Skessuhorn - 28.09.2016, Síða 24
MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 201624
Í nýrri könnun Samtaka atvinnu-
lífsins meðal aðildarfyrirtækja sinna
kemur fram að síðustu kjarasamn-
ingar hafi haft mikil áhrif á rekst-
ur ríflega 80% fyrirtækjanna, óháð
því hvort þau starfa á útflutnings-
markaði eða heimamarkaði. Af fyr-
irtækjunum gripu 43% til almennr-
ar hagræðingar í rekstri og 18%
sögðu upp fólki vegna áhrifa kjara-
samninganna. Algengast var að
fækkunin næmi 1-4 starfsmönnum,
eða í 77% tilfella, 11% fækkuðu um
5-9 og 12% fyrirtækja fækkuðu um
10-40 starfsmenn.
Fyrirtækin voru flokkuð eftir því
hvort þau stunda útflutning á vörum
eða þjónustu, þ.m.t. ferðaþjónustu,
þjónusta heimamarkað í samkeppni
við innflutning eða heimamarkað
í takmarkaðri samkeppni við inn-
flutning. Spurt var um áhrif síðustu
kjarasamninga á rekstur fyrirtækj-
anna. Heildarniðurstaðan var sú að
82% sögðu kjarasamningana hafa
haft mikil áhrif, 8% lítil áhrif og
10% hvorki mikil né lítil. 86% út-
flutningsfyrirtækjanna sögðu kjara-
samningana hafa haft mikil áhrif,
80% fyrirtækja á heimamarkaði í
samkeppni við innflutning og 80%
fyrirtækja í takmarkaðri samkeppni
við innflutning.
mm
Kjarasamningarnir höfðu mikil
áhrif á rekstur fyrirtækja
Hilmar Már Arason skólastjóri
Grunnskóla Snæfellsbæjar veitti
á síðasta föstudag Friðgeiri Kára
Aðalsteinssyni nemanda í 3. bekk
GÞ viðurkenningu fyrir þátt-
töku í Sumarlestri 2016. Grunn-
skóli Snæfellsbæjar í samstarfi við
Bókasafn Snæfellsbæjar stóð fyrir
sumarlestrinum. Tilgangurinn var
að hvetja grunnskólabörn og for-
eldra þeirra til lesturs. Sumarlest-
urinn hófst 6. júní og stóð til 24.
ágúst. Var áhersla lögð á að börn-
in læsu sér til ánægju og læsu í leið-
inni að sumri til og viðhéldu þann-
ig og jafnvel bættu við lestrarkunn-
áttu sína. Það sem þurfti til að taka
þátt var að koma á bókasafnið og fá
að minnsta kosti sex bækur að láni
á tímabilinu. Þegar búið var að lesa
þurfti að fylla út smá umsögn um
hverja bók í lestrarpésanum.
þa
Fékk viðurkenningu fyrir
þátttöku í sumarlestri
Veiðisumarið er að enda þetta
árið. Það sem einkenndi það um-
fram annað var að laxinn gekk
snemma í árnar og eins árs fisk-
urinn lét víða á sér standa. En það
jákvæða er að nú er farið að spá
góðu laxveiðisumri á sumri kom-
anda, smálaxinn muni skila sér
eftir gott vaxtarár seiða. Tíðinda-
maður Skessuhorns á árbakkan-
um fer hér lauslega yfir laxveið-
ina og við skoðum veiðitölurnar
og ýmislegt fleira.
„Það var rólegt í Búðardalsá en við
fengum laxa,“ sagði Karl Óskarsson
en hann var að veiða í ánni núna í
september en áin endaði í 211 löx-
um. Þess má geta að Svisslending-
ar hafa keypt þrjár jarðir við Búðar-
dalsá og eiga 70% veiðirétt í ánni
eftir það. Í Krossá hefur verið mjög
rólegt í sumar og síðustu tölur úr
henni sýndu innan við 50 laxa.
„Það veiddust 76 laxar og 202
bleikjur í Hvolsá og Staðarhólsá í
Dölum,“ sagði Sæmundur Krist-
jánsson er við spurðum um loka-
tölur. Fiskurinn hefur verið mikið
niðri í lóninu og það er erfitt að fá
hann til að taka en núna hefur fiskur
dreift sér um árnar og ennþá hægt
að fá veiðileyfi því það er veitt fram
að mánaðamótum. „Við fengum
bleikjur en laxinn var tregur, settum
í allavega tvo en þeir sluppu báðir,“
sagði Ingimundur Bergsson sem var
að veiða í Hvolsá og Staðarhólsá í
byrjun september.
Flekkudalsá gaf í kringum 120
laxa og Krossá 31 lax. ,,Það er mik-
ið af seiðum í ánni og veiðin verður
örugglega góð næsta sumar,“ sagði
Trausti Bjarnason á Á í samtali við
Skessuhorn.
„Það var gaman í Hraunsfirði og
við fengum fína bleikjuveiði. Einn
og einn lax hefur auk þess verið að
veiðast í sumar,“ sagði Jón R. Ár-
sælsson en hann var í firðinum
fagra, Hraunsfirði, við annan mann
og veiddi vel.
