Skessuhorn


Skessuhorn - 28.09.2016, Blaðsíða 16

Skessuhorn - 28.09.2016, Blaðsíða 16
MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 201616 Menntastefnan „skóli án aðgrein- ingar“ var innleidd í grunnskóla landsins fyrir allnokkrum árum. Stefnunni hefur verið fylgt eftir innan stjórnkerfis menntamála og hafa ýmis sérúrræði, svo sem sér- skólar af ýmsu tagi, víðast hvar verið lögð niður. Almennir grunn- skólar eru með mun breiðari hóp nemenda en áður var og einn af þeim skólum er Grundaskóli á Akranesi. Það sem felst í skóla án aðgreiningar er að veita nemend- um jöfn tækifæri til náms. Hug- myndafræðin snýst um að all- ir nemendur eigi rétt á að stunda nám við sitt hæfi og eiga tækifærin að vera jöfn, óháð atgervi og að- stæðum hvers og eins. Í aðalnáms- skrá grunnskóla kemur fram að þess eigi að vera gætt að tækifærin ráðist ekki af því hvort nemandi er af íslensku bergi brotinn eða af er- lendum uppruna. Þau séu óháð því hvort um drengi eða stúlkur er að ræða, hvar nemandinn býr, hverr- ar stéttar hann er, hvaða trúar- brögð hann aðhyllist, hver kyn- hneigð hans er, hvernig heilsufari hans er háttað eða hvort hann býr við fötlun. Menntastefna í virku ferli Í Grundaskóla á Akranesi hef- ur verið starfað eftir stefnunni til margra ára. Nú hefur stefnan ver- ið útvíkkuð enn frekar í skólanum sem er nú einnig orðinn vinnu- staður án aðgreiningar. „Gamla módelið var þannig að grunnskól- arnir hérna á Akranesi voru með sameiginlega sérdeild í Brekku- bæjarskóla. Í dag er sú deild smátt og smátt að hverfa í því formi sem hún var í og er nú meira stoðdeild en sérdeild. Börnin eru komin í bekk með sínum jafnöldrum. En skóli án aðgreiningar er ekki eins- dæmi hér í Grundaskóla, þetta er menntastefna á öllu landinu. Það sem er sérstakt hér er að við út- víkkuðum þetta þannig að það á við um fullorðna líka,“ segir Sig- urður Arnar Sigurðsson skólastjóri Grundaskóla í samtali við Skessu- horn. Stjórn skólans býður nú upp á sérstakt starfseflingarverkefni í samstarfi við Vinnumálastofnun og aðrar stofnanir sem sinna fólki sem hefur skerta starfshæfni eða hefur fallið út af vinnumarkaði af ein- hverjum orsökum. „Fagmenn hjá þessum stofnunum verða í sam- starfi við skólann um nákvæmari útfærslu verkefnisins. En stefnan „skóli án aðgreiningar“ er mennta- stefna í virku ferli í Grundaskóla, jafnt fyrir börn sem og fullorðna,“ bætir hann við. Gefa fólki tækifæri Grundaskóli er stór og öflugur vinnustaður sem hefur það mark- mið að vera jákvætt hreyfiafl í sam- félaginu á Akranesi. Að sögn Sig- urðar Arnars hefur skólinn öll starfsmannamál í stefnustýrðu ferli og leggur áherslu á virka starfsþró- un. „Fjölmargar stéttir úr ólík- um stéttarfélögum starfa í skól- anum og því má segja að vinnu- staðurinn sé einskonar þverskurð- ur af samfélaginu. Grundaskóli er eftirsóttur vinnustaður og fjöldi umsókna berst um hvert auglýst starf. Síðustu ár hefur skólinn haft það að markmiði að gefa einstak- lingum, sem hafa verið um lang- an tíma án atvinnu, tækifæri til að koma til starfa. Fjölmargir hafa á þann hátt komist á ný út á vinnu- markaðinn. Í umsögn þessara að- ila er það nefnt að það hafi ver- ið mjög hvetjandi að fá atvinnu- tilboð og að vera í Grundaskóla um tíma og það hafi styrkt þá í at- vinnuleit,“ segir Sigurður. Hann segir markmiðið með nýja starfs- eflingarverkefninu vera að gefa fólki með skerta starfshæfni eða öðrum sem hafa verið frá vinnu- markaði um langan tíma, til dæmis vegna örorku, tækifæri til að koma í vinnu á fjölmennum vinnustað. „Að gefa fólki tækifæri til að kynn- ast öflugum skóla og fyrirmyndar vinnustað. Að gefa fólki tækifæri til að vera hluti af öflugri liðsheild þar sem hver og einn hefur hlut- verk byggt á styrkleikum sínum og hæfni.“ Hann segir að eitt af mark- miðum skólans sé að vera hreyfi- afl til góðs og að hvetja fólk áfram. „Það á að endurspeglast í starfs- mannahópnum okkar. Við erum að reyna að brjóta múrana með því að opna vinnustaðinn fyrir alls konar fólk. Það má einnig segja að þarna komi inn fyrirmyndir, til dæmis fyrir þau börn sem eru með einhverja fötlun. Markmiðið með skóla án aðgreiningar er að taka á móti þér sem persónu, ekki sem fötluðum einstaklingi. Með þessu læra börnin líka að umgangast alla sem mannverur, óháð fötlun, kyn- hneigð, litarhætti og svo framveg- is.