Skessuhorn


Skessuhorn - 28.09.2016, Side 10

Skessuhorn - 28.09.2016, Side 10
MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 201610 Kvartað hefur verið yfir brotum á starfsleyfi svínaþauleldisbúsins á Melum í Hvalfjarðarsveit. Á fundi sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar 13. september sl. var kynnt mál er varðar brot á starfsleyfi búsins. Á fundinum var fjallað um bréf til Heilbrigðiseft- irlits Vesturlands þar sem formlega er kvartað yfir starfsleyfisbrotunu. Þar segir að mykju hafi verið úðað á tún 23. ágúst sl. en óheimilt er að dreifa mykju í ágúst skv. starfsleyfinu. Einn- ig er nefnt að niðurfelling áburðar í svörð skuli hefjast eigi síðar en 1. maí 2013 samkvæmt starfsleyfi en ekki hafi verið farið eftir því. „Svo sem kunnugt er hefur salmonella ítrekað fundist á búinu (skv. upplýsingum frá MAST síðast Salmonella Kedougou nú í vor) og geta fuglar borið sýk- ingar á milli jarða,“ segir jafnframt í áðurnefndu bréfi. Ennfremur er bent á að fuglar sæki í mykjuna. Þá er ítrekuð ábending til Heilbrigðiseftir- lits Vesturlands um að grein 2.8 verði fylgt eftir en samkvæmt henni og úr- skurði umhverfisráðherra frá 7. mars 2012 skuli safnþrær vera yfirbyggðar. „Það er með öllu ólíðandi að þessu ákvæði skuli ekki hafa verið fylgt eft- ir og er enn óskað eftir skýringum á því hvers vegna því hefur ekki verið fylgt eftir,“ segir að endingu í bréf- inu sem skrifað er fyrir hönd land- eigenda Melaleitis. Sveitarstjórn Hvalfjarðasveitar tek- ur undir þessar athugasemdir bréfrit- ara og hvetur stjórn Heilbrigðiseftir- lits Vesturlands til að taka umkvart- anir til ítarlegrar skoðunar, að því er segir í fundargerð. grþ Brot á starfsleyfi þauleldisbús á Melum Kvartað hefur verið yfir brotum á starfsleyfi þauleldisbúsins á Melum en þar er svínabú. „Árangur í íþróttum snýst ekki að- eins um líkamlega getu. Hann snýst líka um að leikmenn þurfa að hafa gott hugarfar og vera góðir liðs- menn. Með markvissri þjálfun kar- aktera í börnum og ungmennum þá styrkjum við þau fyrir lífið, þátttöku í samfélaginu og aukum líka mögu- leika þeirra inni á íþróttavellinum,“ segir Viðar Halldórsson lektor í fé- lagsfræði við Háskóla Íslands. Hann hefur um nokkurra ára skeið þróað leiðarvísi fyrir þjálfara til að hlúa að og efla andlega og félagslega þætti hjá börnum og ungmennum. Hægt að styrkja leiðtogafærni barna Viðar segir mikla áherslu hafa verið lagða í þjálfun á líkamlegri færni og tækni og jafnvel sé búið að festa það í námskrám íþróttafélaga hvað eigi að læra og á hvaða ári. Þjálfun í hugar- fari og félagsfærni sé hins vegar mjög tilviljanakennd. „Það er vel hægt að þjálfa og styrkja leiðtogafærni eins og stökkkraft. Ef við gerum það með markvissum hætti þá náum við meiri árangri. Með þessu er íþróttahreyf- ingin bæði að sinna uppeldisþáttum starfsins og afreksþáttum starfsins,“ segir Viðar. Ráðstefnan Sýnum karakter Viðar Halldórsson er ásamt Hafrúnu Kristjánsdóttur, íþróttasálfræðingi og lektor við Háskólann í Reykjavík, höf- undur að verkefninu „Sýnum karakt- er“. Ráðstefna með sama heiti verð- ur haldin í Háskólanum í Reykjavík laugardaginn 1. október næstkom- andi. Ráðstefnan hefst klukkan 10:00 og stendur til klukkan 12:30. Þar mun íþróttafólk og þjálfarar halda erindi um ýmsar hliðar þjálfunar og ræða málin í pallborði. Ráðstefnu- gestir geta tekið þátt í umræðunum. Ungmennafélag Íslands (UMFÍ) og Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) vinna saman að verkefninu Sýn- um karakter. mm/umfí Sterkari karakter nær lengra innan sem utan vallar Viðar Halldórsson. Með markvissri þjálfun er hægt að styrkja einstakling- ana fyrir lífið. Mikil grútarlykt er á Rifi þessa dagana vegna makríls sem drapst í höfninni fyrr í þessum mánuði. Er fjaran öll þakin grút og lyktin eft- ir því. Kafað var í höfninni á dög- unum til að athuga hvernig ástand- ið væri á botninum. Töluvert magn af dauðum makríl liggur þar og ekki von á að ástandið batni mik- ið í bráð. Á annarri af meðfylgjandi myndum má sjá hvernig ástand- ið er þar sem bátar eru teknir