Skessuhorn


Skessuhorn - 28.09.2016, Síða 22

Skessuhorn - 28.09.2016, Síða 22
MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 201622 Jóhann Oddsson er bóndi á Stein- um II í Stafholtstungum. Hann er kvæntur Valgerði Björnsdóttur og saman áttu þau fjögur börn. Jóhann er fæddur á Steinum en þau hjón hafa alla sína búskapartíð búið þar, en hún er frá Deildartungu í Reyk- holtsdal. Á Steinum II er sauð- fjárbú með rúmlega 500 fjár. Auk þess hafa þau nokkuð af hestum, nokkrar hænur og tvo hunda. Eins og kunnugt er fara bændur í leitir að hausti og sækja fé af fjalli til að setja á eða slátra. Jóhann er reynd- ari en margur hver þegar kemur að leitum, búinn að fara á fjall óslitið í 56 ár. „Ég fór fyrst í leitir ferming- arárið mitt 1960. Þá fór ég í fyrstu leit en hef farið í fyrstu, aðra og þriðju leit allar götur síðan,“ segir Jóhann Oddsson, bóndi á Steinum ll í Stafholtstungum, í samtali við Skessuhorn. Reiknast okkur þannig til að Jóhann hafi farið 156 sinnum í leit sem hlýtur að vera atlaga að Íslandsmeti og jafnvel heimsmeti. Þá eru ótaldar allar eftirleitir og heimasmalamennskur. „Ég veit nú ekki hvort þetta er eitthvað met,“ segir Jóhann hæverskur. „En ég hef þó farið oftast af þeim sem leita hér um slóðir,“ bætir hann við. Alla tíð hefur Jóhann leitað sama svæðið, Holtavörðuheiðina og Snjófjöllin, og rekið fé til rétt- ar í Þverárrétt, fjárflestu rétt lands- ins. „Samkvæmt fjallskilaseðli eru um tíu þúsund ær sem fara á fjall að vori. Ef við gerum ráð fyrir því að 65% sé tvílembt, sem er ekki ofáætlað, þá eru það rúmlega 26 þúsund ær og lömb. Það skilar sér auðvitað ekki allt til réttar í fyrstu leit. En ég held að það megi slá því föstu að 20 þúsund fjár sé rekið til réttar í fyrstu leit á hverju hausti, varlega áætlað,“ segir Jóhann. En féð kemur vitaskuld ekki allt frá bæjum í Stafholtstungum. „Í fyrstu leit er riðið í Forna- hvamm á fimmtudegi og leitað á föstudegi vestan vegar Tröllakirkju, Snjófjöll og vestan Snjófjalla á móti Dalamönnum. Á laugardegi er leit- að austan vegar; Holtavörðuheiðin og Hellistungurnar á móti Þver- hlíðingum,“ segir hann. Má þess geta að Norðdælingar að hluta til eiga afrétt á Holltavörðuheiði og eru með í leitum. Mikilvægast að vera vel búinn Hefur Jóhann á sinni tíð smalað hverja einustu leið sem leitarmenn á Holtavörðuheiði fara hverju sinni. „Ég hef farið yfir allt svæðið og þekki það orðið allt saman. Það er kannski karlagrobb að geta þess en ég hef verið fjallkóngur í annarri leit síðan 1971,“ segir hann. Að- spurður segir hann aldrei hafa velt því fyrir sér að hætta að fara á fjall. „Ég hef alltaf verið heilsuhraust- ur og sprækur og þetta er verk sem þarf að vinna. Ég hef aldrei velt því fyrir mér að hætta en það hlýtur að koma að því einhvern tímann,“ seg- ir hann og brosir. Nær allt svæðið er leitað á hest- baki núorðið eftir að menn eignuð- ust stórar hestakerrur og eru hross- in þá keyrð norður á heiði. Áður var þetta allt gengið en í seinni tíð er hafður einn hestur svona til að hvíla sig á sitthvorn daginn. Ein- staka staði þarf þó að smala fót- gangandi, eins og gengur og gerist. Alltaf ganga þrír menn Tröllakirkju og Snjófjallakambinn. „Ég hef alltaf farið ríðandi upp að Fornahvammi með tvo hesta sem ég nota sitthvorn daginn og svo á eftir safninu til rétt- ar síðasta daginn. Svo eftir réttina rekum við á okkar fé heim á bæinn og erum tæplega þrjá tíma að því á hestum. Svæðið er það stórt og leit- irnar það langar að betra er að hafa tvo hesta,“ segir Jóhann. Að öðrum kosti segir smalinn reyndi að helst þurfi að huga að því að búa sig vel þegar farið er á fjall. Allra veðra sé von og oft skipist þau skjótt í lofti. „Á