Skessuhorn


Skessuhorn - 28.09.2016, Qupperneq 25

Skessuhorn - 28.09.2016, Qupperneq 25
MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 2016 25 Bókaðu núna á baendaferdir.is Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 RVK Jólaferð til Brussel & Brugge Fararstjóri: Aðalheiður Jónsdóttir Í Brussel og Brugge ríkir hátíðleg jólastemning á aðventunni. Báðar borgirnar eru með einstaklega huggulega jólamarkaði innan um virðulegar gamlar byggingar og hefur jólamarkaður Brussel verið tilnefndur sá frumlegasti í Evrópu. Belgískar vöfflur, súkkulaði og annað góðgæti heimamanna sjá til þess að allir njóti aðventunnar. Verð: 109.900 kr. á mann í tvíbýli. Skoðunarferð til Brugge er innifalin! 24. - 27. nóvember NÝ FE RÐ Íþróttaskólinn Krakkasport í Stykkis- hólmi er nú vaknaður af sumardvala og kominn á fullt skrið. Um skólann sjá þær Sigga og María sem báðar eru menntaðar íþrótta- og heilsufræð- ingar frá Háskóla Íslands. Skólinn er ætlaður börnum á aldrinum 2-5 ára sem mæta ásamt foreldrum eða for- ráðamönnum í íþróttahúsið í Stykkis- hólmi á laugardagsmorgnum þar sem gleðin tekur völd í um það bil klukku- stund. Markmið íþróttaskólans er að bæta hreyfi-, líkams- og félagsþroska auk mál- og vitsmunaþroska. Börnin fara í þrautabrautir, taka þátt í leikj- um, syngja og skemmta sér. Auk íþróttaskólans bjóða þær Sigga og María upp á sundtíma fyrir börn á sama aldri og hafa einnig verið með ungbarnasund. Mikil aðsókn hefur verið í sportið hjá þeim stöllum og foreldrar ekki síður en börn ánægðir með framtakssemi þeirra. jse Krakkasport í Stykkishólmi María og Sigga í íþróttaskólanum. Eftir mikil átök er gott að teygja á. Óþarfi að hanga heima þegar maður getur hangið í íþróttum. www.skessuhorn.is Harmsaga ævi minnar, Strandamanna saga, Æviskrá Strandamanna, Sléttuhreppur, Kolsvíkurætt, Ættir Austfirðinga, Jeppabókin, Búvélar og ræktun, Leyndardómar Parísarborgar, Ritsafnið Löng og lýðir, Húslestrarbók prentuð á Hólum 1745, Nýja stafrófsverkið prentað 1909, Fermingargjöfin prentuð 1923, Barnagaman með mörgum myndum gefin út 1916, Passíusálmar prentaðir 1834, Bakkaynjurnar, Nonna bækunar og ýmsar barnabækur, Piltur og stúlka, Vatnaniður fyrir veiðimenn, bókin um Díönu, Góði dátinn Svejk, Borgarvirkið, Leikur örlaganna, P. Loti á Ísland- smiðum, Ritverk Gunnars Gunnarssonar, Ritsafn Jóns Trausta og Nú er fleytan í naust. Bækur til sölu Upplýsingar í síma 557-7957 SKE SS U H O R N 2 01 6 www.lbhi.is/namskeid • endurmenntun@lbhi.is • 433 5000 Betri vellir Námskeiðsröð í grasvallafræðum Hvernig er best að viðhalda golf- og knattspyrnuvöllum svo hámarka megi gæði og endingu? Hefst 21. október hjá LbhÍ í Reykjavík Endurmenntun LbhÍ C M Y CM MY CY CMY K Golf_Skessuhorn_sept2016.pdf 1 26.9.2016 11:18:13 „Vorið 2009 vann Vinstri h r e y f i n g i n grænt fram- boð stórsigur í Alþingiskosn- ingum. Á skrif- stofu flokks- ins var haft á orði að þar hefðu heiðarleiki og stefnufesta skil- að sér. Nokkrum árum síðar komu fram upplýsingar sem benda til þess að forysta flokksins hafi fyrir kosn- ingar gengist inn á samkomulag við Samfylkinguna um aðildarumsókn Íslands að ESB. Þetta gekk þvert á allar yfirlýsingar flokksins í kosninga- baráttunni og enginn vafi leikur á því að stóran hluta af kosningasigri VG mátti rekja til þess að þjóðin treysti stefnufestu hins unga flokks.“ Þann- ig er greint frá í kynningu á nýrri bók sem bókaútgáfan Sæmundur á Selfossi hefur sent frá sér og nefnist „Villikettir og vegferð VG - frá vænt- ingum til vonbrigða.“ „Eftir að VG hafði þannig hvikað frá helsta kosningamáli sínu voru ný strik dregin í sandinn á flokksráðs- fundum og landsfundum. Þar kom við sögu aðlögun að stjórnkerfi ESB, beinir styrkir ESB til Íslands og fleira sem forystan samþykkti að gera að úrslitaatriði í stjórnarsamstarfinu. En hvarf síðan frá þeim loforðum jafn- harðan. Við sögu komu einnig stór- mál á borð við olíuleit á Drekasvæði, málefni sjávarútvegs og hinir marg- slungnu og einkennilegu Icesave- samningar. Umskipti VG ollu eðli- lega ólgu innan þingflokksins og í hreyfingunni allri. Fimm þingmenn hurfu úr þingflokkinum á kjörtíma- bilinu. Þeir og fylgismenn þeirra í grasrót flokksins fengu þá einkunn hjá núverandi formanni að vera ein- strengingslegir einsmálsmenn,“ segir á bókarkápu. Höfundurinn bókarinn- ar um Villiketti og vegferð VG er Jón Torfason skjalavörður en hann hefur starfað í íslenskri vinstri hreyfingu í áratugi og var einn af stofnfélögum VG. mm Villikettirnir og vegferð VG Margir eiga nú í frysti mikið af bláberjum eftir góða berjasprettu í sumar. Bláberin eru góðgæti ein og sér, með rjóma og sykri, í hrist- inga af ýmsu tagi og að sjálfsögðu í baksturinn. Nýverið birtist upp- skrift af hjónabandssælu með blá- berjasultu í Skessuhorni og nú kemur önnur uppskrift þar sem bláber koma við sögu. Múffur með bláberjum eru góðar á morg- unverðarborðið, með kaffinu og jafnvel í nestisboxið. Bláberjamúffur 115 grömm mjúkt smjör eða smjörlíki 2 dl sykur 2 egg 1 dl mjólk eða möndlumjólk 1 tsk vanilludropar 1 msk lyftiduft 5 dl hveiti 3 - 5 dl bláber (eftir smekk) Kanilsykur Aðferð: Smjöri og sykri er hrært sam- an og eggjunum bætt út í einu í einu. Þurrefnum svo blandað saman við. Því næst er mjólk og vanilludropum blandað út í. Að lokum er bláberjun- um blandað varlega saman við deigið með sleif. Setjið deig- ið í múffuform og stráið smá kanilsykri ofan á. Bakið í 20 - 30 mínútur við 200 gráður. Klassískar bláberjamúffur Freisting vikunnar

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.