Skessuhorn


Skessuhorn - 28.09.2016, Qupperneq 8

Skessuhorn - 28.09.2016, Qupperneq 8
MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 20168 Sjómenn kjósa um verkfallsboðun LANDIÐ: Atkvæðagreiðsla er hafin meðal sjómanna um ótíma- bundið verkfall þeirra sem starfa á fiskiskipum og fá greitt sam- kvæmt kjarasamningi Sjómanna- sambands Íslands og Samtaka fyr- irtækja í sjávarútvegi (SFS). Kosn- ingin fer samtímis fram meðal allra aðildarfélaga Sjómannasam- bands Íslands. Verði verkfall sam- þykkt mun vinnustöðvun hefj- ast kl. 23:00 fimmtudaginn 10. nóvember hafi ekki náðst kjara- samningar milli aðila fyrir þann tíma. Atkvæðagreiðslan er rafræn og fá atkvæðisbærir félagsmenn sent bréf um framvindu samn- ingaviðræðna við SFS auk leyni- orðs sem nota má við atkvæða- greiðsluna. -mm/ Ljósm. þa. Finna staðsetn- ingu fyrir hleðslustöð STYKKISH/DALIR: Orkusal- an hefur samþykkt að setja upp hraðhleðslustöð í Stykkishólmi og er nú verið að ræða um stað- setningu stöðvarinnar. Bæjarráð Stykkishólmsbæjar mælir með því að stöðin verði staðsett við Íþróttamiðstöðina og hefur falið byggingafulltrúa að vera í sam- bandi við Orkusöluna um nánari staðsetningu. Bæjarstjórn hefur samþykkt þetta. Þá hefur Dala- byggð bæst í hóp þeirra sveitarfé- laga sem vilja láta setja upp hrað- hleðslustöð. Sveitarstjórn Dala- byggðar hafði áður samþykkt að Dalabyggð óskaði eftir samvinnu við orkusölufyrirtæki um upp- setningu hraðhleðslustöðvar í Búðardal og hefur nú verið lagt til að sveitarstjóri sæki um styrk til Orkusjóðs til að setja upp slíka stöð. -grþ Rafiðnnemar fá spjaldtölvur að gjöf LANDIÐ: Allir nemendur í raf- iðngreinum á landinu, samtals um 800 manns, fá gefins spjald- tölvur í haust frá Samtökum raf- verktaka (SART) og Rafiðnað- arsambandi Íslands (RSÍ) fyr- ir hönd allra atvinnurekenda og launþega í rafiðnaði. Tilgangur gjafarinnar er að tryggja að nem- arnir geti nýtt sér það mikla úr- val af kennsluefni sem er þegar í boði á rafrænu formi og stuðla að betri námsárangri og fjölg- un nemenda í þessum greinum, en mikil vöntun er á rafiðnaðar- mönnum á Íslandi. Búið er að af- henda fyrstu tölvurnar en nem- endur í Fjölbrautaskóla Vestur- lands fá glaðning sinn afhent- an 30. september næstkomandi. -mm Óljóst um sjón eftir vinnuslys á sjó AKRANES: Slys varð í Höfr- ungi III AK-250, einum af frystitogurum HB Granda, miðvikudaginn 30. ágúst síð- astliðinn. Þetta staðfestir J. Snæfríður Einarsdóttir, for- stöðumaður öryggismála hjá HB granda, í samtali við Skessuhorn. Slysið varð með þeim hætti að maður sem var að störfum við þrif í togar- anum komst í snertingu við kvoðuhreinsiefni með þeim af- leiðingum að sjón hans skadd- aðist. „Sjón er í lagi á hægra auga en óljóst um sjón á vinstra auga,“ segir J. Snæfríður. Slys- ið átti sér stað þegar skipið var á landleið og var siglt með hinn slasaða í land þar sem honum var komið undir læknishendur. Ekki var kallað eftir sjúkraflugi með þyrlu Landhelgisgæslunn- ar. „Viðbrögð við þessu slysi sem og öðrum sem gerast á sjó eru alltaf í samráði við lækni í landi sem segir til um aðgerð- ir. Hinn slasaði var fluttur með sjúkrabíl á bráðamóttöku þeg- ar skipið kom að landi,“ segir J. Snæfríður. „Slysið hefur verið tilkynnt lögreglu, Sjúkratrygg- ingum Íslands og Rannsókn- arnefnd sjóslysa sem sér um rannsókn þess. Slysið er auk þess í rannsókn innan fyrirtæk- isins.