Skessuhorn - 28.10.2015, Page 29
MIÐVIKUDAGUR 28. OKTÓBER 2015 29
Pennagrein
Gríðarleg átök urðu um ramma-
áætlun á síðasta þingi þegar meiri-
hluti atvinnuveganefndar gerði það
að tillögu sinni að farið yrði í fleiri
virkjanakosti en verkefnastjórn
þriðja áfanga hafði lagt til við ráð-
herra að yrðu nýttir. Sigurður Ingi
Jóhannsson, þáverandi umhverf-
is- og auðlindaráðherra, hafði áður
sett átta virkjanakosti í flýtimeð-
ferð og tók með því fram fyrir hend-
ur verkefnisstjórnarinnar sem lagði
einungis til að Hvammsvirkjun færi
í nýtingarflokk. Meirihluti atvinnu-
veganefndar kom með breytingar-
tillögu þar sem lagt var til að fjór-
ir kostir færu í nýtingu án lögform-
legrar meðferðar í verkefnastjórn-
inni. Áður hafði meirihlutinn gert
munnlega tillögu um að sjö virkj-
anakostir færðust í nýtingarflokk
en hraktist undan andstöðu niður í
fjóra í endanlegri tillögu sinni. Þar
var meðal annars lagt til að Holta-
virkjun og Urriðafossvirkjun í neðri
Þjórsá, sem báðar eru í biðflokki og
hafa verið mjög umdeildir virkjun-
arkostir, yrðu byggðar en virkjana-
sinnar hafa lagt mikla áherslu á að
koma allri neðri Þjórsá í nýtingar-
flokk í því skyni að útvega orku til
nýrra stóriðjuframkvæmda.
Fyrrnefnd breytingartillaga varð
mikið hitamál á síðasta þingi og
lagði stjórnarandstaðan mikið á
sig til að verja lögformlega ferla
rammaáætlunarinnar með þeim ár-
angri að flutningsmenn stjórnar-
liða gáfust að lokum upp og drógu
breytingartillöguna til baka eins og
hún lagði sig.
Hvammsvirkjun var síðan sam-
þykkt í þinglok síðasta vor gegn at-
kvæðum Vinstri grænna sem kom-
ust að þeirri niðurstöðu eftir lest-
ur umsagna um málið að afleið-
ingar af virkjuninni yrðu neikvæð-
ar fyrir lífríki virkjanasvæðisins og
laxastofninn í Þjórsá. Umsagnirn-
ar báru með sér að virkjunin væri
í raun prófsteinn á að seiðafleytur
virkuðu, engin vissa væri um það,
og þar með yrði alltof mikil áhætta
tekin gagnvart laxastofni Þjórsár ef
ætti að reiða sig á úrræði sem ekki
hefur verið reynt til hlítar. Einn-
ig tók þingflokkur VG undir þau
sjónarmið að það væri ekki í sam-
ræmi við aðferðafræði rammaáætl-
unar að taka einn kost út úr eins og
gert var í tillögunni. Samanburð-
ur væri nauðsynlegur og hann hefði
ekki farið fram. Þannig lauk umfjöll-
un þingsins í vor og var þá formaður
atvinnuveganefndar með heitingar
um að þessum tilfæringum væri ekki
lokið og hann myndi mæta brattur
til leiks á nýju þingi.
Umhverfisráðherra steig svo fram
í sumar og kvaðst ekki ætla að leggja
fram nýjar tillögur að virkjanakost-
um heldur bíða tillagna verkefna-
stjórnar þriðja áfanga sem ætti að
liggja fyrir eftir rúmt ár. Með þessu
lýsti ráðherra ótvíræðu trausti á
vinnu verkefnastjórnarinnar og gaf
til kynna að ráðuneytið myndi fylgja
lögformlegu ferli og bíða niðurstöð-
unnar.
