Skessuhorn


Skessuhorn - 08.05.2015, Side 2

Skessuhorn - 08.05.2015, Side 2
2 MIÐVIKUDAGUR 6. MAÍ 2015 Rétt er að minna á að mæðradagurinn er næstkomandi sunnudag, 10. maí. Mæðra- dagsganga Göngum saman fer fram víða um land þann dag, meðal annars í Borgar- nesi og Stykkishólmi. Markmið samtakanna er að afla fjár til grunnrannsókna á brjósta- krabbameini. Á fimmtudag og föstudag er spáð norðan- og norðaustan 3-8 m/s en 5 - 10 við austur- ströndina. Víða léttskýjað en stöku él verða norðaustan til og einnig syðst á landinu. Hiti 1 til 7 stig að deginum en um og undir frostmarki fyrir norðan og austan. Á laugar- dag er spáð hægri norðlægri eða breytilegri átt. Dálítil él norðaustan lands en annars víða léttskýjað. Hiti breytist lítið. Á sunnudag og mánudag er útlit fyrir hæga breytilega átt en austan 5 - 10 m/sek syðst. Áfram þurrt veður og svalt. Í síðustu viku var spurt á vef Skessuhorns: „Býstu við langvinnum verkföllum?“ Flestir sem svöruðu telja líklegt að verkföllin drag- ist á langinn. „Já, örugglega“ sögðu 30,23%, „Já, sennilega“ sögðu 43,15%. „Veit ekki“ var svar 12,66% og „Nei, stuttum“ sögðu 11,63%. Langfæstir bjuggust við engum verkföllum, eða 2,33%, enda eru verkföll í gangi og fleiri væntanleg. Í þessari viku er spurt: Ertu búinn að skipuleggja sumarfríið? Aðilar vinnumarkaðarins eru Vestlending- ar vikunnar að þessu sinni. Þeir eru jú ekki í neinni störukeppni og ætla að gera sitt til að semja um laun svo ekki komi til frek- ari verkfalla. Til minnis Veðurhorfur Spurning vikunnar Vestlendingur vikunnar Göngin lokuð í tvær nætur HVALFJ: Hvalfjarðargöng verða lokuð í tvær nætur núna í vikunni vegna árlegs viðhalds og vorhreingern- ingar, eins og segir í tilkynn- ingu frá Speli. Lokað var að- fararnótt miðvikudagsins 6. maí [síðustu nótt] og svo aft- ur aðfararnótt fimmtudags- ins 7. maí frá klukkan 20 að kvöldi til kl. 6 að morgni. Eins og kynnt var í Skessu- horni hafði komið til greina að loka fyrir umferð í göng- in um næstu helgi, vegna malbikunarframkvæmda. Af þeirri aðgerð verður hins vegar ekki, hún mun frestast, en tímasetning liggur ekki fyrir að sögn talsmanns At- hyglis sem sér um kynning- armál Spalar. -mm Sitthvað í dag- bók lögreglu VESTURLAND: Umferð- arhraði á vegum Vesturlands eykst með hækkandi sól. Í síðustu viku fengu alls 390 ökumenn hraðasektir í lands- hlutanum. Hraðamynda- vélar gómuðu flesta þeirra. Þrátt fyrir þetta urðu þó ekki nema tvö minniháttar um- ferðaróhöpp í öllu Vestur- landsumdæmi lögreglu. Þau ekki orðið færri síðan emb- ættið var stofnað um síð- ustu áramót. Nokkuð hefur hins vegar borið á því að er- lendir ferðamenn hafi ratað í ófærð og vegleysur og þurft hjálp lögreglu og björgun- arsveita. Þeir virðast treysta blint á gps-tæknina og átta sig ekki á því og að stundum borgar sig að taka krók fyr- ir keldu. Miklir þurrkar að undaförnu hafa aukið mjög hættu á sinueldum. Hvatt er til að fólk fari varlega með eld og glóðir. Þrír ökumenn voru teknir fyrir akstur und- ir áhrifum fíkniefna í liðinni viku. Tveir ökuþórar reynd- ust luma á fíkniefnum í sín- um fórum. Útigangshrossin fara líka á kreik í góða veðr- inu og sluppu inn á golf- völlinn á Hamri við Borg- arnes og ollu skemmdum. Lögreglan á Vesturlandi vill að endingu benda á að fólk getur komið með gömul og ónýt skotvopn og skotfæri á lögreglustöðvarnar í um- dæminu til eyðingar. –mþh Rykið dustað af sundlaugarhug- mynd AKRANES: Hugmynd- ir ASK arkitekta frá árinu 2008 um byggingu Akranes- kaupstaðar á nýrri sundlaug og sundlaugarhúsi á Jað- arsbökkum voru teknar til kynningar á fundi skipulags- og umhverfisráðs Akraness þann 30. apríl. Fallið var frá þessum hugmyndum á sín- um tíma þegar efnahaghrun- ið varð. –mþh Sinueldur kom upp í landi Fáskrúð- arbakka í Eyja- og Miklaholtshreppi á Snæfellsnesi síðdegis á laugardag og barðist fjölmennt lið slökkvi- liðsmanna og bænda við slökkvi- störf fram á nótt. Að sögn Bjarna K Þorsteinssonar slökkviliðsstjóra í Borgarbyggð barðist við eldana stór hópur manna frá slökkvilið- inu í Borgarbyggð auk Slökkviliðs Stykkishólms og bænda af svæð- inu sem komu með haugsugur með vatni. „Það var mjög erfitt að eiga vð þetta enda logaði í mýrarflák- um og hrísi og ekki hægt að