Skessuhorn


Skessuhorn - 28.10.2015, Blaðsíða 30

Skessuhorn - 28.10.2015, Blaðsíða 30
MIÐVIKUDAGUR 28. OKTÓBER 201530 Ungmennafélag Íslands er aðili að NSU – Nordisk Samorgnisations for Ungdomasarbejde, en samtökin standa fyrir viðburðum fyrir ungt fólk á Norðurlöndum á hverju ári. Ungmennavika NSU fyrir krakka á aldrinum 15-20 ára fór að þessu sinni fram dagana 3. - 8. ágúst í Karpenhøj sem er 50 km frá Árós- um í Danmörku. Þangað fóru 12 krakkar frá öllum landshlutum Ís- lands en ferðin var á vegum UMFÍ. Þema ferðarinnar í ár var „Norden redder Jorden Play 4 the Planet“ en fjallað var um náttúruna okkar, loftslag á Norðurlöndum í bland við ævintýri og leiðtogahæfileika ungs fólks á Norðurlöndunum. Fanney Guðjónsdóttir frá Síðu- múlaveggjum í Borgarfirði var með í för og ritar hún meðfylgjandi frá- sögn af ferðinni. Mánudagur 3. ágúst Vaknaði spennt þessa mánudags- nótt um fjögurleytið, þar sem við þurftum að koma okkur af stað á flugvöllinn. Þar hittum við Hrönn og alla hina krakkana sem voru á leið í þessa ferð og innrituðum okk- ur í flugið. Þá hittumst við öll til að taka hópmynd af þessum frábæru krökkum sem voru þar samankom- in. Eftir um það bil tvo tíma lögð- um við svo af stað og lentum í Bill- und, þar sem við tókum rútu til Ár- ósa. Í rútunni var mikið spjallað og hver og einn kynnti sig fyrir öllum hinum. Þá þurfum við að koma okk- ur í aðra rútu en þar hittum við síð- an flesta krakkana sem áttu að vera með okkur næstu vikuna og fór- um við til Karpenhøj. Þegar þang- að var komið var okkur strax skipt niður í hópa sem áttu að vera mest saman alla vikuna og fundum okk- ur næturstað. Hóparnir fóru síð- an í spurningaleik og spurðu hvort annað ýmissa skemmtilegra spurn- inga á meðan rölt var um svæðið. Um kvöldið var farið í nafna- og kynningarleik en einnig var okkur kenndur danskur dans sem var afar áhugaverður og skemmtilegur. Rétt fyrir svefninn fóru nokkrir krakk- ar að skoða svæðið í myrkrinu og fundu froska, snigla, köngulær og fleiri dýr sem ekki finnast á Íslandi. Þá fóru allir að sofa, þreyttir en sæl- ir eftir fyrsta daginn í Danmörku. Þriðjudagurinn 4. ágúst Dagurinn byrjaði á kynningu á löndunum og því þurftum við að mála fánana og finna áhugaverðar staðreyndir um landið til að kynna fyrir hinum hópunum. Ég og Svan- ur vorum saman í Íslandshópnum og því þurftum við að leiða krakk- ana svolítið áfram í þessu verkefni. Eftir hádegið var farið í skemmti- legasta ratleik sem ég hef farið í! Þar fórum við í alls konar leiki og þrautir sem maður hefur aldrei prófað áður og var þetta alveg æð- islega gaman. Þetta voru níu stöðv- ar. Fyrsta stöðin var þannig að við fengum miða og áttum að gera það sem stóð á miðanum, til dæmis ef það stóð nef á læri þá þurftum við að gera það og svo framvegis. Þetta tók á og þurftum við að vinna saman og finna lausa líkamsparta og reyna að gera eins mörg atriði og við gát- um. Stöð 2 var sprengjuleikur þar sem við þurftum að vinna vel saman og komast í gegnum sprengjusvæði, en aðeins einn mátti horfa á svæð- ið í einu. Þegar komið var á stöð 3 fengum