Skessuhorn


Skessuhorn - 07.10.2015, Blaðsíða 23

Skessuhorn - 07.10.2015, Blaðsíða 23
MIÐVIKUDAGUR 7. OKTÓBER 2015 23 Krossgáta Skessuhorns Hér er ný krossgáta fyrir lesendur að leysa. Þeir sem vilja geta sent Skessuhorni lausnarorð/in á net- fangið: krossgata@skessuhorn.is fyrir klukkan 15 á mánudögum. Athugið að fullt nafn og heimilisfang þarf að fylgja með lausninni. Þeir sem ekki hafa að- gang að tölvupósti sendi lausnir á Kirkjubraut 56, 300 Akranesi (athugið að póstleggja þarf lausnir í síðasta lagi á föstudegi). Dregið verður úr réttum innsendum lausnum og fær vinningshafinn bókagjöf frá Skessu- horni. 68 lausnir bárust við krossgátu í blaðinu í síðustu viku. Lausnin var: „Umhugsun.“ Vinningshafi er: Sig- ríður Matthíasdóttir, Logafold 182, 112 Reykjavík. mm Auðvelt Ýkjur Leir Eyrar Dæld Hlífa Reyrir Reifi Röst Rot Gripur Innyfli Haft Óhress Sérstök Elskar Hóg- værð 10 Varma Blíða Óhóf Ókunn Athugul Afkom- anda Fræg Korn Braut Fjöldi Skel Hús- feyja Aðfall Gat 5 13 Tvíhlj. Málmur 16 Fórn Ras Kopar Ungfrú Erta Sk.st. 14 7 Hvorki Næði 11 Spurn Kot- roskinn Skylda Skoðun Æfur Spakur Hætta Þjálf- aður Lít 50 Storð Sæll Vangur Titill Ögn 9 Lögg Planta Krókur Rugga Geta Eink.st. Vík Maður Neyttum 3 Átt Fen Dyl Kirtil Kylfa 1 Hönd Vafi 18 Kleif Nóran Skortur Hvarm- ur Eldstó Hlíð Grund Skamm- ir 15 Skipar 2 Ólatir 12 Nef Leit Á fæti Elds- neyti Bogi Sk.st. Flýtir Bardagi Önugur Hneisa 8 Hópur Röð Sannur Vottar Blunda Sverta Hrönn Leyfist Brotleg Finna leið Lend Aurar Áhald 1000 Á flík 4 Far Duft 19 Afa Stýra 6 17 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 Þann 23. september síðastlið- inn, á dánardegi Snorra Sturlu- sonar í Reykholti, voru félagasam- tökin „Vinir Snorra“ (Foreningen Snorres venner) stofnuð í Björgvin í Noregi. Viðburðurinn fór fram á Bryggjusafninu (Bryggens Mu- seum) við gömlu höfnina í miðborg Björgvinjar þar sem skip komu að frá Íslandi og lögðu upp vestur um haf á miðöldum. „Vinir Snorra“ eru hollvinasamtök Snorrastofu í Noregi. Þau munu vinna að því að efla menningararfinn eftir Snorra Sturluson og rækta menningar- tengsl milli Íslands og Noregs. „Stofnun þessara samtaka er búin að vera í undirbúningi í mörg ár. Á sínum tíma þegar bygging Snorra- stofu stóð yfir þá myndaðist hópur í Noregi sem safnaði fjármunum í Noregi til hennar. Þegar upp var staðið þá nam sú söfnun um fjórð- ungi af kostnaðinum. Upphaflega voru þetta kannski fimm manns. Nú þegar þessi hollvinsamtök hafa verið sett á fót þá telur hópurinn um 200 félaga,“ segir Bergur Þor- geirsson. Snorrastofa hefur um árabil hald- ið tengslum við fræðasamfélagið í Noregi, meðal annars með form- legum samstarfssamningi við Há- skólann í Björgvin sem var undir- ritaður árið 2000. „Hollvinasamtök af þessu tagi geta til dæmis beitt sér fyrir því að afla fjár í Noregi. Utan þess sem unnið var þegar Snorra- stofu var komið á fót þá höfum ekki sótt mikla fjármuni til Noregs. Stofnun svona samtaka er forsenda þess,“ segir Bergur. Verndari hollvinasamtakanna er Vigdís Finnbogadóttir fyrrum for- seti. Hún heiðraði stofnfundinn í Björgvin með ávarpi sem var sjón- varpað. Fulltrúar frá Íslandi voru viðstaddir fundinn. Þar á með- al voru Björn Bjarnason formaður stjórnar Snorrastofu, Bergur Þor- geirsson forstöðumaður og síra Geir Waage sóknarprestur í Reyk- holti. mþh Um hundrað manns komu saman í Snorrastofu í Reykholti á laug- ardaginn þar sem haldið var upp á að tveir áratugir eru liðnir frá því hún var sett á fót. „Þetta heppnað- ist mjög vel og var mjög hátíðlegt í alla staði. Þarna var rúmlega tveggja tíma dagskrá. Ólafur Pálmason flutti fyrirlestur um kveðskap Jóns Helgasonar prófessors í íslenskum fræðum frá Rauðsgili í Hálsasveit og fór með erindi úr fjölmörgum ljóðum eftir hann. Björn Bjarna- son fyrrverandi alþingismaður og menntamálaráðherra og núverandi formaður stjórnar Snorrastofu rakti sögu stofnunarinnar. Síðan var ný heimasíða Snorrastofu opnuð formlega. Það