Skessuhorn


Skessuhorn - 28.01.2015, Blaðsíða 4

Skessuhorn - 28.01.2015, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 28. JANÚAR 2015 Kirkjubraut 54-56 - Akranesi - Sími: 433 5500 - www.skessuhorn.is Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14.00 á þriðjudög- um. Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skilafrestur smáaug- lýsinga er til 12.00 á þriðjudögum. Blaðið er gefið út í 3.800 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu. Áskriftarverð er 2.573 krónur með vsk. á mánuði. Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða kr. 2.230. Rafræn áskrift kostar 2.023 kr. Rafræn áskrift til elli- og örorkulífeyrisþega er 1.867 kr. Áskrifendur blaðs fá 50% afslátt af verði rafrænnar áskriftar. Verð í lausasölu er 750 kr. SKRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-16 VIRKA DAGA Útgefandi: Skessuhorn ehf. skessuhorn@skessuhorn.is Ritstjórn: Magnús Magnússon, ritstjóri s. 894 8998 magnus@skessuhorn.is Þórhallur Ásmundsson, blaðamaður th@skessuhorn.is Guðný Ruth Þorfinnsdóttir, blaðamaður gudny@skessuhorn.is Magnús Þór Hafsteinsson, blaðamaður mth@skessuhorn.is Auglýsingar og dreifing: Emilía Ottesen, markaðsstjóri emilia@skessuhorn.is Pálína Alfreðsdóttir palina@skessuhorn.is Valdimar Björgvinsson valdimar@skessuhorn.is Tinna Ósk Grímarsdóttir (vefauglýsingar) tinna@skessuhorn.is Umbrot: Ómar Örn Sigurðsson omar@skessuhorn.is Bókhald og innheimta: Guðbjörg Ólafsdóttir bokhald@skessuhorn.is Prentun: Landsprent ehf. Leiðari Svört og leyfislaus starfsemi Ferðaþjónustan hér á landi er sú atvinnugrein sem vex hraðast. Fyrir tveim­ ur árum gerðist það þannig í fyrsta skipti að greinin velti meiru en sjávar­ útvegur og iðnaður, hvor grein fyrir sig. Þessar þrjár atvinnugreinar eru hvorki meira né minna en að skila okkur þremur fjórðu af þjóðartekjum. Þar sem ferðaþjónusta er yngst af þessum greinum er hún skemmst á veg komin í stefnumótun og stjórnvöld hafa ekki náð að fylgja þróun hennar með nauðsynlegu regluverki. Vandræðagangurinn í sambandi við náttúru­ passann er lýsandi dæmi um það. En þegar vöxturinn í einni atvinnugrein er jafn hraður og raun ber vitni eru alltaf einhverjir sem hugsa sér gott til glóðarinnar. Fram úr skúma­ skotum spretta gullgrafarar sem nýta vöxtinn sér í hag meðan regluverkið er ekki til staðar. Til dæmis er búið að útbúa leigurými í ótrúlegum fjölda íbúða í miðbæ Reykjavíkur og bjóða þær til leigu fyrir ferðamenn án þess að í mörgum tilfellum nokkur leyfi eða úttektir liggi fyrir. Heiðvirt fólk í ferðaþjónustu ræðir nú opinskátt um að eitt af brýnustu verkefnum grein­ arinnar á nýju ári sé að útrýma svartri og leyfislausri starfsemi sem er að finna víða innan greinarinnar, rétt eins og í öðrum stórum atvinnugreinum. Benda Samtök aðila í ferðaþjónustu (SAF) meðal annars á að gera verði þjóðarátak í að vinna gegn þessari svörtu og leyfislausu starfsemi enda mik­ ilvægt að tryggja að fyrirtæki í ferðaþjónustu eins og öðrum atvinnugrein­ um geti starfað við heilbrigða samkeppni og samkeppnishæf