„Veiðin hefur verið frábær í Laxá
í Dölum,“ sagði Haraldur Eiríksson
hjá Hreggnasa en hann var staddur
við Laxá Í Dölum. Áin hefur gefið
1.500 laxa og enn eru menn að fá
vel í soðið. „Það er frábært að Laxá
í Dölum sé öll að koma til,“ sagði
Haraldur.
,,Haukadalsá endaði í rétt yfir
þúsund laxa, 1003, sem er gott.
Veiðin var líka fín í henni í sum-
ar,“ sagði Ari Hermóður Jafetsson,
er við spurðum um Haukuna. Hún
gaf fína veiði oft í sumar. Bæði Laxá
og Haukadalsá í Dölum voru fínar.
Miðá var einnig góð og skilaði 410
löxum. „Við vorum þarna um miðj-
an júlí og fengum 8 laxa og helling
af bleikju,“ sagði veiðimaður sem
við hittum í Búðardal fyrr í sumar.
,,Miðá er alltaf skemmtileg enda
hef ég veitt þarna í fjölda ára,“ sagði
veiðimaðurinn ennfremur.
Hörðudalsá endaði í kringum 60
löxum og um 110 bleikjum. „Þetta
var allt í lagi sumar hjá okkur,“ sagði
Niels S Olgeirsson á Seljalandi, er
við spurðum um stöðuna í Hörðu-
dalsá.
Lítið er að frétta af Dunká og
Álftá á Mýrum en sami maðurinn er
með báðar árnar á leigu og lítið hef-
ur víst verið veitt í Álftá sem dæmi,
eða í einn og einn dag.
„Lokatölur úr Straumfjarðará
voru 348 laxar,“ sagði veiðimað-
ur sem veiddi í henni undir lok-
in. „Lokatölur úr Haffjarðará voru
1.305 laxar og það var í góðu lagi,“
sagði Einar Sigfússon er við spurð-
um um ána en hann var ekki eins
hress með annað. „Við fengum
nokkra regnboga undir lokin og það
verður að stoppa það rugl,“ sagði
Einar. Regnbogasilungur var víða
að koma í ár á svæðinu og skemmti
fáum veiðimönnum.
„Við vorum þarna í september og
fengum nokkra laxa,“ sagði Bjarni
Júlíusson er við spurðum um Hítará
á Mýrum sem endaði í 779 löxum,
sem er góð veiði.
,,Ég var í Langá í september og
við fengum nokkra laxa,“ sagði Jogv-
an Hansen en hann var uppi á efsta
svæðinu og neðsta svæðinu fyrr í
sumar. Langá á Mýrum hefur gefiið
1.312 laxa og veiðimenn eru eitthvað
að veiða í henni ennþá.
„Við endum þetta sumarið í 1.297
löxum,“ sagði Einar Sigfússon er við
spurðum um Norðurá, sem hefur oft
verið betri. En það kemur sumar eftir
þetta sumar. Og Þverá endaði í 1.902
löxum. Norðlingafljót gaf 609 laxa
sem er allt í góðu. „Það er gaman að
leika sér þarna með fluguna, þegar
fiskurinn gefur sig,“ sagði veiðimað-
ur sem var í fljótinu undir það síð-
asta. Gljúfurá var frekar slöpp í sum-
ar og síðustu tölur ú henni sýndu 172
laxa. „Áin er falleg og flottir staðir
víða, en það voru ekki margir lax-
ar í henni þegar við vorum þar fyrir
skömmu,“ sagði Ingi Stefán Ólafsson
er við spurðum um ferðir hans við
ána fyrir skömmu.
,,Við vorum í Flókadalsá og náð-
um nokkrum fiskum,“ sögðu þeir
Gunnar og Magnús Gunnarsynir,
sem voru í ánni í ágúst. Flókadalsá
endaði í 369 löxum.
,,Það er gaman að veiða í Grímsá
en áin gaf mér ekki fisk þetta árið,“
sagði Sigurður Guðmundsson.
Grímsá er búin að gefa 574 laxa þetta
sumarið.
Veiðin hefur verið að glæðast í
Reykjadalsá í Borgarfirði og holl sem
var fyrir skömmu fékk 14 laxa, Karl
Lúðvíksson og fleiri. Andakílsá hefur
gefið yfir 100 laxa og eitthvað af sil-
ungi. Laxarnir hafa verið að togast úr
ánni, ekki meira en það.
„Það hafa veiðst 420 laxar í Laxá
í Leirársveit,“ sagði Ólafur Johnson,
þegar Laxá í Leirársveit bar á góma.
Veiðimenn voru ennþá að reyna og í
Leirá líka, en veiðin var róleg.
gb
Rennt yfir laxveiðina í nokkrum vestlenskum ám í sumar
Geir Thorsteinsson með lax úr Andakílsá, en þar var veiðin fremur dræm í sumar. Sigurgeir Ársælsson með flotta veiði úr Hraunsfirði, bolta bleikjur.
Fjör var við Norðurá í Borgarfirði þegar áin var opnuð formlega snemma í sumar.
Kristinn Sigmundsson með einn af fyrstu löxunum úr ánni en hjá honum stendur
Einar Sigfússon sölustjóri.