Enn er þó reimt
Atburðarásin í vetur er leið og um
vorið og lyktir mála þá gátu gefið til
kynna að stjórnvöld myndu láta sig
hafa það að fylgja reglum ramma-
áætlunar. Því ollu þeir reimleikar
í málinu mikilli furðu þegar gaml-
ir draugar gengu aftur og meiri-
hluti atvinnuveganefndar boðaði
fjölda fyrirtækja úr orkugeiranum á
sinn fund 24. september síðastlið-
inn, ásamt fulltrúum Landsvirkjun-
ar, Orkustofnunar og fulltrúum um-
hverfis- og auðlindaráðuneytis og
atvinnuvegaráðuneytisins til að ræða
gagnrýni sína og orkufyrirtækjanna
á vinnubrögð verkefnisstjórnarinn-
ar. Gefið var í skyn að verkefnis-
stjórnin ynni ekki faglega og fylgdi
ekki lögformlegum ferlum. Sérstak-
lega var fundið að því að unnið væri
með umhverfismat áætlana eins og
um umhverfismat framkvæmda væri
að ræða og að fram færi of mikil
gagnasöfnun. Einnig var gagnrýni
beint að hæfi einstaklinga í faghóp-
um. Ég lagði sjálf hart að formanni
atvinnuveganefndar að koma koma
því í kring að fulltrúar Landvernd-
ar, Náttúruverndarsamtaka Íslands
auk Skipulagsstofnunar yrðu einnig
á þessum fundi. Ekki var orðið við
því og komu fulltrúar þessara aðila
ekki fyrir nefndina fyrr en 6. októ-
ber síðastliðinn á fundi sem fulltrúar
úr ráðuneytum og formaður verk-
efnastjórnar sátu líka.
Á þeim fundi var fyrrnefndri
gagnrýni á vinnu verkefnastjórnar-
innar hrundið lið fyrir lið. Skipu-
lagsstofnun, sem hefur eftirlits-
hlutverk með umhverfismati áætl-
ana, taldi að ekkert væri hæft í þeirri
gagnrýni að óeðlilega nákvæm og
umfangsmikil gagnasöfnun væri við
umhverfismat áætlana hjá verkefna-
stjórninni. Einnig kom fram að eng-
ar athugasemdir væru gerðar við
hæfi fólks í faghópum. Með vísan
til Árósarsamningsins um aðgang að
upplýsingum, þátttöku almennings
í ákvarðanatöku og aðgang að rétt-
látri málsmeðferð í umhverfismál-
um telst nauðsynlegt og óhjákvæmi-
legt að tryggja aðkomu almennings
að ferlinu og þar koma frjáls félaga-
samtök eins og Landvernd og Nátt-
úruverndarsamtök Íslands til sög-
unnar.
Þrátt fyrir atlögur að
verkefnisstjórn nýtur
hún trausts
Mjög mikilvægt er að traust ríki til
vinnu verkefnastjórnar og að ekki sé
grafið undan trúverðugleika og fag-
mennsku þeirra sem eru í faghóp-
unum og í verkefnastjórninni. Þær
upplýsingar sem fram komu á seinni
fundi atvinnuveganefndar um mál-
ið eru þess eðlis að ljóst er að mála-
tilbúnaður orkugeirans og meiri-
hluta atvinnuveganefndar er til-
hæfulaus með öllu og ber að hafa til-
burði þessara aðila til að grafa und-
an trausti á verklagi rammaáætlunar
að engu. Fullt traust stjórnvalda rík-
ir á faglegri vinnu verkefnastjórnar
þriðja áfanga sem má treysta því að
fá vinnufrið til þess að skila af sér til-
lögum innan árs samkvæmt lögum
og reglu. Er það vel.
Lilja Rafney Magnúsdóttir.
Höf. er alþingismaður VG og vara-
formaður atvinnuveganefndar.
Tekist á um rammaáætlun -
Sótt fram og hörfað í
atvinnuveganefnd
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is
Tökulið frá framleiðslufyrirtæk-
inu Sagafilm hefur undanfarna
viku unnið að tökum á auglýsingu
hér á Vesturlandi fyrir Íbúðalána-
sjóð. Er auglýsingin liður í mark-
aðsherferð sjóðsins og fóru tök-
ur m.a. fram bæði á Akranesi og
í Borgarnesi.
kgk
Íbúðalánasjóður í markaðsátak
Frá tökum Sagafilm við Suðurgötu á Akranesi.
Ljósm. ki.
Tökur á auglýsingu Íbúðalánasjóðs fóru einnig fram í Borgar-
nesi. Hér er tekið upp við Landnámssetrið. Ljósm. þg.
