Skessuhorn


Skessuhorn - 08.05.2015, Side 35

Skessuhorn - 08.05.2015, Side 35
35MIÐVIKUDAGUR 6. MAÍ 2015 Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is eBOX er ný, þægileg og einföld lausn til að flytja minni sendingar frá Evrópu til Íslands. Á ebox.is er reiknivél sem segir þér á augabragði hver flutningskostnaðurinn er. Traust og áreiðanlegt leiðakerfi Eimskips á Norður-Atlantshafi tryggir að sendingin þín kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt. auðveldar smásendingar Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA SMÆRRI SENDINGAR ������� ��������� � e���.�� F ÍT O N / S ÍA F ÍT O N / S ÍA Firmakeppni Víkings í fótbolta fór fram í Íþróttahúsi Snæfells- bæjar föstudaginn 1. maí. Í ár voru einungis fimm lið skráð til keppni; FMÍ 1, FMÍ 2, Deloitte, Breiðavík/Nesver og Esjar. Þó liðin væru fá var góð stemming og hörkuleikir spilaðir. Úrslitin voru þau að lið Deloitte bar sig- ur úr býtum en lið FMÍ 1 í öðru sæti. þa Knattspyrnufélagið Kári á Akranesi landaði í síðustu viku sínum öðrum titli á leiktíðinni þegar félagið varð Lengjubikarmeistari C-deildar og Fótbolta.net mótsins. Sigurður Jónsson þjálfari og leikmenn hans í Kára unnu 3-1 sigur gegn KH á Hlíðarenda í úrslitaleik deildar- innar. Kári komst tveimur mörk- um yfir eftir aðeins tíu mínútna leik með mörkum Salvars Georgsson- ar og Valgeirs Daða Valgeirssonar. KH minnkaði muninn um miðbik seinni hálfleiks en nokkrum mín- útum síðar var sigur Káramanna endanlega innsiglaður með marki Ragnars Þórs Gunnarssonar. mm/ Ljósm. Kári. Kvennalið ÍA gerði markalaust jafntefli við Þrótt Reykjavík í síð- asta leik liðsins í B-deild Lengju- bikars kvenna á föstudaginn síðasta. Skagakonur fengu fjölda marktæki- færa, áttu meðal annars skot í stöng og slá en tókst ekki að koma boltan- um í netið. Úrslitin þýða að Skaga- konur enduðu í fjórða sæti síns rið- ils í Lengjubikarnum. Næst mæta þær Fjölni í Borgunarbikarnum 18. maí og Íslandsmótið í 1. deild kvenna hefst svo mánudaginn 25. maí þegar Skagakonur taka á móti Augnabliki á Akranesvelli. kgk Síðastliðinn sunnudag tók lið meistaraflokks ÍA í knattspyrnu karla á móti Stjörnunni á Akranes- velli í fyrsta leik Íslandsmótsins. Aðstæður til knattspyrnuiðkunar voru ágætar, síðdegissólin skein en nokkur vindur var og kólnaði þegar leið á leikinn. Akranesvöllur virtist koma prýðilega undan vetri. Vert er að minnast á að Skessuhorn var með beina textalýsingu frá leiknum á heimasíðu sinni og stefnt er að slíkri lýsingu á öllum heimaleikjum í efstu deild í sumar. Leikurinn fór rólega af stað. Stjörnumenn voru töluvert meira með boltann og þreifuðu fyrir sér. Skagamenn lágu til baka, vörðust vel og beittu skyndisóknum og löngum sendingum fram völlinn. Það var svo á 23. mínútu að gestirnir fengu aukaspyrnu um 25 metra frá marki Skagamanna. Ólafur Karl Finsen tók spyrnuna. Hann gerði sér lítið fyrir og smellti boltanum upp sam- skeytin, óverjandi fyrir Árna