Skessuhorn


Skessuhorn - 28.10.2015, Blaðsíða 33

Skessuhorn - 28.10.2015, Blaðsíða 33
MIÐVIKUDAGUR 28. OKTÓBER 2015 33 Óska eftir bílamálara /bifreiða- smið Vantar bílamálara og bifreiðasmið til starfa sem fyrst hjá gæðavott- uðu, 5 stjörnu verkstæði í Mos- fellsbæ. Vegna mikillar vinnu getum við bætt við okkur vandvirkum/stundvísum starfs- mönnum. Einnig getum við tekið verðandi bílamálara/bifreiðasmiði í starfsnám ef viðkomandi hefur farið í BHS skólann. Upplýsingar í síma 697-7685. Húsasmiður óskar eftir vinnu Húsasmiður með langa reynslu óskar eftir vinnu á Akranesi. Upp- lýsingar í síma 841-0420, Björn. Mitsubishi L200 Til sölu MMC L200 árg. 2004, sjálf- skiptur, ekinn 208 þús. Ný vél, sem ný nagladekk á felgum fylgja með. Pallhýsi. Uppl. 692-5525. Krókheysispallur óskast Óska eftir krókheysispalli eða gömlum vörubílspalli fyrir sann- gjarnt verð. Má þarfnast viðhalds eða viðgerða. Uppl. s. 822-7370. Yaris til sölu Til sölu Toyota Yaris 1,3 sol, fimm dyra, árg. 2007. Ekinn 116 þ.km. Nýskoðaður, nýtt í bremsum, ný heilsársdekk. Lítur vel út. Verð 1.150.000. Uppl. í síma 866-7632. Einbýli óskast í Hvalfjarðarsveit Reyklaust, reglusamt par óskar eftir einbýli til leigu í Hvalfjarðar- sveit. Góðri umgengni og skilvísum greiðslum heitið. Fyrirframgreiðsla og trygging samkomulag. Upplýs- ingar í síma 848-1186 og olgeir56@ simnet.is. Íbúð óskast sem fyrst Hjón á fimmtugsaldri óska eftir íbúð til leigu sem fyrst. Stúdíó, 2 herbergja eða 3 herbergja. Erum róleg og reglusöm. Öruggar greiðslur. Upplýsingar gefur Björn í síma 841-0420. Einbýlishús til leigu Til leigu einbýlishús í neðri bænum í Borgarnesi, nánari upplýsingar í netfang elladav@simnet.is. Vefstóll til sölu Vel með farinn glimåkra vefstóll (ideal - 100cm) sænsk fura. Bekkur fylgir. Nánari upplýsingar í síma: 551-8619 eða 892-8619. Viltu losna við bjúg, sykurþörf og léttast líka ? Þá er Oolong- og Pu-er teið eitt það albesta. Pakki með 100 tepokum er á 4.300. Ef keyptir eru 2 pk. eða fl. er verðið 7.800. Sykur- þörfin minnkar og hverfur oftast eftir stuttan tíma og bjúgurinn fer mjög fljótt. Gott fyrir líkamlega og andlega heilsu. S: 845-5715. Nína siljao@internet.is. Veglegur kaupauki með Herba- life Er með 3 pakka með veglegum kaupauka. 1. Startpakka á 14.400, í honum er F1 næringardrykkur, prótein, vítamín og trefjatöflur. 2. Brennslupakka á 18.130, sama og í pakka 1 + brennslute, 3. Brennslu- pakka á 23.770, sama og í pakka 2 + brennslutöflur. Fáið upplýsingar um kaupaukann. Greiði burðar- gjaldið. Nína 845-5715. Geymsluhúsnæði í Borgarnesi Leigjum út geymslupláss í Borgar- nesi fyrir tjaldvagna og fellihýsi. Upplýsingar í síma 895-9812. Akranes - miðvikudagur 28. október Opinn vinnufundur Ljósmyndasafns Akraness í Svöfusal kl. 10:15. Stykkishólmur - miðvikudagur 28. október Tónfundir í sal tónlistarskólans í dag og á morgun. Á tónfundum spila nemendur fyrir foreldra, systkini og aðra góða gesti sýnishorn af því sem æft hefur verið í haust. Tónfundur Martins verður miðvikudag kl. 18 og Hafþórs kl. 19:10. Tónfundur Hólm- geirs verður á fimmtudag kl. 18:30 en