“ Sjö störf í boði Starfshugmyndirnar sem unnið er með í verkefninu eru fjölbreyttar. Eitt starfið felst í því að skera dag- lega niður ávexti fyrir ávaxtastund, á meðan annað felst í því að að- stoða á bókasafni skólans. Þá er einnig boðið upp á störf sem felast í því að aðstoða í matsal og að að- stoða nemendur við að efla lestrar- hæfni sína. Að sögn Sigurðar eru alls sjö störf í boði í skólanum fyr- ir þá sem hafa skerta starfsgetu. „Þetta er tilraunaverkefni enn sem komið er, en við erum að fram- kvæma þetta og höfum ekki hug á því að hætta því. Plássin sem við höfum eru ætluð til að efla þenn- an hóp og koma hreyfingu á hann. Við hugsum þetta í fjögurra til átta vikna lotum en endurskoð- um stöðuna á fjögurra vikna fresti. Sumir verða svo áfram hjá okkur í vetur á meðan aðrir eru á leið í önnur verkefni,“ útskýrir Sigurð- ur. Hann segir mörg önnur lít- il verkefni vera í kringum starfs- eflinguna, sem leiða til hvatningar fyrir viðkomandi. „Ætlunin er að spora brautir sem efla þessa ein- staklinga að ýmsu leiti. Hver og einn hefur sérsniðna leið sem ætl- uð er til að styrkja hann.“ Laufey María Vilhelmsdótt- ir er í starfi við að skera niður ávexti ásamt Soffíu Ómarsdóttur. Boðið er upp á ávexti fyrir nem- endur bæði á yngsta stigi skólans og á miðstigi. Alls eru 155 börn í ávaxtastund og sjá þær stöllur um að skera ávextina og fara með þá inn í bekkina. „Um klukkustund síðar sækjum við dallana. Það hef- ur verið mjög mikil ánægja með þetta bæði hjá börnum og foreldr- um. Við erum samstilltar í þessu og Laufey er mjög dugleg, þannig að þetta gengur vel,“ segir Soffía. Viðveran í Grundaskóla brýtur upp daginn hjá Laufeyju, sem fer að loknum vinnudegi í Grunda- skóla upp í Fjöliðju þar sem hún vinnur fram að hádegismat. Tækifæri til eflingar Starfseflingarverkefnið í Grunda- skóla er alveg nýtt af nálinni. Stjórn skólans var búin að undirbúa jarð- veginn í eitt ár og byrjað var nú í haust að ráða starfsfólk með þess- um hætti. „Við erum þarna búin að undirbúa og finna út hvern- ig við styðjum sem best við bakið á hverjum og einum þessara ein- staklinga. Við erum ekki sérstak- lega að hugsa um þennan hóp sem vinnuafl, heldur sem viðbótarafl í okkar starfshópi. Við erum frekar að hugsa um að veita þeim tæki- færi til að efla sig á vinnumarkaði. Það getur vel verið að einhverjir verði áfram hérna en plássin verða svo nýtt áfram fyrir aðra þegar fram líða stundir,“ segir Sigurður. Hann segir verkefnið ganga mjög vel enn sem komið er. „Þetta verð- ur áframhaldandi verkefni en við erum að feta okkur áfram í þess- um málum.“ Mikilvægt að hafa hlutverk Gunnhildur Vilhjálmsdótt- ir kennaranemi er í starfsþjálfun í Grundaskóla. Hún segir starfs- eflingarverkefnið gríðarlega mik- ilvægt. Sjálf glímdi Gunnhildur við kvíða og áfallastreituröskun um árabil og var í endurhæfingu hjá Virk í eitt og hálft ár. Eftir það fór hún í vinnuprófun á leikskól- ann Vallarsel. „Ég áttaði mig á því þegar ég steig aftur inn á vinnu- markaðinn hvað það er mikilvægt að fara í fyrirtæki sem tekur vel á móti manni og horfir ekki á mann sem annars flokks. Ég kveið því virkilega að byrja aftur að vinna og átti von á því að litið yrði á mig sem annars flokks manneskju. Það var alls ekki raunin og það er gríð- arlega mikilvægt að fá þetta tæki- færi,“ segir Gunnhildur. Hún seg- ir að það mikilvægasta í lífinu sé að vera í virkni. „Það er slæmt fyr- ir manneskju að gera ekki neitt og hafa ekki fast verkefni. Verkefnin þurfa ekkert að vera krefjandi, það er bara svo mikilvægt að hafa hlut- verk í lífinu, hvert sem verkefnið er.“ grþ Skóli án aðgreiningar fyrir börn og fullorðna Grundaskóli innleiðir starfseflingarverkefni fyrir fólk með skerta starfsgetu Grundaskóli er skóli án aðgreiningar og á það við bæði um nemendur og starfsfólk.Sigurður Arnar Sigurðsson skólastjóri Grundaskóla. Laufey María Vilhelmsdóttir og Soffía Ómarsdóttir sjá um að skera ávexti fyrir nemendur. Laufey er ein þeirra sem tekur þátt í starfseflingarverkefninu í skól- anum. Í síðustu viku komu gestir í heimsókn á Skagann vegna Erasmusverkefnis sem Grundaskóli tekur þátt í um skóla án að- greiningar. Hér má sjá fulltrúa frá Grundaskóla, Brekkubæjarskóla og Þorpinu ásamt gestum frá Þýskalandi og Svíþjóð.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.