“ -kgk Aflatölur fyrir Vesturland 17. - 23. september Tölur (í kílóum) frá Fiskistofu: Akranes 1 bátur. Heildarlöndun: 5.354 kg. Mestur afli: Ebbi AK: 5.354 kg í einni löndun. Arnarstapi 1 bátur. Heildarlöndun: 4.207 kg. Mestur afli: Bárður SH: 4.207 kg í tveimur löndunum. Grundarfjörður 5 bátar. Heildarlöndun: 127.946 kg. Mestur afli: Hringur SH: 53.954 kg í einni löndun. Ólafsvík 12 bátar. Heildarlöndun: 87.471 kg. Mestur afli: Ólafur Bjarnason SH: 19.043 kg í fjórum lönd- unum. Rif 7 bátar. Heildarlöndun: 109.908 kg. Mestur afli: Hamar SH: 41.105 kg í einni löndun. Stykkishólmur 3 bátar. Heildarlöndun: 54.173 kg. Mestur afli: Hannes Andr- ésson SH: 37.585 kg í fimm löndunum. Topp fimm landanir á tímabilinu: 1. Hringur SH - GRU: 53.954 kg. 20. september. 2. Grundfirðingur SH - GRU: 44.133 kg. 18. september. 3. Hamar SH - RIF: 41.105 kg. 20. september. 4. Helgi SH - GRU: 27.133 kg. 19. september. 5. Guðmundur Jensson - ÓLA: 10.532 kg. 21. septem- ber. Einar Þór Lárusson hlýtur Nýsköp- unarverðlaun Íslenska sjávarklasans sem afhent verða við opnun Sjáv- arútvegssýningarinnar í dag. Einar hefur verið ötull liðsmaður og for- ystumaður um meiri og betri nýt- ingu íslenskra auðlinda. Í dag starfar hann hjá Akraborg á Akranesi, Ísam, ORA og Lýsi. Einar á langa og merka sögu í nýsköpun tengdri íslenskum mat- vælaiðnaði og sjávarútvegi. Eftir hefðbundna skólagöngu hóf hann störf hjá niðursuðuverksmiðjunni Ora og hóf síðan nám í niðursuðu- fræði við Norges Hermetikkfag- skole í Stavangri í Noregi. Þaðan lá leiðin til Vardö í Norður-Noregi til náms í fisktækni við Statens fag- skola for fiskeindustri. Einar starf- aði sem niðursuðufræðingur í Nor- egi að námi loknu. Eftir sex ára veru í Noregi sneri hann aftur til Íslands og tók við verksmiðjustjórastöðu hjá nýstofnaðri niðursuðuverksmiðju í Grindavík. Einar rak lagmetisverk- smiðju fyrir Fiskanes og síðar Þor- björn í tíu ár. Á þessum árum voru helstu framleiðsluvörurnar niður- soðin rækja, lifur, grásleppuhrogna- kavíar og majónessósur. Frá síðustu aldamótum hefur Ein- ar tekið þátt í allmörgum verkefn- um fyrir saltfiskiðnaðinn á Íslandi og unnið að verkefnum. Þá hefur hann einnig komið að mótum Fisk- tækniskólans og Codlands í Grinda- vík. Nú síðastliðin þrjú ár hefur Ein- ar komið að stóru verkefni á vegum Haustaks á Reykjanesi. Þetta verk- efni snýst um slógnýtingu og endur- nýtingu á fiskisalti. Einar hefur lið- sinnt fjölmörgum frumkvöðlum og fyrirtækjum við vöruþrón á Íslandi og erlendis. Innan Íslenska sjávar- klasans eru mörg fyrirtæki og mat- arfrumkvöðlar sem hafa notið að- stoðar Einars við vöruþróun. mm Hlýtur nýsköpunarverðlaun sjávarklasans Einar Þór Lárusson að störfum. Sveitarstjórn Dalabyggðar sam- þykkti á síðasta fundi sínum að undirbúa sölu eigna sveitarfélags- ins að Laugum í Sælingsdal, eins og gert er ráð fyrir í fjárhagsáætl- un Dalabyggðar 2017-2029. Skipu- lagsstofnun hefur heimilað að sam- þykkt deiliskipulag fyrir Laugar verði auglýst og því hægt að und- irbúa sölu eigna. Eignir sveitar- félagsins að Laugum eru helming- ur í jörðinni Laugum, lóð skólans (u.