Símonar Karls og Alexöndru kl. 19:30. Á tónfundi eru allir hjartan- lega velkomnir. Borgarbyggð - fimmtudagur 29. október Félagsvist í safnaðarheimilinu Félagsbæ, Borgarnesi kl. 20. Síðasta kvöldið í þriggja kvölda keppni. Góð kvöld- og lokaverðlaun. Veitingar í hléi. Allir velkomnir. Borgarbyggð - föstudagur 30. október Mr. Skallagrímsson á Sögulofti í Landnámssetrinu Borgarnesi, kl. 20. Í tilefni af 10. starfsári Landnámsset- ursins í Borgarnesi mun Benedikt Erlingsson flytja hinn óborganlega einleik sinn um Egil Skallagrímsson. Snæfellsbær - laugardagur 31. október Heimamarkaður í Sjávarsafninu, Ólafsvík. Við setjum kastljósið á mat. Stefnumót framleiðenda, stórkaup- enda (veitingastaða/stofnana eldhús ofl.) og annarra íbúa á Snæfellsnesi. Hægt verður að kaupa mat, borða mat og eiga ánægjulega stund saman. Staður: Sjávarsafnið í Ólafsvík (hugmyndir um framtíðaruppbygg- ingu þar verða kynntar). Stund: kl. 11 - 17. Matarmerki Svæðisgarðsins verður kynnt. Borgarbyggð - laugardagur 31. október Sýning á handverki kvenna í 100 ár, í tilefni 100 ára kosningaafmælis kvenna. Sýning á munum í eigu fé- laga í Sambandi borgfirskra kvenna, sem einnig setja upp sýninguna sem styrkt er af Uppbyggingasjóði Vesturlands. Sýningin er í íþrótta- húsinu á Hvanneyri og kaffiveitingar verða í Skemmunni á 500 kr. Stykkishólmur - laugardagur 31. október Úrvalsdeild kvenna í körfuknattleik. Snæfell - Keflavík kl. 15 í Íþróttamið- stöðinni í Stykkishólmi. Borgarbyggð - laugardagur 31. október Mr. Skallagrímsson á Sögulofti í Landnámssetrinu Borgarnesi, kl. 20. Í tilefni af 10. starfsári Landnámsset- ursins í Borgarnesi mun Benedikt Erlingsson flytja hinn óborganlega einleik sinn um Egil Skallagrímsson. Borgarbyggð - sunnudagur 1. nóvember Messa í Borgarneskirkju kl. 11. Allra heilagra messa. Í guðsþjónustunni er minnst látinna. Organisti: Stein- unn Árnadóttir. Prestur: Þorbjörn Hlynur Árnason. Léttur hádegis- verður í Safnaðarheimilinu að athöfn lokinni. Akranes - sunnudagur 1. nóvember Sunnudagaskóli kl. 11. - Kirkju- dagurinn: Hátíðarguðsþjónusta kl. 14. Látinna minnst. Lesin upp nöfn þeirra sem jarðsungnir hafa verið frá Akraneskirkju frá síðasta kirkjudegi (2. nóv. 2014). Kaffi á vegum kirkju- nefndar kvenna í safnaðarheimilinu að athöfn lokinni. Fjáröflunardagur fyrir blómasjóð. Tekið við minningar- gjöfum um látna ástvini. Sr. Þráinn Haraldsson þjónar. Borgarbyggð - sunnudagur 1. nóvember Sýning á handverki kvenna í 100 ár, í tilefni 100 ára kosningaafmælis kvenna. Sýning á munum í eigu fé- laga í Sambandi borgfirskra kvenna, sem einnig setja upp sýninguna sem styrkt er af Uppbyggingasjóði Vesturlands. Sýningin er í íþrótta- húsinu á Hvanneyri og kaffiveitingar verða í Skemmunni á 500 kr. Stykkishólmur - sunnudagur 1. nóvember Félagsvist í Setrinu kl. 15:30. Borgarbyggð - sunnudagur 1. nóvember Mr. Skallagrímsson á Sögulofti í Landnámssetrinu Borgarnesi, kl. 16. Í tilefni af 10. starfsári Landnámsset- ursins í Borgarnesi mun Benedikt Erlingsson flytja hinn óborganlega einleik sinn um Egil Skallagrímsson. Borgarbyggð - sunnudagur 1. nóvember