rekstrarskil­ yrði á hverjum tíma. Þetta eru orð í tíma töluð. Ég átti nýverið samtal við hótelstjóra hér á Vesturlandi. Manneskju sem býr við ríka réttlætiskennd. Þar lýsti þessi hótelstjóri fyrir mér einhverri mestu ógn sem nú steðjar að heiðvirðum fyrirtækjum í ferðaþjónustu. Svartamarkaðsbraski af verstu sort. Fyrirtækið Airbnb.com var stofnað 2008 og hefur samkvæmt kynningu á heimasíðu sinni aðsetur í San Franc­ isco í Kaliforníu. Á síðunni segir: „Airbnb er áreiðanlegt og samfélagslegt markaðssvæði þar sem fólk getur skráð, uppgötvað og bókað einstök gisti­ rými út um allan heim ­ á netinu eða í farsíma.“ Tilvitnun lýkur. Hér er náttúrlega fyrirtæki sem kallar á skattsvik og þessir Kaliforníubúar þrífast einmitt á að húseigendur taki þátt í „game­inu“. Nú vill svo til að ekki all­ fjarri því hóteli sem viðmælandi minn starfar á er sumarhúsabyggð. Nýlega var hótelstjórinn beðinn að geyma og afhenda síðan lykla að sumarhúsi á tilteknum stað. Það væri svo hagkvæmt ef hann gæti gert þeim þennan greiða. Meðan beðið var eftir að nýju gestirnir í sumarhúsið kæmu, ákvað hótelstjórinn að leita upplýsinga um hvort leyfi hefði verið veitt fyrir gisti­ þjónustu og útleigu viðkomandi sumarhúss. Slíkt er sem betur fer hægt að sannreyna á netinu. Í ljós kom að ekkert leyfi var fyrir sölu gistingar eða útleigu viðkomandi húss. Þarna var semsagt eigandi sumarhúss að biðja hótelstjórann, sem greiðir alla skatta og skyldur til samfélagsins, að hjálpa Airbnb.com og samstarfsfólki þess að brjóta lög. Ef við sem þjóð ætlum á einhverjum tímapunkti að komast út úr skot­ gröfunum og byggja upp réttlátt samfélag þar sem allir taka þátt, eigum við að stöðva svona braskara. Lið sem heldur að það geti vaðið uppi í þjóðfélagi okkar, makað krókinn og gert heiðvirða fólkinu okkar erfitt fyrir að reka fyrirtækin. Og það eru fleiri neikvæðar hliðar á þessu máli. Hver segir til dæmis að sumarhúsið sem hér er nefnt að ofan hafi t.d. brunavarnir, flótta­ leiðir og annað í lagi? Eru einhverjar líkur á að eigandi hússins borgi skatta og gjöld af útleigu hússins, ef ekki er einu sinni leyfi til að leigja það út? Nei, ég held varla. Við skulum því hjálpa þeim sem eru að byggja upp nýj­ an atvinnuveg hér á landi og tilsegja svona háttarlag í hvert sinn sem okkur grunar að verið sé að brjóta lög. Magnús Magnússon. Rannsóknanefnd samgönguslysa gaf í dag út skýrslu um banaslys sem varð á Akranesi 16. maí 2013. 51 árs gam­ all ökumaður bifhjóls lést á sjúkra­ húsi um kvöldið í kjölfar þess að hann missti stjórn á hjóli sínu og ók út í urð á mótum Faxabrautar og Jaðars­ brautar. Í skýrslu nefndarinnar segir m.a: „Ökumaður bifhjóls ók austur Faxabraut á Akranesi um miðjan dag. Veður var gott, þurrt, bjart og norð­ austan gola. Faxabraut liggur í austur frá höfninni og er nokkuð bein þar til rétt fyrir gatnamót við Jaðarsbraut en þá beygir hún til norðurs. Öku­ maður bifhjóls tók fram úr fólksbif­ reið áður en hann kom að hraðatak­ markandi koddum í götunni og mið­ eyju. Samkvæmt vitnum virtist öku­ maður bifhjólsins fipast við akstur­ inn þegar hann ók yfir hraðahindr­ unina, en náði að halda stjórn á hjól­ inu þar til hann kom að vinstri beygju sem er 50 metrum austan við hindr­ unina. Þegar bifhjólið kom að beygj­ unni hemlaði ökumaðurinn og aft­ urhjólbarði hjólsins læstist. Greina mátti 18 metra hemlaför á veginum sem enduðu við gangstéttarbrún.