upp. Er rennan þakin í grút og dauðum makríl. þa Grútar- mengun í Rifshöfn Samtökin Birta munu halda fund í Safnaðarheimilinu Vinaminni á Akranesi mánudaginn 10. október næstkomandi klukkan 20. Birta eru landssamtök foreldra og/eða for- ráðamanna sem misst hafa börn eða ungmenni skyndilega. Samtök- in voru stofnuð 7. desember 2012. Tilgangur og markmið samtakanna er að standa fyrir fræðslu og ýms- um viðburðum á landsvísu, til sjálfs- styrkingar fyrir syrgjandi foreldra og fjölskyldur þeirra og að standa fyrir árlegum hvíldardögum fyrir foreldra og forráðamenn með upp- byggjandi fræðslu og endurnærandi hvíld að leiðarljósi. Hafa samtök- in boðið félagsfólki að gista á hót- eli eða gistihúsi eina helgi sem lið í uppbyggingu eftir erfið áföll, hvort sem langt eða stutt er liðið frá áfall- inu. Nokkrir hafa þegið þetta boð nú þegar og líst ánægju sinni en dvöl- in er þeim sem njóta að kostnaðar- lausu. Þá hafa samtökin einnig stað- ið fyrir opnum húsum, þar sem ein- hver sérfróður á hinum ýmsu svið- um sálgæslu og félagsmála kemur og flytur stutt erindi. Félagar sitja svo yfir kaffibolla og ræða saman og leit- ast við að veita hvert öðru stuðning. Þá hafa nokkrir einstaklingar komið saman nokkur kvöld í svokölluðum stuðningshópi þar sem einn leiðir hópinn til samræðna, frásagna af því hvað gerðist og umræðna til styrktar hverju öðru. Margir sem hafa misst ungt fólk Fundurinn sem haldinn verð- ur á Akranesi er kynningarfund- ur á samtökunum og fyrir honum fer sr. Sveinbjörn Bjarnason stjórn- armaður í Birtu og fyrrum sóknar- prestur á Þórshöfn. „Markmiðið er meðal annars að fá þarna einstak- linga sem gætu orðið nokkurs konar tengiliðir, annars vegar við Birtu og hins vegar við foreldra og aðstand- endur sem misst hafa ungmenni, að þeir geti leitað til einhvers á staðn- um og átt samtal. Við erum svo alltaf reiðubúin að koma inn í með okkar reynslu. Þetta er svona í stuttu máli það sem við viljum gera, að á Akra- nesi verði til nokkurs konar deild úr Birtu,“ segir Sveinbjörn í samtali við Skessuhorn. Hann segir að stað- reyndin sé sú að því miður séu allt of margir sem glímt hafi við missi ungs fólks. „Þegar við stofnuðum samtökin á sínum tíma, þá þremur vikum fyrir jól, þá datt okkur ekki í hug að margir myndu mæta. En það voru 110 manns sem mættu á þennan stofnfund. Þar á meðal ein- staklingar sem komnir voru á góð- an aldur en höfðu misst barn á sín- um yngri árum en aldrei byrjað úr- vinnslu,“ segir hann. Hann segist í nokkrum tilvikum hafa farið heim til fólks eftir missi og eins hafi fólk komið á opin hús samtakanna. Þar hafi fólk lýst ánægju sinni með sam- tökin. „Margir hafa sagt okkur að samtökin hafi bjargað þeim. Að þarna hafi það hitt fólk sem hafði misst börn en samt staðið enn uppi. Fólk sem gat meira að segja hlegið. Fólk segir það hafa bjargað lífi sínu að sjá annað fólk sem hefur verið í sömu sporum.“ Byggja samtökin upp Samtökin eru að ná fjögurra ára aldri og segir Sveinbjörn að sá tími hafi verið nýttur í að byggja samtök- in upp. „Bæði að byggja okkur sjálf upp, því allt var þetta nýtt fyrir okk- ur, og að læra svolítið á hvernig við ættum að gera þessa hluti.“ Birta eru landssamtök og vilja því leitast við að fara sem víðast um landið. „Einn stjórnarmaður okkar býr á Siglufirði og er að gera alveg stórkostlega hluti þar, bæði á Siglufirði og á Akureyri. Við höfum leitast við að setja okkur í samband við presta, því við vitum að margir leita þangað. Sumir vilja ekki leita þangað og það er alveg í lagi. En það er þá til einhver annar aðili sem er tengiliður við Birtu, ef fólk vill ræða við okkur. Við viljum gera allt sem við getum gert til að létta fólki þessa göngu og ég er meira en tilbúinn til að koma á Akranes með spjallfundi. grþ Samtökin Birta halda fund á Akranesi Eru landssamtök foreldra og forráðamanna sem misst hafa börn skyndilega Fundur Birtu verður haldinn í Vinaminni á Akranesi. Sr. Sveinbjörn Bjarnason í Birtu og fyrrum sóknarprestur á Þórshöfn. Ljósm. Jóhannes Long.

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.