gerði Einar K. Guð- finnsson forseti Alþingis og þing- maður Norðvesturkjördæmis. Auk þessa var myndasýning með textum sem ég tók saman, þar sem greint var frá ýmsu sem á dagana hefur drifið þessa tvo áratugi frá stofn- un,“ segir Bergur Þorgeirsson for- stöðumaður Snorrastofu í samtali við Skessuhorn. Ævintýri í tvo áratugi Sjálfur hefur Bergur sinnt stöðu forstöðumanns Snorrastofu í 17 ár. „Þetta er búið að vera ævintýri lík- ast og einstaklega skemmtilegt. Það hefur hjálpað mikið til að viðtökur fólks hér heima í héraði hafa alltaf verið góðar og mikil aðsókn að okk- ar viðburðum. Hingað koma einn- ig fjölmargir ferðamenn á hverju ári,“ segir Bergur. Hann álítur að Snorrastofa sé nú búin að marka sér góðan sess til framtíðar. Nú sé kom- in trygg viðspyrna til frekari sóknar og uppbyggingar. „Ég lít svo á að við séum komin með rétta formið á rekstrinum. Við erum stöðugt að finna ný rannsóknarefni, þróa hug- myndir um sýningar, aðra viðburði og þess háttar. Nú er svo komið að það er tímabært að hugað verði að gerð nýs sýningarsals fyrir Snorra- stofu. Teikningar liggja þegar fyrir. Hann yrði þá gerður neðanjarðar á milli húsa Snorrastofu og Reyk- holtskirkju.“ Stórvirki væntanlegt Auk þess að halda sagnaarfinum á lofti gagnvart almenningi þá hef- ur Snorrastofa markað sér völl á sviði rannsókna og fræðimennsku. „Við höfum tengsl við fræðimenn víða um heim og komum að rann- sóknarverkefnum í samvinnu við þá. Stærsta rannsóknarverkefnið nú snýr að norrænni goðafræði. Það hófst árið 2008 og lýkur í fyrsta lagi 2017. Þetta er verkefni sem hefur kostað um 170 milljónir króna og er að mestu fjármagnað úr erlend- um rannsóknasjóðum. Í tengslum við það hafa verið haldnir fund- ir fræðimanna hér í Reykholti. Þetta verkefni er algerlega unnið að frumkvæði Snorrastofu. Snorra Edda geymir lýsingar á goðafræð- inni og hún var skrifuð af Snorra Sturlusyni. Að þessu verkefni hafa komið 30 helstu fræðimenn heims- ins á þessu sviði. Árangur þessa starfs mun byrja að koma fram á næsta ári. Þá kemur út fyrsta bind- ið af fimm til sjö bóka flokki sem fjalla mun um goðafræðina. Bæk- urnar verða á ensku og gefnar út af belgíska útgáfufyrirtækinu Brepols sem er það virtasta í heimi á sviði miðaldabókmennta. Þessar bækur eiga eftir að verða grundvallarrit um norræna goðafræði.“ Dagskrá vetrarins komin út Snorrastofa mun sem fyrr starfa af fullu kappi og metnaði í vetur. Nýút- komin er vetrardagskrá stofnunarinn- ar þar sem greint er frá fyrirlestrum og námskeiðum vetrarins. „Þessi dag- skrá var prentuð sem bæklingur eins og venjan hefur verið síðustu árin. Nú í ár er hins vegar það nýmæli að dagskráin er í fyrsta sinni borin í öll hús á Vesturlandi. Fram til þessa þá hefur þetta aðeins verið gert í Borg- arbyggð, Skorradal og Hvalfjarðar- sveit. Þetta var kleift þar sem nú feng- ust nægir styrktaraðilar til að prenta dagskrána í stærra upplagi og dreifa henni víðar. Ég vil hvetja íbúa Vestur- lands til að gefa henni gaum og skoða hvað Snorrastofa hefur upp á að bjóða á vetri komanda,“ segir Bergur Þor- geirsson forstöðumaður Snorrastofu. mþh/ Ljósm. Guðlaugur Óskarsson Björn Bjarnason, formaður stjórnar Snorrastofu, afhendir Kim F. Lingjærde formanni undirbúningsnefndar hollvinasamtakanna „Vinir Snorra“, heildarsafn Íslendingasagna á norsku að gjöf á stofnfundinum í Björgvin. Samtökin eru með eigin síðu á Facebook (Snorres venner). Ljósm. Bergur Þorgeirsson. Hollvinasamtök Snorrastofu stofnuð í Noregi Gestir á afmælissamkomunni hlusta á Jónínu Eiríksdóttur verkefnisstjóra. Tvítugsafmæli Snorrastofu fagnað í Reykholti Snorri Hjálmarsson og Ingibjörg Þorsteinsdóttir sáu um tónlist dagskrárinnar. Á hátíðarstundu. Bergur Þorgeirsson, forstöðumaður Snorrastofu, ásamt Jónínu Eiríksdóttur, verkefnisstjóra hjá stofnuninni. Einar K. Guðfinnsson, forseti Alþingis, opnaði með formlegum hætti nýja heimasíðu Snorrastofu (snorrastofa. is).

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.