Skessuhorn


Skessuhorn - 08.05.2015, Page 17

Skessuhorn - 08.05.2015, Page 17
17MIÐVIKUDAGUR 6. MAÍ 2015 því að senda þá í mismunandi átt- ir en bað líka þessar konur um að verða eins konar umboðsmenn fyr- ir sig. Kynna sálmana öðru fólki, mæla með þeim og sjá til þess að þeim yrði ekki varpað undir bekk þar sem þeir gleymdust og tor- tímdust. Síðan var hann öðrum þræði að undirbúa jarðveginn fyr- ir prentaða útgáfu sálmanna. Hall- grímur vissi að hann væri búinn að semja eitthvað stórt sem ekki mætti glatast. Eftir þetta liðu svo nokkur ár þar til sálmarnir voru prentaðir og þá á Hólum í Hjaltadal.“ Ítrekar þýðingu Vesturlands Steinunn telur einmitt að það um- hverfi sem Hallgrímur lifði í á Vesturlandi hafi virkað mjög hvetj- andi á hann. Þar var menning með blóma. „Nær alla 17. öldina höfðu æðstu fulltrúar veraldarvaldsins að- setur á Vesturlandi. Lögmenn voru búsettir á Innra-Hólmi við Akra- nes, á Leirá í Leirársveit og síðar í Einarsnesi. Brynjólfur Sveinsson Skálholtsbiskup, sem þekkti Hall- grím vel og hafði oft reynst hon- um vel, eignaðist fjöldann allan af jörðum á þessu svæði, t.d. í Skorra- dal og á Akranesi þar sem hann var með umsvifamikla bátaút- gerð. Tengsl landshlutans við Skál- holt voru sterk. Hallgrímur kem- ur inn í þetta umhverfi frá mögru brauði og erfiðleikum í Hvalsnesi á Suðurnesjum og verður prestur í Saurbæ á Hvalfjarðarströnd með góð tengsl við valdamikinn biskup. Þar blómstraði hann, enda mjög vel í sveit settur þar sem Saurbær var í alfaraleið milli Skálholts og syðri hluta Vesturlands. Og Hall- grímur var greinilega vinsæll mað- ur í héraði. Hann var vel met- inn prestur sem gekk að bústörf- um með vinnufólki sínu og sýndi ótrúleg afköst og snilld í kveðskap sínum. Ég geri ráð fyrir að Guð- ríður hafi gegnt lykilatriði í því að skapa skáldinu vinnuaðstæður, seg- ir Steinunn Jóhannesdóttir. Hún telur að ekki megi vanmeta áhrif- in af umhverfi og menningu Vest- urlands þegar þetta æviskeið Hall- gríms er skoðað. Næsta sýning á „Örlagasögu Hallgríms og Guðríðar“ á Sögu- lofti Landnámsetursins er sunnu- daginn 17. maí kl. 16. „Þetta er ákveðin áskorun að standa svona frammi fyrir fólki og segja sögu. Þó að ég hafi haldið fjölmarga fyr- irlestra á síðustu árum þá hef ég ekki staðið sjálf á leiksviði í mörg ár. Það er bara góð tilfinning,“ seg- ir Steinunn að lokum. mþh Hér eru þýskar og norskar útgáfur af Reisubók Guðríðar Símonardóttur auk íslensku kiljuútgáfunnar. Hún varð metsölubók. Nýlega var útgáfuréttur Reisubókarinnar seldur til franska forlagsins Gaïa Éditions. CLAPTON Í F É L A G S H E I M I L I N U B R Ú N Hljómsveitina skipa: Ásmundur Sigurðsson – Bassi/ Gunnar Ringsted – Gítar/ Heiðmar Eyjólfsson – Söngur/ Heimir Klemnzson – Hljómborð/ Jakob Grétar Sigurðsson – Trommur/ Reynir Hauksson – Gítar/ 10 .MAÍ 2015 – KL .20 :30 AÐGANGSEYRI 1500 . -KR HLJÓMSVEITIN “KEY TO THE HIGHWAY” SPILAR Á HEIÐURSTÓNLEIKUM dg LEYNIGESTUR STÍGUR Á SVIÐ HEIÐURSTÓNLEI KUM ERIC Laus störf hjá Akraneskaupstað Eftirfarandi störf eru laus til umsóknar Starf leikskólakennara í Leikskólanum Teigaseli• Su• marstörf í búsetuþjónustu á Akranesi Starf leikskó• lakennara eða þroskaþjálfa í Leikskólanum Garðaseli Sótt er um rafrænt á heimasíðu Akraneskaupstaðar á þar til gerðu eyðublaði Nánari upplýsingar að finna á www.akranes.is SK ES SU H O R N 2 01 5

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.