Tónlistarfélag Borgarfjarðar - söng- tónleikar í Borgarneskirkju kl. 16. Þórunn Elín Pétursdóttir og Kristján Karl Bragason flytja þýsk og íslensk sönglög, m.a. lög Atla Heimis Sveins- sonar við ljóð Jónasar Hallgríms- sonar. Akranes - sunnudagur 1. nóvember Sálmar við athafnir lífsins kl. 20 í Akraneskirkju. Kór Akraneskirkju undir stjórn Sveins Arnars organista flytur nokkra þekkta sálma og aðra nýja. Notaleg kvöldstund þar sem áheyrendum gefst tækifæri á að syngja með. Sr. Þráinn Haraldsson leiðir dagskrána. Sálmakvöldið er hluti af dagskrá Vökudaga. Akranes - þriðjudagur 3. nóvember Duo Ultima í Tónbergi kl. 20. Guido Bäumer saxófónn og Aladár Rácz píanó flytja klassíska tónlist frá ýmsum tímum. Miðaverð kr. 2000 en 1000 fyrir skólanemendur. Á döfinni Markaðstorg Vesturlands ÝMISLEGT TIL SÖLU BÍLAR / VAGNAR / KERRUR LEIGUMARKAÐUR Nýfæddir Vestlendingar 6. október. Stúlka. Þyngd 3.720 gr. Lengd 50 sm. Foreldrar: Heiðdís Rós Svavarsdóttir og Sigurður Gunnarsson, Hvanneyri. Ljósmóðir: Eygló Ragnarsdóttir. 20. október. Stúlka. Þyngd 3.315 gr. Lengd 51 sm. Foreldrar: Friðrika Ýr Einarsdóttir og Halldór Ragnar Guðjónsson, Akranesi. Ljósmóðir: Lára Dóra Oddsdóttir / Arna Ingimundardóttir. 24. október. Stúlka. Þyngd 2.980 gr. Lengd 50 sm. Móðir: Aldís Hlíf Guðmundsdóttir, Búðardal. Ljósmóðir: Helga R. Höskuldsdóttir / Arna Ingimundardóttir. 26. október. Drengur. Þyngd 3.550 gr. Lengd 55 sm. Foreldrar: Sandra Y. Castillo Calle og Sigurjón Norberg Kjærnested, Hafnarfirði. Ljósmóðir: Valgerður Ólafsdóttir. ATVINNA Í BOÐI ATVINNA ÓSKAST Mikið líf hefur færst í bílasölu eftir því sem liðið hefur á árið. Bræðurnir á bílasölunni Bílás á Akranesi hafa umboð fyrir nokkur bílaumboð á höfuðborgarsvæðinu auk þess að selja notaða bíla. Síð- astliðinn föstudag fengu þeir einn bílfarm af Renault Captur bílum frá BL, fjóra nýja bíla sem nú eru komnir í hendur nýrra eigenda. Þeir láta vel af sölunni á þessu ári. „Bílasalan datt niður í maí, sumarið var svo betra en í fyrra en haustið hefur hins vegar ver- ið mjög gott hjá okkur. Nú hafa aðstæður á markaði breyst þann- ig að kaupendur þurfa jafnvel að bíða eftir nýjum bílum. Umboð- in eru orðin varkárari í innkaup- um, vilja síður liggja með lager og hafa greinilega ekki reiknað með þessari góðu sölu í haust,“ segja þeir. Bílás hefur á þessu ári selt sjö bíla sem ganga fyrir öðru en hefð- bundnu eldsneyti, bæði rafbíla og blandaða metan/bensínbíla. Vist- vænir bílar bera lægri vörugjöld og eru því hagstæðari í innkaup- um. Samhliða fjölgun rafbíla segja þeir Bílásbræður að fjölga þurfi hleðslustöðvum í flestum ef ekki öllum sveitarfélögum. Að lokum segja þeir að nú vanti á söluskrá margar gerðir af nýleg- um bílum af ákveðnum tegundum, ekki síst í ódýrari verðflokkum og lítið ekna bíla. „Það er útlit fyrir fjöruga bílasölu næstu vikurnar og því eru prýðileg sölutækifæri fyrir þá sem þurfa að selja,“ segja þeir. mm Fjörug bílasala Magnús og Ólafur Óskarssynir ásamt Jóhanni Berg sem ók með með bílfarm af Renault Captur á Skagann á föstudaginn.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.