koma farartækjum að þar sem að mestu var um óvélgengar mýrar að ræða. Það var því harðsnúið fótgöngu- lið sem einkum kom að notum,“ sagði Bjarni. „Við létum kveikja í á nokkrum stöðum og stýra því að eldurinn bærist ekki yfir ár og lækjarfarvegi og þannig náðum við að hefta útbreiðslu eldsins og að hann færi einungis um afmark- að svæði milli tveggja áa; Laxár og Fáskrúðar. Það land sem brann var einkum flákar suðaustur af Breiða- bliki í landi Fáskrúðarbakka,“ segir Bjarni. Hann segir að eldurinn hafi þannig að mestu klárast um nótt- ina og um morguninn hafi verið slökkt í síðustu glæðunum. Það var gert úr þyrlu Landhelgisgæslunn- ar sem fór í æfingaflug með vatns- belg og sleppti á að giska 35 tonn- um af vatni yfir síðustu eldglæðurn- ar. Talið er að orsaka sinubrunans megi leita í að fugl hafi flogið á raf- línu og hann fallið logandi til jarð- ar. Ragmagnstruflanir á svæðinu á sama tíma benda til þess. Einn sumarbústaður var í land- inu sem brann og segir Bjarni að slökkviliðsmönnum hafi tekist að verja hann með að kveikja í gróðri allt í kringum hann og slökkva jafn harðan. Þegar eldurinn barst að húsinu hafi því verið búið að brenna það land sem brunnið gat næst því. Líklega þarf að fara allt aftur til Mýraeldanna 2006 til að finna að- stæður þar sem jafn fjölmennt lið slökkviliðsmanna er að störfum á sama tíma á Vesturlandi. Seint á laugardagskvöldinu kom einnig upp eldur í bílskúr í Grundarfirði og fór allt tiltækt lið úr Grundarfirði og Snæfellsbæ í það verkefni. Slökkvi- liðsmenn úr Stykkishólmi og Borg- arbyggð voru svo að störfum við sinueldana á Fáskrúðarbakka eins og áður sagði. Bjarni slökkviliðsstjóri vill að endingu hvetja fólk til að sýna ítr- ustu aðgát í allri meðferð á eldi og hitagjöfum. „Jörðin er afar þurr og það skapast fljótt hættuástand ef eitthvað bregður útaf. Þetta eru ekki síst hættulegar aðstæður þar sem nær alltaf er vindur sem magn- ar elda upp á svipstundu og svo vantar okkur blessaða úrkomuna,“ sagði Bjarni K Þorsteinsson. mm Mikill sinubruni í landi Fáskrúðar- bakka á Snæfellsnesi Þessi mynd er tekin í ljósaskiptunum á laugardagskvöldið. Bæjarhúsin á Fáskrúðarbakka til vinstri og svo til hægri sinu- og gróðureldar sem lítið var við ráðið. Ljósm. tfk. Guðmundur Runólfsson hf. í Grundarfirði hefur sótt um lóð norðan við Sólvelli 2 þar sem fyr- irtækið er til húsa. Fyrirhuguð er stækkun fiskvinnslunnar enda mikil framþróun orðið á fiskvinnslutækj- um síðustu ár. Stefnt er að endur- nýjun flestra fiskvinnslutækja fyr- irtækisins og þá dugar núverandi húsakostur engan veginn. Fyrst var hugmyndin að flytja verksmiðjuna á lóð í eigu GRun við höfnina en nú hefur verið fallið frá því og ákveð- ið að byggja við núverandi fisk- vinnsluhús í staðinn. „Þetta verður á bilinu 800 – 1400 fermetra hús en útfærslan á því er enn í vinnslu,“ segir Guðmund- ur Smári Guðmundsson fram- kvæmdastjóri Guðmundar Runólfs- sonar hf. í samtali við Skessuhorn. „Við stefnum á að hefja vinnslu í nýju húsi í sumarbyrjun 2017 en það gæti breyst þar sem skipulags- og byggingamál eru mjög flókin og geta tekið langan tíma í afgreiðslu, enda er þetta allt ákveðið í Reykja- vík og sveitarfélögin hafa lítið um þetta að segja,“ segir Smári. Stefnt er að því að stækkuð og bætt fisk- vinnsla verði ein sú fullkomnasta á landinu og aðstæður eins og best verði á kosið. „Þetta verður fjár- festing upp á hundruðir milljóna en heildar kostnaðaráætlun liggur ekki fyrir,“ segir Smári. Hann segir ljóst að um byltingu verði að ræða fyrir fyrirtækið og starfsfólk, enda verð- ur allur tækjakostur endurnýjað- ur. „Við stefnum á að halda áfram að vera samkeppnishæf á þessum markaði og því er þessi endurnýjun nauðsynleg. Ef maður endurnýj- ar ekki búnað og tækjakost í sam- ræmi við tíðarandann og framfar- ir er hætta á að menn dragist aftur úr,“ segir Smári að lokum. tfk Stefnt að stækkun fiskvinnsluhúss GRun Horft yfir athafnasvæði GRun í Grundarfirði. Mynd tekin úr dróna beint yfir núverandi vinnsluhús GRun og lóðina sem nú er stefnt á að byggja nýja húsið á. Guðmundur Smári segir að fyrirtækið ætli áfram að verða samkeppnishæft á markaði og því sé endurnýjun búnaðar nauðsynleg.

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.