa viðkomu í Reykjavík. Sé litið til dreifingar ferðamanna eftir árstíðum síðastliðin þrjú ár má sjá að hlutfall ferðamanna utan há­ annar, þ.e. sumarmánaðanna þriggja, fer hækkandi og var komið í 57,6% árið 2014. Hlutfallsleg aukning utan háannar hefur hins vegar verið mest að vetri til en um 28,9% ferðamanna komu að vetri árið 2014 en voru 26,9%, árið 2013 og 23,6% árið 2012. Fjöldamet voru slegin í öllum mánuðum ársins 2014 á Keflavík­ urflugvelli, þar sem talningar á veg­ um Ferðamálastofu hafa verið stöð­ ug frá árinu 2002. Aukning milli ára fór yfir 25% sjö mánuði ársins en hlutfallslega var hún mest milli ára í janúar, 40,1%, mars 35,3%, febrú­ ar 31,2% og nóvember 31%. Fjöl­ margir þættir hafa haft áhrif á þessa miklu aukningu, segir í tilkynning­ unni frá Ferðamálastofu. Ljóst er að ferðaþjónustan er að uppskera ár­ angur af umfangsmiklu markaðs­ starfi auk þess sem mikil fjölmiðla­ umfjöllun um landið, hagstætt gengi og aukið framboð á flugsætum hafa haft jákvæð áhrif. Tæplega þrír fjórðu, eða 73,3% ferðamanna árið 2014, voru af tíu þjóðernum. Bretar og Bandaríkja­ menn voru fjölmennastir eða um þriðjungur allra ferðamanna en þar á eftir komu ferðamenn frá Þýskalandi, Frakklandi, Noregi, Danmörku, Sví­ þjóð, Kanada, Hollandi og Kína. Af einstaka þjóðernum fjölgaði Bretum, Bandaríkjamönnum, Kanadamönn­ um og Þjóðverjum mest árið 2014. Þannig komu 43.400 fleiri Bret­ ar árið 2014 en árið 2013, 32.400 fleiri Bandaríkjamenn, 14.800 fleiri Kanada menn og 10.100 fleiri Þjóð­ verjar. þá Í ferð með Sæferðum um Breiðafjörð. Ljósm. jsb. Vetrarferðamennska eykst á Vesturlandi Fólk í ferðaþjónustu á Vest­ urlandi segir að veruleg aukn­ ing hafi orðið á fjölda ferða­ manna sem leggja leið sína um landshlutann að vetrar­ lagi. „Straumur ferðamanna eykst stöðugt. Við erum far­ in að sjá ferðalanga koma út úr kófinu, meira að segja nú í janúar. Fólk virðist í auknum mæli farið að ferðast á eigin vegum og sumir víla ekkert fyrir sér, leigja sér einhverja jepplinga og bara æða af stað. Ferðatímabilið er tvímæla­ laust að lengjast, sérstaklega á þess­ um tíma í byrjun árs. Við í Dölum sáum bæði í fyrrahaust og á sama tíma árið þar á undan að straumur ferðafólks datt niður í október. En svo sáum við bæði í fyrra og hitteð­ fyrra að ferðamenn fóru að gera vart við sig strax í byrjun janúar,“ segir Valdís Gunnarsdóttir framkvæmda­ stjóri Leifsbúðar í Búðardal. Ferða­ menn sem hingað koma um hávet­ ur vilja upplifa vetrarríki náttúr­ unnar, vetrarfærðina á vegunum og margt annað, að sögn fararstjóra sem reglulega fer um með stækkandi hópa ferðafólks. Norðurljósin hafa loks verið seld Að sögn Valdísar eru það norðurljós­ in yfir Vesturlandi sem hafa mikið aðdráttarafl á þessum árstíma. „Okk­ ur er loks að takast að selja þau,“ seg­ ir hún og hlær við. „Það er vinsælt til að mynda að koma á Vog á Fells­ strönd, hreiðra um sig þar, horfa á norðurljósin eða út yfir Breiðafjörð­ inn.“ Halldór Björnsson leiðsögumað­ ur hjá Kynnisferðum tekur und­ ir þetta. Þegar blaðamaður Skessu­ horns hitti Halldór á laugardaginn um liðna helgi var hann með um 30 manna hóp í hringferð um Snæfells­ nes. Fólkið hafði gert hlé á för sinni til að snæða hádegisverð sem saman­ stóð af íslenskri kjötsúpu og heima­ bökuðu brauði hjá Ólínu Gunn­ laugsdóttur í Samkomuhúsinu á Arnarstapa. „Við hjá Kynnisferð­ um erum með dagsferð frá Reykja­ vík sem hefst klukkan átta. Þá ökum við sem leið liggur út úr borginni og upp í Borgarnes. Svo er farið út á Snæfellsnes. Sunnanmegin stopp­ um við í Ytri Tungu í Staðarsveit. Þar er oft hægt að sjá til sela auk þess sem umhverfið er mjög fallegt þar. Svo er farið hingað að Arnarstapa. Hér göngum við með fólkinu frá höfninni að styttunni af Bárði Snæ­ fellsás. Það er líka komið við á Djúpalónssandi og farið til Ólafsvíkur. Oft er svo stopp­ að við Kirkjufellið í Grund­ arfirði sem fólk vill skoða og ljósmynda. Við ljúkum síðan hringferðinni í Stykkishólmi áður en við höldum til baka suður til Reykjavíkur. Þetta er svona tólf tíma ferð. Á vet­ urna förum við hana á mið­ vikudögum og laugardögum, en höfum fleiri ferðir í viku á sumrin.“ Eftirspurnin hefur margfaldast Halldór segir að eftirspurn í vetrar­ ferðir hafi stóraukist á undanförn­ um árum. „Það er síst minna að gera hjá okkur núna í dagsferðum á vet­ urna samanborið við á sumrin. Þetta er mikill viðsnúningur og hið besta mál. Fyrir þremur árum síðan vorum við aðeins með eina ferð í viku, oft á litlum bílum sem tóku kannski 10­12 manns. Nú í vetur förum við tvisvar í viku á bílum sem taka 40­50 manns. Þetta helst í hendur við að ferða­ mönnum hefur fjölgað mikið hér á landi yfir vetrarmánuðina. Mikið af vetrarferðafólkinu kemur frá Evr­ ópu, en einnig margt frá Asíulönd­ um á borð við Kína, Japan og Taív­ an. Það hefur svo verið mikil fjölg­ un meðal Breta. Það skýrist sjálfsagt af því að mörg flugfélög fljúga orð­ ið frá Bretlandseyjum hingað til Ís­ lands. Sætaframboðið þaðan hefur aukist mikið.“ Að sögn Halldórs eru það norð­ urljósin sem hafa mest aðdráttar­ afl. „Þau trekkja mest, enda hafa þau verið auglýst duglega. Síðan er hitt sem fólkinu þykir framandi bara bónus. Þar má nefna vetrarríki náttúrunnar, vetrarfærðina á vegun­ um og margt annað sem þau upp­ lifa. Þau eru mjög svo hrifin af Vest­ urlandi. Langflest eða öll eru mjög ánægð með þessar ferðir og þykir náttúra landshlutans einstök.“ mþh Erlendir ferðamenn í hringferð með Kynnisferðum um Snæfellsnes snæddu íslenska kjötsúpu í Samkomuhúsinu á Arnarstapa á laugardaginn. Valdís Gunnarsdóttir framkvæmda- stjóri Leifsbúðar í Búðardal. Halldór Björnsson leiðsögumaður hjá Kynnisferðum.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.