Skessuhorn - 28.01.2015, Síða 13
13MIÐVIKUDAGUR 28. JANÚAR 2015
KÍKTU Í KEMI OG SKOÐAÐU ÚRVALIÐ!
• Olíur
• Glussi
• Smurefni
• Hreinsiefni
• Öryggisvörur
• Dælur, smurtæki og fleira
REKSTRAR VÖRUR
FYRIR LANDBÚNAÐINN
– Þekking og þjónusta í 20 ár
Kemi • Tunguhálsi 10 • 110 Reykjavík
www.kemi.is • Sími: 415 4000
Opið: Mánudag - fimmtudags: Frá kl. 8.00-17.30.
Föstudaga: Frá kl. 8.00-17.00.
„Fyrstu niðurstöður um áhrif
breytinga á neyslusköttum á verð
lag matvara gefa skýra vísbendingu
um að hækkun á neðra þrepi virð
isaukaskatts hafi þegar skilað sér að
fullu út í verðlag en í flestum versl
unum séu áhrif af afnámi vöru
gjalda enn mjög takmörkuð,“ segir
í tilkynningu frá ASÍ. Þar segir jafn
framt að matvara hafi hækkað um
talsvert í verði undanfarinn mán
uð samkvæmt fyrstu niðurstöðum
úr verðmælingum verðlagseftir
lits ASÍ í matvöruverslunum í kjöl
far breytinga á virðisaukaskatti og
vörugjöldum. Um áramót hækkaði
á virðisaukaskattur á matvörur úr
7% í 11% auk þess sem vörugjöld
(s.k. sykurskattur) voru afnumin af
sykri og sætum matvörum.
„Mest hækkar matvörukarfan í
versluninni Víði um 5,2% frá því í
lok nóvember sl. sem er umtalsvert
meiri hækkun en neysluskattsbreyt
ingarnar um áramót gefa tilefni til.
Að mati verðlagseftirlits ASÍ má
áætla að breytingarnar gefi í heild
ina tilefni til u.þ.b. 1,5% hækkun
ar á matarkörfunni. Matarkarfa ASÍ
hækkar minnst í versluninni Kjar
val um 0,7% frá því í síðustu mæl
ingu. Í Nettó, Iceland, Hagkaup
um, Nóatúni, SamkaupumÚrval,
Samka upumStrax, Kaskó, Kaup
félagi Skagfirðinga og Kaupfélagi
Vestur Húnvetninga hefur mat
arkarfan hækkað um u.þ.b. 2,5%
3,5% frá því í lok nóvember. Í
verslunum Bónuss, Krónunnar og
Tíuellefu nemur hækkun matkörf
unnar 1% 1,7%.“
mm
Að morgni miðvikudagsins 14.
janúar síðastliðinn uppgötvaðist að
bíl hafði verið ekið utan í víraveg rið
á Snæfellsnesvegi á móts við bæinn
Brúarland á Mýrum og að vegrið
ið hafði skemmst töluvert. Þarna
hefur fólksbíl sem var á leið vest
ur verið ekið utan í vegriðið en við
það rifnaðu undan bílnum mótor
hlíf og hluti af grilli varð einnig eft
ir. Eftir rannsókn á þessum bílhlut
um hefur komið í ljós að um bláan
VW Golf árg. 1999 til 2002 hefur
verið að ræða. „Þeir Vestlendingar
sem kunna að búa yfir upplýsingum
um þetta óhapp eru beðnir um að
snúa sér til Lögreglunnar á Vestur
landi í síma 4440300,“ segir í til
kynningu. Myndirnar sýna ákomu
á vegriðsstaur og bláa málningu og
hluta af „svuntu“ undan bílnum.
