Skessuhorn - 28.09.2016, Síða 21
MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 2016 21
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
Eftirfarandi starf er laust til umsóknar:
Starf félagsráðgjafa í barnavernd
Nánari upplýsingar um ofangreind störf og
önnur laus störf er að finna á www.akranes.is
Laust starf hjá Akraneskaupstað
Jákvæðni, metnaður og víðsýniwww.akranes.is
Flísabúðin
Gæði og
glæsileik
i
endalaus
t úrval af
hágæða
flísum
Finndu okkur
á facebook
Einfaldur og
stílhreinn
Vönduð íslensk framleiðsla síðan 1959.
Stáliðjan er gamalgróið íslenskt fyrirtæki
sem framleiðir vandaða vöru fyrir heimilið
og vinnustaðinn.
Stáliðjan ehf - Smiðjuvegi 5, 200 Kópavogi - Sími 564 5885 - www.stalidjan.is
Verð 27.900 kr.
Fjölbreytt litaúrval.
Á árinu 2017 er ráðgert að verja
um 550 milljónum króna til fram-
kvæmda á Grundartangasvæðinu og
felst meginverkefnið í gatnagerð og
aðgerðum í tengslum við fyrirhug-
aða uppbyggingu Silicor. Þetta seg-
ir Gísli Gíslason hafnarstjóri Faxa-
flóahafna. „Þær framkvæmdir eru
hins vegar háðar því að Silicor ljúki
sínum undirbúningi og fjármögn-
un verkefnisins. Þá verður unnið að
endurbótum á hafnarmannvirkjum
en hafnarbakkana þarf að hækka og
leggja á þá nýtt slitlag. Loks verður
unnið að lóðagerð, en Eimskip hef-
ur þegar fengið eina lóð afhenta og
fær aðra lóð á næsta ári. Þriðja lóðin
verður síðan tilbúin árið 2018,“ segir
Gísli í samtali við Skessuhorn.
Gísli segir aðgerðirnar vegna Sili-
cor í samræmi við samninga. Að
þeim fylgi gatnagerð, aðgerðir vegna
gámasvæðis á hafnarsvæðinu, við-
legumannvirki og frágangur jarð-
vegsmana vegna efnis sem kemur upp
úr lóð Silicor. Þá segir hann hækkun
hafnarbakkanna vera nauðsynlega
aðgerð. „Meðal annars vegna þarfar
á endurnýjun yfirborðs og í leiðinni
til að mæta hækkandi sjávarstöðu,
aðstöðu fyrir rafmagn í þekju bryggj-
unnar, m.a. vegna þess að nýr hafnar-
krani Eimskipa á til framtíðar að nota
rafmagn.“ Að sögn Gísla verða flest
ofangreind verkefni í vinnslu allt til
ársins 2018, enda sé það eðli margra
hafnarverkefna að þau spanni nokk-
ur ár. „Þannig er einnig með þróun
Grundartangahafnar, að næstu ár
mun hægt og bítandi sjást ákveðin
þróun lóða og mannvirkja þannig
að höfnin þjóni sem best starfsem-
inni. Að aðstaðan geti tekið á móti
auknum umsvifum og að umhverfið
á Grundartanga batni enn frekar á
næstu árum.“ grþ
Miklar framkvæmdir
fyrirhugaðar á Grundartanga
Framkvæmdir eru fyrirhugaðar á Grundartangasvæðinu, meðal annars endur-
bætur á hafnarmannvirkjum. Hér má sjá nýja landfyllingu sem unnið er við
sunnan við höfnina á Grundartanga.
Foreldrafélagið Leikur afhenti
leikskólanum Kríubóli á Hellis-
sandi Kastalann Kára síðastlið-
inn föstudag og hefur hann ver-
ið settur upp á lóð skólans. Við
sama tækifæri var Lilja Ólafar-
dóttir kvödd en hún hefur setið í
stjórn foreldrafélagsins óslitið síð-
ustu 12 ár.
Kastalinn er höfðingleg gjöf sem
tók tíma að safna fyrir. Hann kost-
aði tæpar þrjár milljónir króna og
safnaði foreldrafélagið fyrir hon-
um með styrkjum frá fyrirtækjum,
einstaklingum og félagasamtökum
í bæjarfélaginu. Einnig var félagið
duglegt að halda svokallaða “kaffi-
húsadaga” á leikskólanum en þar
var systkinum, ömmum, öfum og
fleirum boðið í kaffi og með því.
Kastalinn hefur slegið í gegn hjá
leikskólabörnunum og eru þau
mjög ánægð með hann.
Það voru mörg fyrirtæki og ein-
staklingar sem styrktu þetta verk-
efni foreldrafélagsins og vill stjórn
félagsins fá að koma á framfæri
kæru þakklæti fyrir stuðninginn
til eftirtalinna: Apótek Ólafsvíkur
ehf, Breiðavík ehf, Brim hf, Fisk-
markaður Íslands hf, Guðmundur
Kristjánsson, Gunnhildur K. Haf-
steinsdóttir, Hafnarsjóður Snæ-
fellsbæjar, Hraðfrystihús Hellis-
sands, Ingibjörg K. Kristjánsdóttir,
Jónas Gunnarsson og Jenný Guð-
Færðu Kríubóli Kastalann Kára
mundsdóttir, KG fiskverkun ehf,
Kristinn J. Friðþjófsson, Kvenfé-
lag Ólafsvíkur, Landsbankinn hf,
Lionsklúbburinn Rán, Nónvarða
ehf, Óskar Skúlason, Snæfellsbær,
Steinunn hf, Valafell ehf, Verka-
lýðsfélag Snæfellinga. þa
Nemendur, starfsfólk og fulltrúar úr foreldrafélaginu.
Lilja Ólafardóttir hefur setið í stjórn foreldrafélagsins í tólf ár.