Snæ í marki Skagamanna. Staðan í hálf- leik 1-0, Stjörnunni í vil. Skagamenn komu ákveðnir til leiks í síðari hálfleik og léku betur en í þeim fyrri. Sköpuðu sér nokk- ur færi, voru skipulagðir en leik- menn Stjörnunnar voru þó áfram ógnandi. Árni Snær varði nokkr- um sinnum vel í marki Skaga- manna, maður á móti manni. Það var svo á 84. mínútu að Ólafur Karl féll í vítateig Skagamanna eftir viðskipti sín við Ármann Smára. Þóroddur Hjaltalín dóm- ari blés í flautu sína og dæmdi víti. Ólafur Karl tók spyrnuna sjálf- ur en Árni Snær fór í rétt horn og varði vítið stórvel. Síðustu mínútur leiksins fékk Garðar Gunnlaugsson tvö tæki- færi til að jafna fyrir Skagamenn. Fyrst með skalla eftir góða send- ingu Alberts Hafsteinssonar, síð- an þegar hann slapp einn inn fyr- ir vörn Stjörnunnar en skaut yfir markið úr nokkuð þröngu færi. Stjörnumenn höfðu því sigur með einu marki gegn engu. kgk/ Ljósm. Guðmundur Bjarki Halldórsson. Knattspyrnufélagið Kári frá Akra- nesi gerðu sér ferð til Hveragerðist síðastliðinn laugardag og mættu Hamri í Borgunarbikar karla. Fóru leikar svo að Káramenn völtuðu yfir Hvergerðinga með sjö mörk- um gegn engu. Fjalar Örn Sigurðs- son skoraði þrennu og Valgeir Daði Valgeirsson, Ragnar Þór Gunn- arsson, Sverrir Mar Smárason og Dominik Bajda skoruðu sitt mark- ið hver. Næsti leikur Káramanna í bikarnum verður gegn ÍH þriðju- daginn 19. maí en fyrsti leikur liðs- ins í þriðju deild karla verður gegn Víði á Akranesvelli laugardaginn 16. maí. kgk Síðastliðið föstudagskvöld var hald- inn stuðningsmannafundur í Bíó- höllinni á Akranesi á vegum Knatt- spyrnudeildar ÍA. Fundarstjóri var Pálmi Haraldsson og Magn- ús Guðmundsson, formaður knatt- spyrnudeildar, ávarpaði samkom- una. Gunnlaugur Jónsson þjálfari meistaraflokks karla kynnti liðið sem mun leika í úrvalsdeild í sumar og Ágúst Valsson, aðstoðarþjálfari kvennaliðs ÍA, kynnti hóp kvenna- liðsins sem mun leika í fyrstu deild Íslandsmótsins. Kynnti hann liðið í fjarveru Þórðar Þórðarsonar þjálf- ara. Samúel Þorsteinsson tók svo nokkur lög á gítarinn og salurinn söng með. Ágætis mæting var á fundinn og ljóst að nokkur eftirvænting var meðal stuðningsmanna fyrir knatt- spyrnusumrinu 2015. Fyrsti leik- ur Íslandsmóts karla fór svo fram sunnudaginn 3. maí þegar ÍA mætti Stjörnunni á Akranesvelli. Íslands- mót kvenna hefst mánudaginn 25. maí en þá mæta Skagakonur Augna- bliki, einnig á Akranesvelli. kgk Stórsigur Káramanna í Hveragerði Skagamenn töpuðu fyrir Íslandsmeisturunum Ármann Smári Björnsson vinnur skallaeinvígi í vörn Skagamanna. Garðar Gunnlaugsson reynir að koma skoti að marki Stjörnunnar. Kári tók sinn annan titil á undirbúningstímabilinu Góð stemning á Firmakeppni Víkings Sigurvegararnir, lið Deloitte. Lið FMÍ 1 varð í öðru sæti. Markalaust jafntefli Skagakvenna Gunnlaugur Jónsson þjálfari kynnti liðið. Stuðningsmannafundur ÍA í Bíóhöllinni

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.