Árlegur haustfagnaður Félags
sauðfjárbænda í Dalasýslu var hald-
inn hátíðlegur um síðustu helgi.
Að sögn Eyjólfs Ingva Bjarnason-
ar, formanns FSD, fór hátíðin vel
fram og aðsókn var góð á alla við-
burði. „Það var mikið betri mæt-
ing en ég þorði að vona því veðrið
var leiðinlegt, sérstaklega aðfarar-
nótt laugardagsins,“ sagði Eyjólfur
í samtali við Skessuhorn. „Ég held
það hafi mætt ríflega 360 manns á
sviðaveisluna. Hún tókst mjög vel
og ég hef ekki annað heyrt en að
menn hafi almennt verið ánægðir.
Hjörleifur Hjartarson stóð sig frá-
bærlega sem veislustjóri, hann ger-
samlega átti salinn.“
Íslandsmeistaramótið í rúningi
er fastur liður í haustfagnaði og var
það Hafliði Sævarsson frá Fossár-
dal sem hampaði Íslandsmeistara-
titlinum, annað árið í röð. Á gripa-
sýningunum var það hrútur nr. 6
frá Rauðbarðaholti sem sigraði í
flokki hyrndra lambhrúta, en hann
var jafnframt valinn Héraðsmeist-
ari. Baukur frá Hrappsstöðum var
hlutskarpastur kollóttra lambrúta
og hrútur nr. 3931 frá Breiðabóls-
stað sigraði í flokki mislitra lamb-
hrúta. Ærin Áslaug 10-121 frá Ás-
garði fékk viðurkenningu sem besta
ær Dalasýslu byggt á kynbótamati
kinda fæddra árið 2010.
Gimbrasýning var haldin í
fyrsta skipti og þar sigraði gimbr-
in Dúkka, í eigu Stellu Margrétar
Birgisdóttur, sex ára stúlku frá Bæ.
„Hún lagði mikla vinnu í að skreyta
gimbrina sína og búa undir keppn-
ina og er vel að sigrinum kom-
in. Mér skilst að gimbrin hafi ver-
ið líflítil þegar hún kom í heiminn
en að Stella hafi bjargað lífi henn-
ar með því að halda á henni hita og
leggja í dúkkuvagninn sinn. Þaðan
kemur nafnið Dúkka,“ segir Eyj-
ólfur. Verðlaunagripurinn sem hún
fékk var gefinn af Kjartani og Guð-
rúnu á Dunki í tilefni af 30 ára af-
mæli FSD.
Grillveislan í Dalabúð að kvöldi
laugardags var mun stærri en oft
áður að sögn Eyjólfs, en rúmlega
330 manns tóku þátt í henni. Dans-
leikurinn sama kvöld var einnig
fjölmennur. „Allir viðburðir voru
vel sóttir og helgin heppnaðist vel í
alla staði,“ segir hann. „Mig langar
að þakka styrktaraðilum, sjálfboða-
liðum og öllum sem lögðu hönd á
plóg við að gera þessa hátíð mögu-
lega. Án þeirra væri þetta ekki
hægt,“ segir Eyjólfur að lokum.
kgk/ Ljósm. bae.
Haustfagnaður FSD fór fram um helgina
Þröngt mega sáttir sitja. Sviðaveislan að kvöldi föstudags hefur fyrir löngu fest sig í
sessi.
Bestu rúningsmenn landsins öttu kappi í
Íslandsmeistaramótinu í rúningi.
Hafliði Sævarsson frá Fossárdal sigraði rúningskeppnina, annað árið í röð.
Árshátíð hestamanna á Vesturlandi
verður haldin á Fosshótel Reyk-
holti, föstudaginn 20. nóvember og
hefst hún klukkan 19:30. „Þetta er
þriðja árið sem vestlenskir hesta-
menn koma saman og gera sér
glaðan dag og er það von okkar að
sem flestir sjái sér fært að gleðjast
með okkur. Hátíðin verður nánar
auglýst síðar,“ segir í fréttatilkynn-
ingu frá skemmtinefnd sem hvet-
ur vestlenska hestamenn til að taka
daginn frá.
mm
Árshátíð
hestamanna á
Vesturlandi