Skessuhorn - 08.05.2015, Qupperneq 19
19MIÐVIKUDAGUR 6. MAÍ 2015
DÖMU- OG HERRASNIÐ
20% AFSLÁTTUR AF LEE OG WRANGLER
gallabuxum, skyrtum, jökkum og bolum.
TILBOÐSDAGAR 7. - 16. maí
WRANGLER og LEE
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
Bjartmar Guðlaugsson tónlistar-
maður og lífskúnstner heldur tón-
leika í Frystiklefanum í Rifi næst-
komandi laugardagskvöld 9. maí.
Þeir hefjast kl. 21.00 og verða í tvær
klukkustundir. Þarna mun Bjartmar
flytja helstu tónlistarperlur sín-
ar og segja sögurnar á bak við lög-
in á þann hátt sem honum einum
er lagið. Tónleikagestir munu hitta
fyrir vinina Sumarliða og Fúlan á
móti, Árna Járnkarl og áfram má
telja. Bjartmar mun líka flytja sjálft
Óskalag þjóðarinnar, sem er lag-
ið „Þannig týnist tíminn“ og jafn-
vel einhver ný lög sem koma út á
næstunni. „Gestir tónleikanna eru
beðnir um að nota vikuna í að hita
raddböndin því það verður mik-
ið sungið,“ segir í fréttatilkynn-
ingu frá Frystiklefanum. Miðaverð
er 2.500 kr. og eru miðar seldir við
innganginn.
-fréttatilkynning
Bjartmar í
Frystiklefanum
Fyrirtæki á
Ve s t u r l a n d i
virðast standa
nokkuð vel
s a m k v æ m t
könnun sem
gerð var með-
al fyrirtækja á
Vesturlandi í
vetur og greint
var frá í síðustu
Glefsu, frétta-
bréfi SSV.
Staðan er hlut-
fallslega best á Akranesi og í Hval-
fjarðarsveit þegar horft er til allra
mælikvarða, þ.e. EBITDA sem og
hagnaðar bæði til skemmri og lengri
tíma. Rekstrarárið sem um ræðir er
2013.
Vífill Karlsson hagfræðingur hjá
SSV segir að þetta sé viðsnúningur
frá könnun sem gerð var í fyrra þar
sem fyrirtæki í Dölunum komu áber-
andi best út. Í raun komi öll svæðin
verr út í þessari könnun nema fyr-
irtækin á Akranesi og í Hvalfirði.
„Það verður trúlega rakið til þess að
þátttaka fyrirtækja í landbúnaði og
útgerð smábáta var ekki nógu mikil
í fyrra. Við fjölgunina nú virðist sem
afkoman versni þar sem vigt þess-
ara fyrirtækja er allnokkur eins og
í Dölunum, Borgarfirði og á Snæ-
fellsnesi. Betri afkoma á Akranesi og
í Hvalfirði er sennilega vísbending
um að afkoma fyrirtækja sé almennt
Fyrirtæki á Vesturlandi
standa nokkuð vel
að lagast um
land allt þar
sem atvinnu-
greinaskipt-
ing þátttak-
enda breytt-
ist ekki mik-
ið á því svæði.
Almennt betri
þátttaka kann
að útskýra
þetta líka eins
og áður sagði,“
segir Vífill.
Frekari tölfræðigreining á svör-
um við spurningunum leiddi í ljós að
fiskvinnsla virðist koma best út hvort
sem litið er til lengri eða skemmri
tíma. „En þá ber að hafa í huga að
fiskvinnsla á Vesturlandi telst yfir-
leitt til blandaðrar útgerðar, þ.e. fyr-
irtæki sem byggja bæði á fiskvinnslu
og bátaútgerð, og því mikill minni-
hluti fiskverkenda sem ekki rekur
báta að auki.“ mm
Hér má sjá hlutfall þeirra fyrirtækja sem
skiluðu hagnaði árið 2013.
Fyrirtækin Kratus, GMR, Elkem Ís-
land og Norðurál á Grundartanga
héldu opinn kynningarfund fimmtu-
daginn 30. apríl um umhverfismál
og framleiðslu á Grundartanga.
Þar voru kynntar niðurstöður um-
hverfisvöktunar fyrir iðnaðarsvæð-
ið á Grundartanga árið 2014. Full-
trúar fyrirtækjanna fluttu erindi um
starfsemi og mengunarvarnir þeirra.
Höfundar sérfræðiskýrslu voru
einnig til svara á fundinum. Fund-
urinn var opinn öllu áhugafólki um
umhverfið í nágrenni Grundar-
tanga. Nýmæli var að bein útsend-
ing var frá fundinum með streymi
á vef Norðuráls og Skessuhorns
þannig að allir sem ekki áttu heim-
angengt áttu möguleika að fylgj-
ast með gegnum tölvu. „Þarna voru
meðal annars kynntar mælinganið-
urstöður sem sýna að öll mengunar-
viðmið eru innan marka. Það gildir
jafnt um ákvæði varðandi starfsleyfi
sem og reglugerðir,“ segir Magnús
Freyr Ólafsson verkefnastjóri um-
hverfisvöktunar iðnaðarsvæðisins á
Grundartanga. Horfa má á upptöku
af kynningarfundinum á vef Norð-
uráls (www.nordural.is).
mþh
Fundi um umhverfismál á
Grundartanga streymt á
vef Skessuhorns
Stóriðjusvæðið á Grundartanga.