þ.b. 13,2 ha), hitaveita og jarð- hitaréttindi, vatnsveita, fráveita, Dalagisting 60% hlutur, skólahús- næði og heimavist, fjögur íbúðar- hús, íþróttahús og sundlaug, tjald- svæði með þjónustuhúsum og Guð- rúnarlaug. Sveitarstjóra og byggingafull- trúa hefur verið falið að ganga frá lóðarleigusamningum, í samræmi við deiliskipulag, og langtímaleigu- samningi fyrir Byggðasafn Dala- manna. Sveitarstjóra var enn frem- ur falið að semja við fasteignasölu um að auglýsa mannvirki Dala- byggðar að Laugum til sölu sem og hlutabréf sveitarfélagsins í Dalag- istingu. Jarðeignir, Guðrúnarlaug, jarðhitaréttindi og veitur verða ekki seldar. kgk/ Ljósm. úr safni. Dalabyggð hyggst selja mannvirkin að Laugum í Sælingsdal Byggðarráð Borgarbyggðar hef- ur falið Umhverfis- og fram- kvæmdasviði sveitarfélagsins að út- búa kostnaðarmat á breytingu sal- ar í fjölbýlishúsinu við Borgarbraut 65a í íbúðir fyrir aldraða. Þetta kemur fram í fundargerð byggð- arráðs. Um er að ræða tvær eða þrjár íbúðir á hæðinni, samkvæmt fyrirliggjandi teikningu Nýhönn- unar ehf. Að sögn Björns Bjarka Þorsteinssonar forseta sveitar- stjórnar og varaformanns byggð- arráðs er gríðarleg vöntun á leigu- íbúðum í sveitarfélaginu, bæði fyr- ir 60 ára og eldri en einnig á hin- um almenna leigumarkaði. Hann segir þó enga ákvörðun hafa verið tekna um hvort íbúðum fyrir aldr- aða verði fjölgað. „Það hefur ekki verið tekin ákvörðun um að sveitarfélagið ráð- ist í þessa framkvæmd. Salurinn sem um ræðir hefur verið á sölu- skrá um allnokkurn tíma en lít- ið verið spurst fyrir. Í ljósi þeirrar stöðu þá ákvað byggðarráð að fá fram kostnaðarmat til að hreyfa við málum,“ segir Björn Bjarki. Hann segir jafnframt að ekki hafi verið rætt um aðra staðsetningu. „Þessi möguleiki er fyrir hendi, okkar fyrsti kostur er að selja salinn og þá með þeim skilmálum að þar verði útbúnar íbúðir. En ef ekkert hreyf- ist í þeim málum þá munum við skoða þann möguleika vel að sveit- arfélagið sjái um framkvæmdina og síðan verði skoðað með hvort sveitarfélagið muni eiga íbúðirn- ar eða að þær verði settar á sölu. Velferðarnefnd hefur ályktað um að nefndin telji að sveitarfélagið þurfi að fjölga íbúðum í eigu þess á þessum stað í Borgarnesi þann- ig að við sjáum hvað setur.“ Björn Bjarki segist vona að niðurstaða komist í málið sem fyrst. „Vinna við fjárhagsáætlun ársins 2017 er komin á fullt skrið og við þurfum að taka ákvörðun um þetta verkefni í tengslum við þá vinnu.“ grþ Hjúkrunarheimilið Brákarhlíð er til húsa við Borgarbraut 65 en umræddur salur er í húsinu við Borgarbraut 65a, þar sem þjónustuíbúðir eru og félagsstarf eldri borgara og öryrkja fer fram. Skoða hvort fjölga eigi íbúðum fyrir eldri borgara

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.