“ Í skýrslunni kemur m.a. fram að hjól­ inu hafi verið ekið á a.m.k. 71 km hraða. Ökumaðurinn var ekki und­ ir áhrifum lyfja eða fíkniefna og var með hjálm og klæddur hlífðarfatn­ aði. Nefndin segir orsakagreiningu benda til ógætilegs framúraksturs og of hraðs aksturs. Að endingu bendir rannsókna­ nefndin á: „Rannsóknarnefnd sam­ gönguslysa bendir á mikilvægi þess fyrir ökumenn bifhjóla að þjálfa sig reglulega í viðbrögðum við hættu­ legum aðstæðum. Mikil hætta skapast ef ökumaður bifhjóls heml­ ar þannig að hjól læsast, þegar hjól­ in hætta að snúast missir ökumað­ ur jafnvægið og hjólið fellur yfir­ leitt fljótlega á hliðina. Eins er mik­ ilvægt fyrir ökumenn þessara öku­ tækja að þjálfa vel notkun á fram­ hemlum. Mun meiri hemlun næst með því að nota framhemilinn, en líkur eru á að ökumaðurinn í þessu slysi hafi ekki beitt framhemli. Þess ber þó að geta að mun hættulegra er að læsa framhjólbarða en þeim aftari, en regluleg þjálfun í að beita báðum hemlum gerir ökumenn færari í að hemla örugglega án þess að hjólin læsist.“ mm Einar Sigurðsson launþegi og fast­ eignaeigandi í Borgarbyggð hefur sent opið bréf til forseta ASÍ, fram­ kvæmdastjóra Starfsgreinasam­ bandsins og formanns Stéttarfélags Vesturlands. Þar bendir Einar á að sveitarfélagið Borgarbyggð hafi við gerð fjárhagsáætlunar í desemb­ er síðastliðinn tekið ákvarðanir um gríðarlegar hækkanir á gjaldskrá. „Dæmi eru um 36% hækkun fast­ eignagjalda og 30% hækk­ un lóðarleigu, svo eitthvað sé nefnt. Þá hefur sveitar­ stjórn samið við Orkuveitu Reykjavíkur um að frá­ veitugjöld í Borgarbyggð verði hækkuð um 32,5% um næstu áramót,“ segir Einar í bréfi sínu. Einar nefnir dæmi og segir m.a. eiganda fast­ eignar í Borgarbyggð, sem greiddi árið 2014 295 þús­ und krónur í gjöld af fast­ eign sinni, muni þurfa að greiða 350 þúsund af sömu eign árið 2015. „Sú hækk­ un er nær eingöngu vegna hækkana á lóðarleigu og fasteignagjöldum. Dæmi eru um verulegar hækkanir á öðrum gjaldskrám sveitarfélags­ ins.“ Einar bendir á að í Borgar­ byggð séu einhverjar lægstu með­ allaunatekjur á einstakling á land­ inu. „Verklýðshreyfingin verður að beita sér og standa vörð um kjör og réttindi launamanna,“ segir Einar Sigurðsson. „Framkvæmum minna ef skattar verða lækkaðir á ný“ Kolfinna Jóhannesdóttir sveitar­ stjóri í Borgarbyggð segir að vissu­ lega séu þetta mjög miklar hækkanir og því eðilegt að íbúar bregðist við. „Mín hugsun og von er sú að stað­ an nú leiði til þess að samstaða ná­ ist um hagræðingaraðgerðir í rekstri sveitarfélagsins. Það hefði verið mun betra ef fasteignagjöld hefðu verið hækkuð að hluta árið 2013 þannig að óhjákvæmileg hækkun nú yrði ekki þetta há,“ segir Kolfinna þegar um­ kvartanir Einars Sigurðssonar eru bornar undir hana. „Það eru kynn­ ingarfundir á fjárhagsstöðu sveitar­ félagsins og fjárhagsáætlun fyrir árið 2015 í þessari viku og vonandi fjöl­ menna íbúar á þá fundi þannig að hægt sé að fara vel yfir þessi mál. Það er líka rétt að það eru dæmi um verulegar hækkanir á gjaldskrám en það er rétt að nefna sem dæmi að ákveðið var að fara ekki í hækkanir á leikskólagjöldum.