Skessuhorn


Skessuhorn - 28.09.2016, Blaðsíða 6

Skessuhorn - 28.09.2016, Blaðsíða 6
MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 20166 Villtust og fundu ekki bíl sinn ÖNDVERÐARNES: Tvær er- lendar stúlkur höfðu samband við Lögregluna á Vesturland símleiðis í vikunni og sögðu farir sínar ekki al- veg rennisléttar. Þær hefðu ekið út á Snæfellsnes og lagt af stað gang- andi frá bílnum í björtu og góðu veðri en síðan hefðu þær villst þeg- ar farið var að skyggja og það væri komið óveður og þær vissu ekki hvar þær væru staddar. Þegar búið var að spyrja stúlkurnar töluvert út í staðhætti nefndu þær tvo vita sem þær hefðu séð áður en myrkrið skall á og það fór að hvessa. Stað- kunnugir lögreglumenn áttuðu sig á því að stúlkurnar hefðu ekið út á Öndverðarnes, sem er vestasti tangi Snæfellsness. Fór lögreglan því þangað og kveikti á bláum ljósum og það nægði til þess að stúlkurn- ar áttuðu sig og gengu á ljósin frá lögreglubílnum. Voru þær komnar nokkra kílómetra frá bílnum sem þær höfðu lagt upp frá. -mm Utankjörfundar atkvæðagreiðsla er hafin VESTURLAND: Kosið verður til Alþingis laugardaginn 29. októ- ber næstkomandi. Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar er hafin hjá sýslu- mönnum landsins á almennum af- greiðslutímum. Hér á Vesturlandi er hægt að kjósa á fimm stöðum; á Akranesi, í Borgarnesi, Búðardal og Stykkishólmi alla virka daga, en auk þess á afgreiðslutímum í Ólafs- vík á þriðjudögum og fimmtudög- um. Kosningarétt hafa íslenskir ríkisborgarar sem náð hafa 18 ára aldri þegar kosning fer fram og eiga lögheimili hér á landi. Enn liggur ekki fyrir hversu mörg fram- boð verða í boði, en áætlað er að flokkarnir verði um það bil tíu sem bjóða fram lista í öllum kjördæm- um. -mm Bílaleigan var treg til að útvega fleiri bíla VESTURLAND: Alls urðu átta umferðaróhöpp í umdæmi Lög- reglunnar á Vesturlandi í liðinni viku. Erlendur ferðamaður missti bílaleigubíl sinn út af í lausamöl við Fróðastaði í Hvítársíðu í Borgar- firði. Bíllinn valt í vegkantinum og hafnaði á hvolfi. Fernt var í bíln- um og voru allir í öryggisbeltum og sluppu án teljandi meiðsla. Bílaleig- an var treg til að útvega ferðafólkinu annan bíl, því að sögn starfsmanna hennar, var þetta annar bíllinn sem fólkið hafði tjónað á ferð sinni um landið. Erlendir ferðamenn misstu jeppling sinn út af Hálsasveitarvegi í Borgarfirði í lausamöl á malarvegi og fór bíllinn nokkrar veltur. Fólkið var í öryggisbeltum og sakaði ekki en bíllinn var óökufær. Þá valt bíll í lausamöl á Laxárdal í Dölum (sjá aðra frétt). Erlendir ferðamenn áttu hlut að máli í fjórum af þeim átta umferðaróhöppum sem urðu í vik- unni. Tveir ökumenn voru teknir fyrir meinta ölvun við akstur í um- dæminu í vikunni. Þá tóku hraða- myndavélar myndir af 668 öku- mönnum víðs vegar um landið í sl. viku. Þar af voru teknar myndir af 235 ökumönnum vegna hraðaksturs við Fiskilæk sunnan Hafnarfjalls. Af þessum 235 bílum voru 183 skráð- ir bílaleigubílar og því væntanlega erlendir ökumenn á þeim flestum. -mm Peningur í viðhald Heiðarskóla HVALFJ.SV: Á fundi sveitar- stjórnar Hvalfjarðarsveitar þriðju- daginn 13. september var samþykkt tillaga byggingafulltrúa og um- sjónarmanns fasteigna um færslu fjármuna vegna viðhaldsáætlunar 2016. Samantekið er um að ræða færslu á 2,2 milljónum króna yfir á Heiðarskóla, 660 þúsund krón- um yfir á Heiðarborg og 400 þús- und krónum á Innrimel 3, en þar er stjórnsýsluhús Hvalfjarðarsveitar til húsa. Að sögn Marteins Njáls- sonar, umsjónarmanns fasteigna, er tilfærsla peninga á viðhaldsáætl- un tilkomin vegna ófyrirséðra upp- ákoma við almennt viðhald á fast- eignum. Því hafi