Skessuhorn - 08.05.2015, Síða 21
21MIÐVIKUDAGUR 6. MAÍ 2015
Bæjarstjórnarfundur
1214 fundur bæjarstjórnar Akraness verður
haldinn í bæjarþingsalnum að Stillholti 16-18,
þriðjudaginn 12. maí kl. 17:00.
Fundirnir eru öllum opnir og eru bæjarbúar hvattir
til að mæta og kynna sér bæjarmálin.
Vakin er athygli á því að hægt er að hlusta á beina
útsendingu frá fundinum á FM 95,0.
Bæjarmálafundir flokkanna verða sem hér segir:
Sjálfstæðisflokkurinn í Gamla Kaupfélaginu,
laugardaginn 9. maí kl. 10.30.
Frjálsir með Framsókn í Haraldarhúsi, Vesturgötu 32,
kjallara, gengið inn frá palli, mánudaginn 11. maí kl. 20.00.
Björt framtíð í Vitakaffi, Stillholti 16-18,
mánudaginn 11. maí kl. 20.00.
Samfylkingin í Stjórnsýsluhúsinu, 1. hæð,
Stillholti 16-18, laugardaginn 9. maí kl. 11.00.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
Hvað er framundan í þjónustu við fatlað fólk
og foreldra fatlaðra barna á Vesturlandi?
Þroskahjálp á Vesturlandi, í samvinnu við
Landssamtökin Þroskahjálp, boða til opins
fundar þriðjudaginn 12. maí kl. 18.00.
Fundurinn er haldinn í sal eldri borgara að
Borgarbraut 65a, efstu hæð.
Til fundarins er sérstaklega boðið forsvarsmönnum
Þjónusturáðs fatlaðs fólks á Vesturlandi og
forsvarmönnum sveitarfélaga á svæðinu.
Fatlað fólk og forráðamenn þeirra eru
hvattir til að fjölmenna á fundinn.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
Þroskahjálp á Vesturlandi
Notum virkan ferðamáta!
Hjólum • Göngum • Hlaupum • Tökum strætó
Vinnustaðakeppni
Skráning og nánari upplýsingar á
hjoladivinnuna.is
Íþrótta- og
Ólympíusamband Íslands
kynnir:
Taktu þátt í Instagram-leik #hjólaðívinnuna
6.–26. maí
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
I
S
I
73
83
7
04
/1
5
Garðaþjónustan Sigur-garðar sf.
í Borgarfirði festi nýverið kaup á
stórum, traktorsdrifnum trjákurl-
ara sem fyrirtækið hyggst nota til
að kurla afklippur og annan við
sem til fellur við garðhirðu og
grisjun trjáa. Blaðamaður Skessu-
horns spjallaði stuttlega við Sindra
Arnfjörð hjá Sigur-görðum. Sindri
vildi ekkert fullyrða um stærð trjá-
kurlarans samanborið við aðra
kurlara landsins, en sagði hann þó
vera nokkuð stóran, gæti kurlað
boli allt að 23 cm í þvermál. Einn-
ig sagði Sindri kurlarann útbúinn
fjarstýrðu dráttarspili sem dragi
trjábolina að sér. „Ég er svona hug-
sjónamaður skulum við segja, reyni
að vera á undan öðrum. Reyndar
er ég búinn að ganga með þessa
hugmynd í kollinum í 20 ár. Svona
kurlari þarf að vera til í sveitum
landsins. Þegar gámastöðvarn-
ar minnka þjónustuna kemur fólk
viðnum ekki frá sér. Við erum
svo aftarlega á merinni að þessu
er bara hent, við verðum að nýta
það sem landið gefur. Það er upp-
lagt að nýta kurlið í stígagerð og
einnig ofan á trjábeð. Ég hef sjálf-
ur verið með kurl í trjábeðum í ein
tíu ár og þarf aldrei að fara niður
á fjóra fætur til að reita arfa. Bæti
bara kurli í beðin á svona tveggja
til þriggja ára fresti. Svo brotnar
það niður og verður að áburði fyr-
ir plönturnar,” segir Sindri.
Hann kveðst sjá fram á næg
verkefni fyrir kurlarann í fram-
tíðinni og að allnokkur liggi fyrir
nú þegar. „Ég fór í þessa fjárfest-
ingu aðallega til að kurla fyrir al-
menning, sumarbústaðaeigend-
ur og aðra. Þeir geta þá safnað af-
klippum saman og fengið mig til
að koma og kurla fyrir sig. Einn-
ig hafði ég frétt af því að Borg-
arbyggð, Landbúnaðarháskólinn
á Hvanneyri, skógræktarfélög og
skógarbændur hefðu undanfarin ár
leigt sér svona tæki. Það er því von
mín að þessir aðilar versli í heima-
byggð hér eftir,“ segir Sindri.
„Þegar þetta verkefni verður kom-
ið aðeins af stað þá er ætlunin að
selja kurl í stórsekkjum eða stærri
einingum. Einnig vil ég koma því á
framfæri að ég vil mjög gjarnan fá
að vita af því ef fólk þarf að losna
við birkitré eða hríslur. Ég mun
ná í þær fólki að kostnaðarlausu,
allavega á stór-Borgarfjarðarsvæð-
inu,” bætir hann við að lokum.
kgk
Sigur-garðar taka í notkun nýjan
og stórvirkan trjákurlara
Kurlarinn er af gerðinni Linddana 230 PTO. Hér má sjá hvar Jóhann Ólafur Ársæls-
son hjá Ásafli (t.h.) afhendir Sindra Arnfjörð hjá Sigur-görðum kurlarann. Myndin
er fengin af facebook síðu Ásafls.
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is