mm
Um þessar mundir er stór hópur
fólks frá Land Rover verksmiðj
unum í Bretlandi staddur hér á
landi við að kynna nýja útgáfu af
Discovery Sport jepplingnum frá
Land Rover. Verkefnið hófst í des
ember og mun nú eftir hlé standa
fram í næsta mánuð. Samtals er
gert ráð fyrir að kynna nýju bílana
við ýmsar aðstæður á fáförnum og
erfiðum vegum fyrir um þúsund
blaðamönnum. Hundrað Disco
very Sport bílar voru fluttir til
landsins gagngert fyrir þetta verk
efni og er þetta jafnframt stærsta
kynningarverkefni Land Rover
verksmiðjanna á þessu ári. Far
ið er með gestina í ökuferðir víða
um suðvestan og vestanvert land
ið, ekið um hálendið og fáfarna
vegi til að gestirnir geti kynnst
eiginleikum bílanna við ólíkar að
stæður. Meðal annars er ekið um
Uxahryggi í Borgarfjörð, í Hvít
ársíðu og er Hótel Á á Kirkjubóli
einn af viðkomustöðum hópanna.
Þá er einnig farið um Norðurár
dal og niður á Mýrar og eru Ensku
húsin við Langá einnig viðkomu
staður.
Til að meta umfang svona verk
efnis má nefna að samtals eru
bókaðar á sjöunda þúsund gisti
nætur á hótelum vegna þessa eina
verkefnis og þar af leiðandi keypt
ar um 25 þúsund máltíðir á veit
ingahúsum. Auk starfsfólks hót
el og veitingastaða eru um 40 ís
lenskir starfsmenn sem koma að
verkefninu. mm
Hækkun á virðisaukaskatti
skilar sér en neytendur
eiga sykurskattinn inni
Lögregla óskar upplýsinga
um ákeyrslu golfbíls
Risastórt kynningar-
verkefni Land Rover fer
um Vesturland
Elkem Ísland | Grundartanga | 301 Akranes | elkem@elkem.is | elkem.is
SUMARSTÖRF
HJÁ ELKEM ÍSLAND
Kísilmálmverksmiðjan Elkem Ísland leitar að öflugum konum og körlum til starfa við afleysingar í sumar.
ÆSKILEGIR EIGINLEIKAR UMSÆKJENDA
Sterk öryggis- og gæðavitund
Metnaður til starfa við sérhæfða hágæðaframleiðslu
Sveigjanleiki og styrkur til að vinna jöfnum höndum sjálfstætt og í teymi
Jákvæðni, vinnusemi og vilji til að læra af reynslu samstarfsmanna
Flest störfin eru í vaktavinnu við framleiðsluna.
a) Á þrískiptum vöktum að degi, kvöldi og nóttu. Að öllu jöfnu eru unnar 6 vaktir á 5 dögum. Í kjölfarið er fimm daga frí.
b) Á dagvöktum þar sem á hverjum 14 dögum er að jafnaði unnið samfleytt í 7 daga á vöktum kl. 7:30 til 18:00.
Í kjölfarið er vikufrí.
Umsóknarfrestur er til 15. febrúar næstkomandi. Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri og hafa gott
vald á tölvunotkun og samskiptum á íslenskri tungu. Nýir starfsmenn fá sérstaka þjálfun og leiðbeinanda.
Elkem greiðir kostnað vegna vinnuvélaréttinda séu þau ekki fyrir hendi.
Athygli er vakin á því að Elkem Ísland er vímuefnalaus vinnustaður og í aðdraganda ráðningar eru umsækjendur
beðnir um að gangast undir vímuefnapróf.
Umsækjendur eru beðnir um að nálgast frekari upplýsingar og sækja um starfið á www.elkem.is.
UM ELKEM
Elkem Ísland ehf. leggur metnað sinn í framleiðslu á hágæða kísilmálmi og kappkostar að mæta ýtrustu kröfum viðskiptavina sinna.
Fyrirtækið leggur áherslu á að valda sem minnstri röskun á umhverfinu og búa starfsfólki sínu öruggar og góðar vinnuaðstæður.
•
•
•
•