“ Kolfinna segir að sveit­ arfélagið hafi fengið erindi frá eftirlitsnefnd með fjár­ málum sveitarfélaga í des­ ember síðastliðnum þar sem áréttað var að Borgar­ byggð stóðst ekki jafnvæg­ isreglu sveitarfélaga fyrir árin 2013 til 2015. Þar var lögð áhersla á að sveitarfé­ lagið gerði ráðstafanir í þá yfirstandandi fjárhagsáætl­ anagerð til að jafnvægis­ reglunni yrði náð fyrir árin 2014­2016. „Þrátt fyrir þessar miklu skattahækkan­ ir núna og að vinna er hafin við hagræðingaraðgerðir í rekstri þá náðum við ekki að uppfylla þessi við­ mið um að samanlög heildarútgjöld á þriggja ára tímabili séu ekki hærri en sem nemur reglulegum tekjum. Við þurfum því að fara í frekari vinnu við að greina hagræðingarmöguleika á nýju ári,“ segir Kolfinna að endingu. mm Á þorrablóti Skagamanna á laugar­ dagskvöldið var Steinunn Sigurð­ ardóttir, fyrrverandi hjúkrunarfor­ stjóri, formaður Hollvinasamtaka Heilbrigðisstofnunar Vesturlands, kosin Skagamaður ársins 2014. Það sæmdarheiti hlýtur hún fyr­ ir störf sín fyrir Hollvinasamtök­ in, en þau hafa, eins og fram hefur komið í fréttum Skessuhorns, náð að safna fyrir kaupum á nýju sneið­ myndatæki á sjúkrahúsið á Akra­ nesi. Það var Ólafur Adolfsson for­ maður bæjarráðs Akraness sem af­ henti Steinunni blóm og málverk eftir Bjarna Þór að gjöf. Stein­ unn gat þess í samtali við frétta­ mann Skessuhorns að vissulega væri þetta heiður fyrir hana en hún liti þannig á að þarna væri hún að taka við viðurkenningu fyrir hönd Hollvinasamtakanna í heild. Fjöl­ margir einstaklingar, fyrirtæki og stofnanir hafa gefið samtökunum fé í söfnunina sem leitt hefur til þess að nú er nýtt sneiðmyndatæki í pöntun. Þorrablót Skagamanna var að vanda haldið að frumvæði útskriftar árgangs 1971, þess öfl­ uga hóps. Mikil leynd hvíldi yfir skemmtiatriðum kvöldsins og höfðu veislugestir takmarkaða vitneskju um hvað þeir væru að fara að upplifa. Í fyrstu var veislu­ stjóri kvöldsins kynntur og inn kom Helga Braga Jónsdóttir leik­ kona. Skemmtunin fór vel fram. Auk útnefndingar á Skagamanni ársins var annáll fluttur við mik­ inn fögnuð. Matur frá Galitó var á boðstólnum og karlakórinn Pung­ ar steig á svið. Flestum að óvör­ um komu Fjallabræðurinn loks inn og að endingu spilaði hljómsveit Sverris Bergmann á balli fram á nótt. mm Skorar á verkalýðshreyfinguna að mótmæla hækkun fasteignagjalda Af vettvangi slyssins sem varð 16. maí 2013. Banaslys rakið til of hraðs aksturs og framúrkeyrslu Steinunn Sigurðardóttir Skagamaður ársins 2014. Ljósm. þit. Steinunn Sigurðardóttir er Skagamaður ársins 2014

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.