við miða með orði sem við áttum að stafa með rassinum og hinir í hópnum áttu að giska á orð- ið. Stöð 4 var þannig að það voru kassar dreifðir um lítið svæði og svo voru einnig þrjár spýtur þar. Mark- miðið var að komast yfir svæð- ið án þess að snerta jörðina, þetta tók smá tíma en við gátum unn- ið nógu vel saman til að ná þessari þraut. Á stöð 5 áttum við að hafa bundið fyrir augun á okkur og búa til kassa með x í miðjunni úr bandi. Á stöð 6 áttum við að byggja flugvél úr Legókubbum en tveir voru uppi á hæð að byggja en hinir áttu að vera niðri með bæklinginn og muna hvað átti að gera og segja þessum sem voru uppi. Stöð 7 var spilaleik- ur þar sem hver og einn fékk miða með reglum sem hann átti að fylgja en þetta gekk misvel, þar sem einn fékk miða sem stóð að aðeins hann mætti snerta spilin. Á næst síðustu stöðinni var kajakboðhlaup, en þar prófaði ég kajak í fyrsta skipti og var það alveg frábært! Á síðustu stöð- inni átti að hver og einn að hlusta á lag í heyrnatólum og humma með og hinir áttu að giska á lag- ið. Allir þessir leikir voru frábær- ir og það var svo gaman að prófa eitthvað nýtt og læra þessa leiki. Um kvöldið kom fólk frá Fossil Fuel og lét okkur gera ýmsar þraut- ir og fara í skemmtilega leiki. Síðan fórum við að spila og eftir það fór- um við að sofa. Miðvikudagurinn 5. ágúst Eftir morgunmat var farið á loft- lagsráðstefnu þar sem sameigin- legt markmið hópanna var að lækka koltvísýring með tilliti til mark- miða landanna. Þetta var skemmti- legt verkefni þrátt fyrir smá ágrein- ing í byrjun og fólk áttaði sig ekki alveg á tilgangi leiksins. En þeg- ar lengra var komið gekk þetta vel fyrir sig og við náðum markmiðinu sem var að lækka CO2 um 30%. Við fengum pásu til að fara aðeins á ströndina að synda og var það frá- bært í góða veðrinu og var ákveðin stund milli stríða. Um kvöldið grill- aði hver hópur mat frá sínu landi og við Íslendingarnir gáfum hinum ís- lenskt nammi til að smakka. Þá var hugguleg kvöldstund þar sem við sátum við eld og sungum saman. Fimmtudagurinn 6. ágúst Eftir morgunmatinn var okkur skipt í aðra hópa og þá áttum við að fara niður að strönd og byggja fleka sem við gætum siglt smá spotta á. Við fengum efni í fleka, fjórar langar spýtur og 4 styttri spýtur, 4 tunnur og rúllu af bandi. Minn hópur var fyrstur að klára flekann sinn og fór- um við að prófa hann. Svo löguð- um við hann aðeins og gátum siglt honum smá. Þá byrjaði keppnin mikla og áttum við að sigla í kring- um Freddy (leiðsögumaður) sem var úti á sjónum á kajak og til baka. Liðið sem ég var í vann og fengum við nammi í verðlaun. Þá urðum við að ganga frá eftir okkur og var þá komið að stöðvakeppni í landahóp- unum okkar. Stöðvarnar voru bog- fimi, að hjóla blindandi, traustsæf- Fanney Guðjónsdóttir segir frá Ungmennaviku NSU Karpenhøj í Danmörku, skammt frá Árósum. Á Keflavíkurflugvelli við upphaf ferðar. Hópurinn sem kynnti Ísland fyrir öðrum þátttakendum. Fanney prófaði kajak í fyrsta sinn í ratleiknum. Frá lofslagsráðstefnu Ungmennavikunnar.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.