verið ákveðið að fresta viðhaldi eða hluta þess á nokkrum fasteignum og nota pen- ingana til viðhalds á þessum þrem- ur ofangreindu stofnunum sveit- arfélagsins. „Við gerum okkur far um að fylgja fjárhagsáætlun og fór- um því fram á að fjármunirnir yrðu færðir á milli liða svo ekki yrði far- ið fram úr áætlun,“ segir Marteinn í samtali við Skessuhorn. -kgk Fannst látinn í Örlygshöfn VESTFIRÐIR: Viðamikil leit fór fram um miðja síðustu viku að manni sem saknað var frá Pat- reksfirði. Að leitinni komu björg- unarsveitir af sunnan, norðan- og vestanverðu landinu. Leit- in bar árangur um hádegisbil á miðvikudag þegar lík manns- ins fannst í fjörunni við Örlygs- höfn. Rannsókn á tildrögum and- látsins er í höndum Lögreglunn- ar á Vestfjörðum. Hinn látni hét Guðmundur L Sverrisson. „Lög- reglan á Vestfjörðum þakkar þeim fjölmörgu björgunarsveit- armönnum sem komu að leitinni með einum eða öðrum hætti. Þá ber að þakka atvinnurekendum þessara sjálfboðaliða,“ segir í til- kynningu frá lögreglu. -mm Riðuveiki hefur verið staðfest á búi á Skagafirði. Í tilkynningu frá Mat- vælastofnun segir að þetta sé fjórða tilfelli hefðbundinnar riðu sem greinist á Norðurlandi vestra síðan í febrúar 2015. Þá hafði ekki greinst riða á landinu síðan árið 2010. Mat- vælastofnun vinnur nú að öflun upp- lýsinga og undirbúningi aðgerða. Í síðustu viku fékk bóndinn í Brautarholti í Skagafirði grun um riðuveiki í kind og hafði samband við héraðsdýralækni. Kindinni var lógað og sýni sent til Tilraunastöðvar Há- skóla Íslands á Keldum, sem staðfesti á miðvikudag í þessari viku að um hefðbundna riðuveiki væri að ræða. Búið er í Skagahólfi en þar hefur riðuveiki komið upp á ellefu búum á undanförnum 20 árum og þar af á fjórum búum í nágrenni Varmahlíð- ar, þannig að segja má að um þekkt riðusvæði sé að ræða. Á þessu búi var síðast skorið niður vegna riðu árið 1987. Á bænum er nú um 290 full- orðið fé. Fram til ársins 2010 greindist riða á nokkrum bæjum á landinu á hverju ári en engin tilfelli hefðbundinnar riðu greindust á árunum 2011, 2012 og 2013. Riðuveikin er því á undan- haldi en ekki má sofna á verðinum. Á undanförnum árum hafa sýni verið tekin við slátrun úr u.þ.b. þrjú þús- und kindum á ári. Jafnframt hafa bændur verið hvattir til að senda hausa til Keldna af fé sem drepst eða er lógað heima vegna vanþrifa, slysa eða sjúkdóma, eða hafa samband við dýralækni um að taka sýni úr slíku fé. Aukin áhersla er á að fá slík sýni þar sem það eykur líkur á að finna rið- una. Héraðsdýralæknir vinnur nú að öflun faraldsfræðilegra upplýsinga og úttektar á búinu til að meta um- fang aðgerða við förgun fjár, þrif og sótthreinsun. Því næst fer málið í hefðbundið ferli hvað varðar gerð samnings um niðurskurð. mm Riða greinist á bæ í Skagafirði Tveir slösuðust þegar bíll valt á Laxárdal í Dölum um tíuleytið að morgni síðasta föstudags. Slys- ið varð á vegakafla þar sem verið er að leggja nýja klæðningu. Yfir- borð vegarins því mjög laust í sér. Ökumaður missti stjórn á bifreið- inni með þeim afleiðingum að hún fór út af og valt tvær veltur. Allt tiltækt björgunarlið var kallað út; lögregla, tveir sjúkrabílar og tækja- bíll Slökkviliðs Dalasýslu, en beita þurfti klippum til að ná ökumanni og farþega úr bílnum. Að sögn Lögreglunnar á Ves- turlandi var fólkinu komið undir læknishendur. Bæði ökumaður og farþegi voru erlendir. Eins og áður segir varð slysið á kafla þar sem verið er að leggja nýja klæðningu. Lögreglan skoðar hvernig staðið var að merkingum á þessum vegka- fla, að sögn LVL. kgk/Ljósm. sm. Tveir slösuðust þegar bíll valt á Laxárdal

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.