Holtavörðuheið- inni getur skollið á með svoleið- is svartaþoku að maður sér ekki neitt. Þá geta fyrirvaralítið komið él og veður hafa oft verið hörð í leitum, sérstaklega þegar komið er fram í þriðju leit,“ segir hann. Það var einmitt í vondu veðri í annarri leit sem átti sér stað atburður sem Jóhann gleymir seint. „Árið 1972 varð maður úti í leit í vondu veðri á heiðinni. Hann hét Hreinn Árna- son. Það var hræðilegt og gleymist aldrei,“ segir Jóhann. Hefur feitt kjöt í nesti Dagsverkið í leit á Holtavörðuheiði er langt og strangt. Að jafnaði er vaknað klukkan fimm að morgni og leitað fram á kvöld, stundum fram í myrkur. Þegar svo ber undir er mikilvægt að leitarmenn fái góðan mat. Meðan enn var hótel í Forna- hvammi segir Jóhann að leitar- menn hafi verið í fæði þar. „En eft- ir að það hætti var verið tvö haust á bænum Sveinatungu, síðan voru ýmsir sem elduðu niðri í byggð og komu með heitan mat að kvöldi. Valgerður konan mín hafði ein- mitt orð á því um daginn að hún hafi verið ráðskona í leitum í ára- tug. Þá eldaði hún hér heima og kom með matinn uppeftir til okk- ar,“ segir Jóhann. „En síðustu þrjú ár höfum við keypt fæði frá fyrir- tækjum eða matsölustöðum. Svo erum við með morgunmat og höf- um auðvitað sjálfir með nesti yfir daginn meðan við erum úti á heið- inni,“ segir Jóhann og kveðst vera gamaldags þegar kemur að nestis- vali. „Ég er nú svo gamaldags að ég vil helst hafa feitt kjöt í nesti, vel feitar kótelettur eða eitthvað slíkt,“ segir hann. Lengi hefur það fylgt göngum og leitum að menn hafa fengið sér í staupinu, stundum ótæpilega. Jó- hann segir slíkt hafa færst verulega í betra horf með árunum. „Drykkja á leitarmönnum hefur lagast mikið í seinni tíð. Þegar ég var ungling- ur þá man ég eftir mönnum sem voru bara hreint út sagt öskufull- ir, stundum allan tímann og mis- jafnlega gagnslausir,“ segir Jóhann ómyrkur í máli. „En ég hef alltaf verið laus við þetta sjálfur, sem bet- ur fer,“ bætir hann við. Til að leitist vel er að mörgu að huga en eitt segir Jóhann öðru mikilvægara þegar kemur að því að sækja fé á fjall. „Það munar mikið um að hafa góða smalahunda. Alltaf er farið með nokkra hunda á hvert svæði. Nokkrir hafa verið góð- ir og einn og einn verulega góð- ur og munar mikið um það,“ seg- ir Jóhann. En hvernig sem gengur að koma fénu heim kveðst Jóhann alltaf una sér vel á fjalli. „Mér líð- ur alltaf vel á fjalli,“ segir hann að endingu. kgk Jóhann á Steinum hefur farið í leitir óslitið síðan 1960: „Mér líður alltaf vel á fjalli“ Jóhann Oddsson, bóndi á Steinum II í Stafholtstungum, hefur farið 156 sinnum í leit síðan árið 1960. Jóhann segir mikilvægast að búa sig vel þegar farið er á fjall. „Á Holtavörðuheið- inni getur skollið á með svoleiðis svartaþoku að maður sér ekki neitt. Þá geta fyrirvaralítið komið él og veður hafa oft verið hörð í leitum, sérstaklega þegar komið er fram í þriðju leit,“ segir hann. Hér er Jóhann nýkominn af fjalli úr fyrstu leit haustið 2010. Réttarstjórinn Davíð Aðalsteinsson heilsar honum við komuna. „Samkvæmt fjallskilaseðli eru um tíu þúsund ær sem fara á fjall að vori. Ef við gerum ráð fyrir því að 65% sé tvílembt, sem er ekki ofáætlað, þá eru það rúmlega 26 þúsund ær og lömb. Það skilar sér auðvitað ekki allt til réttar í fyrstu leit. En ég held að það megi slá því föstu að 20 þúsund fjár sé rekið til réttar í fyrstu leit á hverju hausti, varlega áætlað,“ segir Jóhann. Hér er horft yfir safnið í réttargirðingunni. Safnið rekið niður Holtavörðuheiðina í fyrrahaust. Norðuráin liðast niður dalinn og Fornihvammur til hægri. Ljósmyndina tók Guðmundur Steinar, sonur Jóhanns á Steinum.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.