Skessuhorn


Skessuhorn - 28.09.2016, Side 13

Skessuhorn - 28.09.2016, Side 13
MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 2016 13 ÖLL ALMENN VERKTAKASTARFSEMI Eiríkur J. Ingólfsson ehf. S ke ss uh or n 20 13 Frjáls félagasamtök eru aldrei sterk- ari en fólkið sem skipar þau. Þetta á reyndar við um hvaða félagsskap sem er, hvort heldur í leik eða starfi. Hreyfing Rauða krossins býr að mikl- um mannauði. Og það ber hreyfing- unni gott vitni að ætíð nær hún að laða til sín gott fólk, hvaðanæva að, sem er tilbúið til að láta gott af sér leiða í þágu mannúðarstarfs. Þetta á við um á Íslandi og um allan heim. Sjálfboðaliðar hreyfingarinnar telja um 20 milljónir einstaklinga en þar af eru rúmlega 4000 talsins sem sinna sjálfboðnu starfi á Íslandi. Það er rétt að staldra við og þakka þessu ótrúlega fólki. Um þessar mundir stendur yfir kynningarvika Rauða krossins á Ís- landi, eins og iðulega í síðustu viku septembermánaðar. Von Rauða krossins er sú að verkefni og störf sjálfboðaliðanna fái að láta ljós sitt skína, enda er það ávallt sjálfboðið starf sem hefur verið, er og verður, hryggjarsúlan í starfi félagsins. Og það er af nægu að taka. Verkefnin eru fjölbreytt, krefjandi og gefandi. Rauði krossinn gerir ekki greinar- mun á skjólstæðingum eða því fólki sem þarf á aðstoð að halda. Markmið félagsins, og hreyfingarinnar í heild, er ávallt að finna hvar hjálpar er þörf. Hvar eru berskjölduðustu einstak- lingarnir í samfélaginu? Hvernig getum við lagt því fólki lið? Þar sem þörfin er mest, stendur Rauði kross- inn næst. Sjálfboðaliðar um allt land láta gott af sér leiða. Þeir starfa með flótta- fólki, félagslega einangruðum, þeir kenna skyndihjálp, þeir svara í Hjálp- arsímann og hlusta á fólk sem á við erfiðleika að stríða og gefa góð ráð um hvert eigi að leita að bata. Sjálf- boðaliðar binda saman neyðarvarnar- kerfi Íslendinga, prjóna hlýjan fatnað fyrir þurfandi og hjálpa til við heima- lærdóm barna. Sjálfboðaliðar hjálpa til við að flokka föt, elda heitan mat handa heimilislausum eða syngja fyr- ir aldraða. Þetta er alls ekki tæmandi listi. En umfram allt eru verkefnin fjölbreytt og krefjandi, en einnig skemmtileg og gefandi. Það er einlæg von Rauða krossins að þú, lesandi góður, kynnir þér verk- efni Rauða krossins. Ef til vill er eitt- hvert þeirra sem hentar þér. Við bjóð- um þig velkominn til liðs við okkur, þar sem við reynum að gera heiminn að betri stað. Eitt skref í einu. Rauða kross deildir á Vesturlandi. Kynningarvika Rauða krossins stendur yfir Borgarfjarðarbrú hefur frá upphafi verið næstlengsta brú landsins, en hún er 520 metrar. Brúin var vígð 13. september 1981 og er því ný- orðin 35 ára. Ítarlega var fjallað um brúarsmíðina í Skessuhorni í síð- ustu viku. Einungis Skeiðarárbrú er lengri en brúin yfir Borgarfjörð, en hún er nú 880 metrar, var stytt um 24 metra vegna skemmda sem urðu í miklu hlaupi vegna Gríms- vatnagoss árið 1996. Skeiðarárbrú er auk þess merk fyrir þær sakir að við vígslu hennar 14. júlí árið 1974 lauk lagningu hringvegar umhverfis landið. Nú ber svo við að Skeiðar- árbrú verð- ur aflögð á næsta ári enda stend- ur þessi ríf- lega fertuga brú á þurru eftir um- brot og jök- ulhlaup síð- ustu ára. Ný brú og mun styttri er nú í smíðum yfir Morsá. Þegar Skeið- arárbrú verður aflögð verður hin 35 ára Borgarfjarðarbrú því lengsta brú landsins í fyrsta skipti frá smíði hennar. mm Borgarfjarðarbrúin verður á næsta ári lengsta brú landsins SKÓLASTEFNA BORGARBYGGÐAR KYNNING 06.10 KL 20-22 HJÁLMAKLETTI DAGSKRÁ: KYNNING Á SKÓLASTEFNU BORGARBYGGÐAR 2016-2020 Magnús Smári Snorrason formaður fræðslunefndar Borgarbyggðar FRAMTÍÐARSKÓLINN – HVAÐ BÍÐUR NEMENDA? prófessor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands SKÓLAFORELDRAR – STUÐNINGUR FORELDRA VIÐ NÁM OG SKÓLASTARF Nanna Kristín Christiansen, verkefnastjóri á skrifstofu skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar UMRÆÐUR

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.